Sigldu af stað með mótmælandann um borð Freyja Þórisdóttir skrifar 18. júní 2026 16:38 Skipið er siglt af stað. Vísir Hvalveiðiskipið Hvalur 9 hefur siglt úr höfn en Hólmsteinn Harðarson situr nú í tunnu mastursins til að mótmæla hvalveiðum. Hann sagðist fyrr í dag ekki ætla niður sjálfviljugur en að hann væri með takmarkað nesti, eitthvað vatn og lítið batterí á símanum.
Hann sagðist þá ekki vita hvað annað hann gæti gert til að mótmæla hvalveiðum. Í samtali við fréttastofuna fyrr í dag sagðist Hólmsteinn ekki ætla sjálfviljugur niður því það væri erfitt að taka menn úr tunnunni. Hann segist ekki vita hvenær hann færi loks niður eða við hvaða aðstæður. Hólmsteinn skipulagði mótmælin einn. „Ég bara veit ekki hvað annað ég get gert. Lögreglan kom og fór áðan. Nokkrir úr áhöfninni töluðu við mig,“ sagði Hólmsteinn í samtali við Vísi fyrr í dag en hann hafði einnig orð á því að hann ef að skipið færi, þá færi hann einnig. „Þetta mun ekki stoppa þetta skip, þegar ég fer þá fer skipið. En ég veit ekki hvað annað ég get gert til að hjálpa hvölunum, sumir gera þetta, aðrir skrifa, aðrir tala. Það er fallegt að allir geri það sem þeir geta.“ „Þetta mun ekki stoppa þetta skip, þegar ég fer þá fer skipið,“ sagði Hólmsteinn Harðarson.Vísir Hvalur 8 sigldi fyrr í dag upp í Hvalfjörð og líklegt þykir að Hvalur 9 geri það sömuleiðis þar sem hvalabyssur yrðu settar á það og skipverjar myndu þjálfa sig í notkun þeirra. Ætti skipið að halda út á mið til hvalveiða um næstu helgi, líklegast á laugardag, þann 20. júní. Báturinn virtist á fimmta tímanum vera á góðri siglingu í átt frá höfninni. Ásmundur Rúnar Gylfason aðstoðaryfirlögregluþjónn sagði í samtali við Vísi fyrr í dag að ekki hefði verið óskað eftir aðkomu lögreglu að mótmælunum. „Við fórum, ræddum við þá sem málið snýr að og það var ekki óskað eftir aðkomu lögreglu að þessu,“ sagði hann í samtali við blaðamann. Hafi verið skráður sem farþegi Vala Árnadóttir, formaður Hvalavina, gaf fréttastofu leyfi til að heyra símtal milli hennar og Hólmsteins, sem heyra má í myndskeiðinu hér að neðan. Tekið skal fram að hún er ekki fréttamaður Sýnar þrátt fyrir að hún haldi á hljóðnema merktum fréttastofunni í myndskeiðinu. Í símtalinu kom fram að hann hefði verið skráður sem farþegi í skipinu. Hann sagði að starsfmenn í bátnum hafi tekið niður hjá honum kennitölu og nafn en hann hafi ekki skilið hvers vegna. „Þeir sögðust ætla að skrá mig sem eitthvað sem ég skildi ekki og gaf þeim nafn og kennitölu og símanúmer og svo framvegis.“ Fréttin hefur verið uppfærð.
Hvalir Hafið Hafnarmál Hvalveiðar Reykjavík Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira