„Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. júní 2026 22:16 Serena Williams og Victoria Mboko unnu fyrsta tvíliðaleikinn saman. Getty/Paul Harding Endurkoma Serenu Williams er í uppnámi eftir að tvíliðaleiksfélagi hennar meiddist á hné í einliðaleik sínum gegn Karolinu Pliskova í dag.
Hin 44 ára gamla, 23-faldi risamótsmeistari, sneri aftur í tennis á þriðjudag eftir næstum fjögurra ára fjarveru frá íþróttinni og spilaði tvíliðaleik með Victoriu Mboko. Þær slógu út þriðja efsta parið á styrkleikalistanum en nú ríkir óvissa um leik þeirra í átta liða úrslitum á fimmtudag eftir að Mboko datt illa. Serena Williams' doubles partner Victoria Mboko suffered a left knee injury in her singles match at Queen's Club on Wednesday, putting Thursday's doubles match in jeopardy. https://t.co/Ab1HOfoa7m— ESPN (@espn) June 10, 2026 Hin nítján ára gamla kanadíska kona kveinaði af sársauka þegar hún rann til við að reyna að ná framhandarhöggi frá Pliskova, sem átti möguleika á að brjóta uppgjöf, og féll niður haldandi um vinstra hnéð. Mboko gat staðið á fætur og gengið aftur að stólnum sínum nokkrum augnablikum síðar, en hún var sýnilega í uppnámi og huldi andlit sitt með handklæði áður en hún gafst upp og haltraði grátandi af vellinum. Here's hoping for a speedy recovery 🤞Serena Williams' doubles campaign at Queen's is in doubt after partner Victoria Mboko suffered a knee injury in her singles match against Karolina Pliskova. pic.twitter.com/mOmJt8HnJm— BBC Sport (@BBCSport) June 10, 2026 „Þetta er svo mikil synd. Mér fannst við spila nokkuð góðan leik og hún var að bæta sig eftir því sem leið á leikinn,“ sagði mótherji hennar Pliskova. „Ég óska henni alls hins besta. Þetta er ekki leiðin sem ég vil vinna á svo vonandi verður hún klár fyrir Wimbledon.“ Mboko og Williams eiga að mæta Leylah Fernandez frá Kanada og Lauru Siegemund frá Þýskalandi í átta liða úrslitum á fimmtudag. .„Þetta er átakanlegt, maður hatar að sjá svona,“ sagði Annabel Croft, fyrrverandi efsta tenniskona Bretlands, á BBC Two. „Hún hefur örugglega verið svo spennt fyrir því að spila aftur með Serenu.“ „Þetta eru bara dæmigerð grasvallarmeiðsli þar sem fæturnir fara í mismunandi áttir og svo snýst hnéð. Maður bara vonar og biður þess að hún verði ekki frá keppni á Wimbledon.“ Wimbledon, eina risamótið á grasvelli á dagatalinu, hefst mánudaginn 29. júní. „Hún er gjörsamlega niðurbrotin og þetta er átakanlegt fyrir alla aðdáendurna sem horfa á hana því hún er svo mikil og björt von og stendur sig svo vel á mótaröðinni,“ bætti Croft við. Serena Williams gets a doubles win in her first professional match in almost four years https://t.co/DLyq0lqIWb— Los Angeles Times (@latimes) June 10, 2026
Tennis Mest lesið Einn af varaforsetum FIFA dregur stuðning sinn við Infantino til baka Fótbolti Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Eiður Smári þjálfar KA Íslenski boltinn Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Enski boltinn Atlético Madrid fagnaði sigri á nýliðum Málaga Fótbolti „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fótbolti „Takk fyrir mig körfubolti“ Körfubolti Landsliðskona í Val Handbolti Gæti misst af byrjun tímabilsins eftir að stuðningsmaður tæklaði hann Fótbolti Tijjani Reijnders farinn Enski boltinn Fleiri fréttir Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina „Takk fyrir mig körfubolti“ Atlético Madrid fagnaði sigri á nýliðum Málaga Landsliðskona í Val Einn af varaforsetum FIFA dregur stuðning sinn við Infantino til baka „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fanney í markinu fyrstu tvo leikina og sex stig komin í hús Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Eiður Smári þjálfar KA Gæti misst af byrjun tímabilsins eftir að stuðningsmaður tæklaði hann Pablo Bertone aftur í Val Lík fannst á leikvangi Charlton Monaco riftir samning við Pogba Keflavík heldur áfram að styrkja sig Mögnuð þrenna Köru í Keflavík Daníel Guðjohnsen úr frystinum til Þýskalands Breki nýtir sér ráð Viktors og er klár í harðan slag í Portúgal Myndi taka kúlu fyrir Infantino Algjört risastökk Ólivers á heimslistanum Baleba færist nær United Mun Guðmundur reisa Holland við? Jóhann áfram í limbói en krakkarnir í skóla á Spáni Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Mun ekki keyra fyrir Red Bull um helgina Í bann fyrir neyslu kókaíns: „Ekkert af þessu afsakar það sem ég gerði“ „Fann í líkama, hjarta og sál að nú væri komið gott“ Allt klárt hjá Aroni eftir erfiðustu ákvörðun ferilsins Mourinho: Rodri fékk mig til að efast Sjá meira