Kominn úr tunnunni og upp í lögreglubíl Sigurgeir Þorkelsson skrifar 18. júní 2026 21:06 Hólmsteinn er hér kominn í körfuna og er á leið á fast land á ný. Áhafnarmeðlimur kannar ástand körfunnar. Skjáskot/Vísir Hólmsteinn Harðarson hefur yfirgefið hvalveiðiskipið Hval 9. Þegar á fast land var komið var hann færður á brott í lögreglubíl.
Skipið lagði að bryggju í Hvalfirði laust fyrir klukkan átta í kvöld og kom körfubíll samstundis aðvífandi. Í rúma klukkustund reyndi maður í körfu körfubílsins að tala Hólmstein niður úr tunnunni. Það bar að lokum árangur um klukkustund síðar, komið var öryggisfestingum á Hólmstein og hann skreið varlega yfir í körfuna. Klippa: Hólmsteinn Harðarson yfirgefur hvalveiðiskipið Hval 9 Ekki er vitað hvað fór milli körfumannsins og Hólmsteins en Hólmsteinn faðmaði hann að sér þegar niður á jörðu var komið. Samkvæmt heimildum Vísis er körfumaðurinn óeinkennisklæddur lögregluþjónn. Hólmsteinn var því næst færður í lögreglubíl sem ók á brott. Teymi fréttastofu Sýnar var á staðnum í Hvalfirði í kvöld og varð vitni að því þegar að byssa var færð um borð í hvalveiðiskipið Hval 8. Í kjölfarið var siglt út og haldið inn Hvalfjörð. Líklega er aðeins um æfingu að ræða en það er þó óstaðfest. Það var síðan stuttu seinna sem hitt skipið sem bar Hólmstein í tunnunni, Hvalur 9, kom að landi. Í kvöldfréttum á Sýn var rætt við Völu Árnadóttur, formann Hvalavina, ásamt aðgerðasinnanum Anahitu Babaei í beinni útsendingu frá Hvalfirði. Viðtalið ásamt frétt okkar um málið má nálgast hér: Aðgerðasinninn Anahita lék sama leik og Hólmsteinn árið 2023 og var í febrúar síðastliðnum sakfelld fyrir að hafa brotist um borð í bátinn og dæmd til að greiða fyrir það tvö hundruð þúsund króna sektargreiðslu. Vitað er að Hólmsteinn var færður á brott í lögreglubíl en ekki er vitað hvort einhverjir eftirmálar verði af athæfi hans. Atburðarásin hófst á öðrum tímanum Fréttastofu bárust fréttir af því á öðrum tímanum í dag að Hólmsteinn Harðarson hefði komið sér fyrir tunnu efst á mastri hvalveiðiskipsins Hvals 9. Það var síðan á fimmta tímanum sem skipið sigldi af stað úr Reykjavíkurhöfn áleiðis til Hvalfjarðar. Í kjölfar þess hringdi Vala Árnadóttir, formaður Hvalavina, sem stödd var við höfnina, í Hólmstein. Sagðist hann ekki hafa veitt samþykki fyrir því að halda mætti af stað. Komið hefði verið til hans og hann gefið á sér deili, nafn, kennitölu, símanúmer og slíkt en hann hafi ekki vitað að það yrði notað til að bæta honum á farþegalista skipsins. Fyrr í dag lýsti Hólmsteinn því í samtali við fréttastofu að hann væri hræddur og kvíðinn en það bliknaði í samanburði við líðan hvalanna. Hann stæði þó við sína ákvörðun. „Ég veit ekki hvað annað ég get gert.“
Hvalveiðar Hvalir Lögreglumál Hvalfjarðarsveit Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Fleiri fréttir „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Sjá meira