„Ríkisstjórnin getur ekki flúið eigin vandræði inn í Evrópusambandið“ Sigurgeir Þorkelsson skrifar 10. júní 2026 20:28 Guðrún segir kjósendur hafa sent sterk skilaboð í sveitarstjórnarkosningunum. Håkon Lund Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins segir ríkisstjórnina afvegaleiða með áherslu sinni á Evrópusambandsaðild. Evran sé engin töfralausn og ríkisstjórninni færi betur að horfa sér nær og taka til í ríkisfjármálunum. „
Ríkisstjórnin getur ekki flúið eigin vandræði inn í Evrópusambandið,“ sagði Guðrún sem skaut föstum skotum að ríkisstjórninni. „Þegar ríkisstjórnin stendur frammi fyrir vanda skipar hún starfshóp. Þegar hún þarf að taka afstöðu pantar hún skýrslu. Og á meðan er athyglinni beint að Evrópusambandinu og evrunni, eins og þar sé einfaldari leið en að taka erfiðar ákvarðanir í ríkisrekstri.“ „Fyrir rúmu ári kynnti ríkisstjórnin 57 hagræðingartillögur sem áttu að skila tugum milljarða í sparnað. Nú liggur fyrir að aðeins fimm þeirra hafa komið til framkvæmda. Það er auðvelt að kynna hagræðingu á blaðamannafundi. Erfiðara er að hrinda henni í framkvæmd.“ „Ríkisstjórnin verður að draga úr útgjöldum, hætta að velta kostnaði yfir á heimili og fyrirtæki, einfalda regluverk og treysta atvinnulífinu.“ Guðrún segir þjóðina hafa sent skýr skilaboð í sveitarstjórnarkosningum. „Fólk vill að stjórnvöld virði skattfé almennings og skili lausnum sem virka. Þessi skilaboð heyrðust skýrt í Reykjavík en einnig víða um land. Þau sýna að sjálfstæðisstefnan á brýnt erindi við fólkið í landinu.“ Guðrún hvetur kjósendur til að segja nei í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu. „Spurningin er í raun einföld: Hver á að fara með lokaákvörðunarvaldið í málefnum Íslands? Ekki hvort við eigum að eiga samskipti við aðrar þjóðir heldur hver tekur ákvarðanir fyrir Ísland.“ „Fullveldið gerir okkur kleift að ráða auðlindum okkar, móta eigin stefnu, gera eigin samninga og bregðast hratt við þegar aðstæður breytast. Við eigum ekki að færa okkur úr bílstjórasætinu í aftursætið þegar kemur að framtíð Íslands.“ „Afstaða Sjálfstæðisflokksins er skýr. Við viljum vinna með Evrópu. En við viljum ekki að lokaákvarðanir um fiskimiðin, landbúnaðinn, tollamál, viðskiptastefnu og framtíð íslensks atvinnulífs færist frá Íslandi.“ Guðrún segir að Ísland verði áfram virkt í alþjóðasamstarfi. „En samstarf er ekki það sama og sambandsaðild.“ „Við vinnum með Evrópu, en ákvarðanir um Ísland verða áfram teknar á Íslandi.“
Sjálfstæðisflokkurinn Alþingi Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Fleiri fréttir Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku „Það er skilgreiningin á því að pissa í skóinn sinn“ Sorpa skoðar að fara í mál við grenndargámasóða Sjá meira