Leið Íslands á HM skýrist og leikur í Osló hjálpaði Sindri Sverrisson skrifar 10. júní 2026 13:03 Linda Líf Boama, Hildur Antonsdóttir og Glódís Perla Viggósdóttir ætla sér á HM. vísir/Anton Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta er nánast farið að finna strandilminn (þið vitið, þennan sem Kramer vildi markaðssetja) fyrir HM í Brasilíu á næsta ári. Þó eru enn lítil hindrun og svo mögulega ansi stór hindrun í veginum.
Þriðju hindruninni var formlega rutt úr veginum í gær þegar riðlakeppninni fyrir HM lauk, vegna 2-1 sigurs Noregs gegn Austurríki, en við komum að því síðar. Lausar við sterkustu lið Evrópu Ísland endaði í 3. sæti síns riðils, fyrir ofan Úkraínu, og fer því í umspilsleið 1 inn á HM sem er mun skárri en umspilsleið 2 sem Úkraína þarf að feta. Ísland sleppur því við sterkustu þjóðir Evrópu. Liðið þarf nú að slá út tvö lið í haust til þess að komast á HM. Ljóst er að fyrri mótherjinn verður lið sem Ísland ætti alla jafna ekki að eiga í neinum vandræðum með en seinni mótherjinn gæti orðið ansi erfiður. Mótherjar í tvöföldu umspili í haust Mótherjar í fyrra umspili: Ungverjaland, Grikkland, Rúmenía, Hvíta-Rússland, Kósovó, Litáen, Króatía, Kasakstan. *Mótherjar í seinna umspili: Slóvenía, Pólland, Serbía, Úkraína, Sviss, Portúgal, Skotland, Wales / Finnland, Belgía, Tyrkland, Tékkland, Albanía, Norður-Írland, Slóvakía, Ísrael.*Fyrri átta liðin dragast gegn seinni átta liðunum og Ísland gæti svo mætt einu af sigurliðunum. Hefndarför til Portúgals eða einvígi við Elísabetu? Dregið verður í umspilið eftir rúma viku, 18. júní. Ísland kemur inn í umspilið úr A-deild, þar sem 16 bestu þjóðirnar spila, og fær því í báðum umspilseinvígum sínum að spila seinni leikinn heima á Laugardalsvelli. Eins og sjá má eru á meðal erfiðustu liða sem staðið gætu í vegi Íslands því lið á borð við Sviss og Finnland, sem Ísland tapaði fyrir á EM í fyrra, Belgana hennar Elísabetar Gunnarsdóttur, og Portúgal sem Ísland tapaði fyrir í framlengdum leik í umspilinu fyrir síðasta HM. Sædís Rún Heiðarsdóttir og stöllur hennar í landsliðinu mæta C-deildarliði í haust. Með sigri í því einvígi fer liðið í úrslitaeinvígi um sæti á HM og gæti ekki mætt neinu af hinum liðunum sem enduðu í 12 efstu sætum undankeppninnar.vísir/Anton Aðeins fjögur lið úr Evrópu komin inn á HM Spánverjar, eftir sigur sinn á Íslandi í gær, Þýskaland, Danmörk og Frakkland eru einu Evrópuþjóðirnar sem núna eru búnar að tryggja sig inn á HM, með því að ná efsta sæti í sínum riðli í A-deild. England, Noregur, Holland, Ítalía, Írland, Svíþjóð, Ísland og Austurríki fara úr A-deild í umspilsleið 1 og byrja á að mæta efstu átta liðunum úr C-deild. Með sigri á C-deildarliði mætir Ísland svo liði sem unnið hefur sitt einvígi í umspilsleið 2, þar sem Slóvenía, Pólland, Serbía, Úkraína, Sviss, Portúgal, Skotland og Wales dragast gegn Finnlandi, Belgíu, Tyrklandi, Tékklandi, Albaníu, Norður-Írlandi, Slóvakíu og Ísrael. Þurfa ekki umspil við lið úr öðrum heimsálfum Leiðin verður enn skýrari eftir dráttinn 18. júní en það sem er þó alla vega orðið ljóst er að með því að vinna tvö umspilseinvígi í haust kemst Ísland á HM í fyrsta sinn. Ein þjóð af þeim átta sem vinna tvö einvígi mun hins vegar ekki komast beint á HM heldur fara í enn eitt umspilið, með liðum úr öðrum heimsálfum. Það verður sú þjóðanna sem endaði neðst í riðlakeppninni sem lauk í gær. Ljóst er að það getur ekki orðið Ísland því aðeins sex þjóðir í umspilinu enduðu með betri árangur en Ísland. Austurríki varð líka í 3. sæti í sínum riðli í A-deild en endaði með færri stig en Ísland, eftir að hafa tapað 2-1 á útivelli gegn Noregi í Osló í gær í leik sem þó skipti þær norsku engu máli þar sem þegar var ljóst að þær myndu enda í 2. sæti.
Landslið kvenna í fótbolta HM 2027 í Brasilíu Mest lesið Bein útsending frá Reykjavíkurmaraþoninu Sport United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn Strákarnir réðu ekki við Finnana Körfubolti „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ Íslenski boltinn „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Íslenski boltinn Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Enski boltinn DocZone snýr aftur Enski boltinn „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Íslenski boltinn Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Fleiri fréttir Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Afturelding valtaði yfir Ægi og skoraði sjö mörk Karólína Lea skoraði fyrir Inter „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Curtis Jones farinn til Inter Glódís skoraði í stórsigri Bayern Hlín og Guðrún skildu jafnar í toppslagnum Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Orri Steinn spilaði allan leikinn í tapi Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Uppgjörið: FH - Víkingur R 0-1 | Magnaður sigur Víkinga Uppgjörið: Þór/KA - Valur 0-1| Valskonur úr fallsæti Uppgjörið: ÍBV - Þróttur 1-2 | Ekki góð endurkoma Leikmenn beggja liða fá bönn eftir úrslitaleik HM BBC birtir innslag um sögulegt einvígi KR og Liverpool Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Sjáðu steinsofandi vörn Víkings í mikilvægasta einvígi tímabilsins Strippaði á Kópavogsvelli fyrir Bestu deildina Íhuga að þvinga fram fordæmalausa kosningu um vantraust Konsa orðinn leikmaður Arsenal Sjáðu mörkin: Útsendari FH refsaði toppliðinu og Ása Björg með sýningu Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Enski boltinn hefst í kvöld Liverpool fær höfnun frá Brighton Sjá meira