Golf

Völlurinn of erfiður á síðustu tveim risa­mótum

Andri Broddason skrifar
Gunnlaugur Árni mun spila á Opna bandaríska risamótinu í dag. Mótið fer fram á Sinnecock-velliinum en hann hefur sögulega verið mjög erfiður.
Gunnlaugur Árni mun spila á Opna bandaríska risamótinu í dag. Mótið fer fram á Sinnecock-velliinum en hann hefur sögulega verið mjög erfiður. Tanner Pearson/NCAA Photos via Getty Images

Opna bandaríska risamótið í golfi hefst í dag og er Íslendingurinn Gunnlaugur Árni Sveinsson meðal kylfinga á mótinu. Keppt verður á Shinnecock Hills-vellinum í New York-fylki en völlurinn hefur að margra mati verið of erfiður á síðustu tveim risamótum sem hafa verið leikin á vellinum.

Opna bandaríska mótið er oftast keppt á krefjandi völlum og er völlurinn gerður erfiðari fyrir keppni mótsins. Það var einnig gert þegar Opna bandaríska risamótið var haldið í síðustu tvö skipti á Shinnecock-vellinum.

Árið 2004 var mótið haldið á vellinum og kvartaði Tiger Woods mikið um að flatirnar væru einfaldlega of erfiðar. Fyrir síðustu tvo daga mótsins voru flatirnar ekki vökvaðar sem gerði þær hraðari og erfiðari. Mikill vindur var einnig á síðasta degi mótsins og náði enginn kylfingur að fara lokahring mótsins undir pari.

Fjórtán árum seinna var mótið aftur haldið á Shinnecock en þar var völlurinn aftur of erfiður. Flatirnar voru aftur hraðar en þær þurrkuðust upp í mikilli sól. Justin Rose sagðist aldrei hafa orðið vitni að golfvelli breytast jafn hratt og þá. Brooks Koepka vann mótið það ár á einum yfir pari.

Stærsta áskorun vallarstarfsmanna er að halda flötum vallarins í góðu standi. Veðrið gerir þeim ekki auðvelt fyrir en spáð er miklum vindi um helgina. Planið er að auka hraðann á flötunum eftir sem líður á helgina en passa þarf að flatirnar verði ekki of erfiðar.

Vindurinn gerir leikmönnum nógu erfitt fyrir og passa þarf að það verði ekki ómögulegt að spila völlinn.

Gunnlaugur Árni á rás klukkan 18:20 á íslenskum tíma og verður sýnt frá mótinu í beinni útsendingu á Sýn sport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×