Dagskráin í Reykjavík á 17. júní verður svona Freyja Þórisdóttir skrifar 15. júní 2026 13:21 Skrúðgangan hefst við Hallgrímskirkju og liggur leið þaðan niður í Hljómskálagarð en á vef borgarinnar er áætlað að gangan taki um 45 mínútur. Vísir/Vilhelm Þjóðhátíðardagur Íslendinga er á miðvikudaginn, þann 17. júní, og í tilefni hans verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá um allt land. Í miðbæ Reykjavíkur verður götum lokað á meðan hátíðarhöldunum stendur en meðal þess helsta sem fram kemur í upptalningu dagskrárliða á vef borgarinnar er skrúðganga, tíu ára plötusnúður, fornbílasýning og harmonikkuball. Dagskráin hefst á Austurvelli þar sem Halla Tómasdóttir forseti Íslands flytur hátíðarávarpið, annað árið í röð, en þar til síðasta sumar hafði vaninn verið sá að forsætisráðherra flytti ávarpið á athöfninni sem er á vegum Alþingis og forsætisráðuneytisins. Fjallkonan flytur einnig ávarp og Félagar úr Karlakór Reykjavíkur flytja nokkur lög auk blásara úr Sinfoníuhljómsveit Íslands. Þá mun Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra leggja blómsveig frá íslensku þjóðinni að minnisvarða um Jón Sigurðsson á Austurvelli en forseti borgarstjórnar, Björg Magnúsdóttir, mun að athöfn lokinni leggja blómsveig að leiði Jóns Sigurðssonar og Ingibjargar Einarsdóttur í Hólavallagarði. Athöfninni verður sjón- og útvarpað á RÚV. Trylla lýðinn með „þjóðlegu reifi“ Klukkan 13:00 fer svo af stað skrúðganga leidd af Skátunum en hún hefst við Hallgrímskirkju og gengið verður að hátíðarsvæðinu í Hljómskálagarði. Á vef Reykjavíkur segir að leynigestir muni slást í hóp þeirra sem þarna ganga en Lúðrasveit Reykjavíkur leikur undir. Hátíðarhöld á Seltjarnarnesi fóru fram í mikilli rigningu á síðasta ári. Skrúðganga var farinn frá leikskólanum að hátíðarsvæðinu við Bakkagarð. Götuleikhús Hins Hússins stendur fyrir margskonar viðburðum sem fara fram víðs vegar um miðborgina. Þar á meðal verður boðið upp á „Þjóðlegt reif“, en hópurinn mun „trylla lýðinn í skrúðgöngunni,“ og þegar í Hljómskálagarð er komið mun áhorfendum vera boðið að dansa og syngja með hópnum. Í Hljómskálagarði verða hoppukastalar, klifurveggur, skátaþrautabraut og matavagnar svo fátt eitt sé nefnt en á vef Reykjavíkur segir að ókeypis aðgangur verði á alla dagskrárliði og í öll tæki. Meðlimir hljómsveitarinnar Sprite Zero Klan, Daníel Óskar Jóhannesson og Kolbeinn Sveinsson, verða skemmtanastjórar á stóra sviðinu. Hér að neðan má sjá dagskrá á sviði: Klukkan 13:50 Kynnar Sprite Zero Klan Klukkan 14:00 Leikhópurinn LottaKlukkan 14:30 Dansskóli Birnu BjörnsKlukkan14:40 Tónhylur AkademíaKlukkan15:10 Danslistaskóli JSBKlukkan15:15 AmabadamaKlukkan 15:45 Dansstúdíó World ClassKlukkan 15:50 Páll ÓskarKlukkan16:20 Dans Brynju PétursKlukkan 16:40 VÆB Á milli 13:00 og 17:00 mun Krúserklúbburinn vera með bílasýningu á Skothúsvegi og á milli 14:00 og 17:00 mun Reykjavik HEMA Club setja upp tvo velli til að skylmast á og leika listir sínar. Klukkan 14:30 verður Dans Afríka með trommuslátt og dans í garðinum en klukkan 15:00 tekur Húlladúllan við og leikur listir sínar. Eins og spá Veðurstofu Íslands er núna, klukkan 13:00 á mánudeginum 15. júní, virðist ætla að hanga þurrt á höfuðborgarsvæðinu á þjóðhátíðardaginn.Vísir/Vilhelm „Hringleikur verður með sirkusatriði á vel völdum stöðum. Listhópar Hins Hússins verða með blöndu af menningarviðburðum í garðinum. Götuleikhús Hins Hússins sýnir listir sínar í Hljómskálagarði,“ er einnig meðal þess sem stendur á vef Reykjavíkur. Plötusnúðurinn reynslumikill miðað við aldur Á Klambratúni, Ingólfstorgi og á Árbæjarsafni hefst auglýst dagskrá klukkan 13:00 en á Klambratúni verða matarvagnar Reykjavík Street food og leiktæki. Þar verður danssýning, Besti vinur minn Súperman og plötusnúðar. Annar plötusnúðanna er hinn tíu ára gamli Baldur Freyr Kristjánsson, DJ BFK, en þrátt fyrir ungan aldur hefur hann verið lengi að spila og byrjaði að æfa sig á græjunum aðeins 2 ára gamall. DJ BFK hefur spilað á ýmsum samkomum - svo sem í afmælum, á skóla- og leikskólaskemmtunum og barnahátíðinni Kátt á túni í fyrrasumar þar sem hann lokaði hátíðinni á stóra sviðinu. DJ BFK heitir Baldur Freyr Kristjánsson og er 10 ára gamall.Reykjavik.is Á Ingólfstorgi verður svokallað Streetball mót þar sem tveggja manna lið munu etja kappi í útsláttarkeppni en skráning í mótið fer fram á streetballmotid.is og eru í verðlaun gjafabréf að andvirði ríflega einnar milljónar íslenskra króna. Í Ráðhúsi Reykjavíkur verður Harmonikufélag Reykjavíkur með alvöru harmonikkuball og þar verður dansað frá klukkan 15:00 til klukkan 16:30. Ókeypis verður inn og nóg af sætum fyrir áheyrendur og gólfpláss fyrir dansara. Á Árbæjarsafni verða þjóðbúningar, þjóðdansar, fjallkonan, fornbílar og harmonikkuleikur. Veitingasala verður í Dillonshúsi og gömlu góðu sleikjóarnir verð á sínum stað í Krambúðinni. Upplýsingar um aðgengi í miðborginni má finna hér og kort yfir lokanir hér. 17. júní Reykjavík Halla Tómasdóttir Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Lífið Fólk eigi ekki að vera feimið við sleipiefnið Heilsa Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Lífið „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ Lífið Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei Lífið Skósveinarnir hafi ekki þjónað Hitler Bíó og sjónvarp „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Lífið Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Menning Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Lífið Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island Lífið Fleiri fréttir Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Sjá meira
Klukkan 13:50 Kynnar Sprite Zero Klan Klukkan 14:00 Leikhópurinn LottaKlukkan 14:30 Dansskóli Birnu BjörnsKlukkan14:40 Tónhylur AkademíaKlukkan15:10 Danslistaskóli JSBKlukkan15:15 AmabadamaKlukkan 15:45 Dansstúdíó World ClassKlukkan 15:50 Páll ÓskarKlukkan16:20 Dans Brynju PétursKlukkan 16:40 VÆB
17. júní Reykjavík Halla Tómasdóttir Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Lífið Fólk eigi ekki að vera feimið við sleipiefnið Heilsa Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Lífið „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ Lífið Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei Lífið Skósveinarnir hafi ekki þjónað Hitler Bíó og sjónvarp „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Lífið Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Menning Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Lífið Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island Lífið Fleiri fréttir Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Sjá meira