Íhugaði meiðyrðamál vegna nafnlausra Facebook-færslna Lovísa Arnardóttir skrifar 19. júní 2026 07:00 Sara segir það hafa verið erfitt að þurfa að verja sig með þessum hætti. Vörumerki Sara Lind Pálsdóttir, eigandi tískuvöruverslunarinnar Júník, hugðist höfða meiðyrðamál vegna nafnlausra Facebook-færslna þar sem því var haldið fram að verslunin keypti vörur sínar frá Shein.
Sara leitaði til lögfræðings og safnaði gögnum um birgja fyrirtækisins mörg ár aftur í tímann, en hún segir þær aðgerðir hafa verið nauðsynlegar þar sem umræðan hafi gengið allt of langt. Sara Lind er gestur í nýjasta þætti hlaðvarpsins Vörumerkis í umsjón Margrétar Bjarkar Jónsdóttur og Örnu Þorsteinsdóttur. Í þættinum ræðir Sara meðal annars um árin fimmtán sem hún hefur byggt upp Júník, hvernig það er að vera andlit þekkts vörumerkis og umræðu sem hefur reglulega komið upp á samfélagsmiðlum um fyrirtækið sem hún er orðin afar þreytt á. Umræðan snýst mest um að Júník kaupi vörurnar sínar frá kínverska verslunarrisanum Shein. Sara hafnar því alfarið í þættinum og segir umræðuna hafa gengið það langt að hún hafi ákveðið að bregðast við. „Ég ráðfærði mig bara við mjög færan lögfræðing um hvað væri best að gera í þessu,“ segir Sara í þættinum og ítrekar hversu nafnlausir þræðir á samfélagsmiðlum séu þreytandi, bæði fyrir fyrirtæki og einstaklinga. Með sterkt mál í höndunum Sara segir að hún hafi ákveðið að höfða meiðyrðamál ef fleiri ummæli eða umsagnir kæmu fram um að fyrirtækið væri að versla hjá Shein. Hún segir lögfræðinginn hafa fullvissað sig um að hún væri með sterkt mál í höndunum en til þess að fara alla leið þyrfti hún að safna saman magni gagna. „Ég þurfti að senda honum allar nótur, öll invoice, allt frá öllum merkjunum mínum síðustu fimm ár aftur í tímann,“ segir Sara og útskýrir að gögnin hafi átt að sýna fram á hvaðan vörurnar kæmu. Hún segir að það hafi verið erfitt að þurfa að verja sig með þessum hætti. „Auðvitað er ömurlegt að þurfa að gera þetta. Þetta er alveg glatað,“ segir hún í þættinum. Í eigin rekstur 21 árs Sara fór þó ekki alla leið með málið fyrir dómstóla. Hún segir að rætt hafi verið við stjórnanda síðunnar þar sem umræðan fór fram og að ef málið hefði haldið áfram hefði hún verið tilbúin að ganga lengra. „Ég vildi vita hvort ég ætti rétt á því að höfða meiðyrðamál,“ segir Sara. Í þættinum ræðir Sara um hvernig hún fór úr því að vinna í fatabúð sextán ára yfir í að opna eigin verslun aðeins 21 árs og hvernig Júník hefur þróast á fimmtán árum í rekstri. Hún kemur einnig inn á hvernig það kom til að hún varð þekkt sem „Sara í Júník“ í kjölfar frægra útvarpsauglýsinga og hvernig alvarleg veikindi fyrir nokkrum árum breyttu sýn hennar og forgangsröðun.
Hlaðvörp Tíska og hönnun Dómsmál Tengdar fréttir Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Metnaðarlaus prófíll, þriggja ára gamlar myndir og það að hefja spjallið á „hæ“ eru meðal stærstu mistaka sem fólk gerir á stefnumótaforritinu Smitten að sögn Davíðs Arnar Símonarsonar, framkvæmdastjóra og eins stofnanda Smitten. 12. júní 2026 13:22 „Ég heyrði þá kalla á mig en gat engu svarað“ Baldvina Snælaugsdóttir vaknaði eftir heilaskurðaðgerð í október en gat hvorki talað né hreyft sig. Hún man skýrt eftir því þegar læknarnir kölluðu á hana og ljóst var að eitthvað hafði farið alvarlega úrskeiðis. Ísköld kvíðatilfinning hafði hellst yfir hana nokkrum vikum fyrir aðgerðina. Hún sendi neyðarkall til Facebook-vina og bað um baráttustrauma, sem hún trúir að hafi skilað sér á ögurstundu. 18. desember 2025 21:18 Mest lesið Diljá Mist á lausu Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Píparapæja selur pent „penthouse“ Lífið „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Lífið Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Lífið 50+: Hvers vegna við hættum (loksins) að nenna að útskýra okkur Áskorun Eva Björg verðlaunuð í Frakklandi Menning Ólétt 17 ára, kærastinn með krabbamein, vann fjórfalt, meistaranám og flott starf Áskorun Fleiri fréttir Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Sjá meira
Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Metnaðarlaus prófíll, þriggja ára gamlar myndir og það að hefja spjallið á „hæ“ eru meðal stærstu mistaka sem fólk gerir á stefnumótaforritinu Smitten að sögn Davíðs Arnar Símonarsonar, framkvæmdastjóra og eins stofnanda Smitten. 12. júní 2026 13:22
„Ég heyrði þá kalla á mig en gat engu svarað“ Baldvina Snælaugsdóttir vaknaði eftir heilaskurðaðgerð í október en gat hvorki talað né hreyft sig. Hún man skýrt eftir því þegar læknarnir kölluðu á hana og ljóst var að eitthvað hafði farið alvarlega úrskeiðis. Ísköld kvíðatilfinning hafði hellst yfir hana nokkrum vikum fyrir aðgerðina. Hún sendi neyðarkall til Facebook-vina og bað um baráttustrauma, sem hún trúir að hafi skilað sér á ögurstundu. 18. desember 2025 21:18