„Það væri ógeðslega gaman að ná að vinna Spánverjana“ Andri Broddason skrifar 9. júní 2026 13:47 Guðrún Arnardóttir er spennt fyrir leiknum í kvöld gegn Spáni Vísir/VPE Guðrún Arnardóttir, leikmaður Hammarby í Svíþjóð, er mætt með íslenska kvennalandsliðinu heim til Íslands fyrir leik liðsins gegn heimsmeisturum Spánar. Ekki er mikið undir gegn Spáni þar sem Ísland er búið að tryggja sér þriðja sæti riðilsins. Því fylgir umspil um að komast á HM í Brasilíu næsta sumar.
Guðrún segist vera glöð að vera komin til Íslands eftir góðan sigur á Úkraínu sem tryggði þeim þriðja sæti riðilsins. „Þetta var mikilvægur sigur á móti Úkraínu og við erum glaðar að hafa náð því,“ segir Guðrún og viðurkennir að þetta hafi kannski ekki verið fallegasti leikur Íslands. „Við vorum alveg að skapa okkur færi og hefðum getað skorað fleiri mörk, en heilt yfir var þetta fagmannleg frammistaða.“ Leikurinn var mikilvægur fyrir Ísland þar sem sigurinn tryggði Íslandi þriðja sætið í riðlinum. Með þriðja sætinu tryggir Ísland sér mótherja í veikari styrkleikaflokki fyrir HM í Brasilíu næsta sumar. Þrátt fyrir að þriðja sætið sé tryggt segir Guðrún að liðið ætli ekkert að slaka á gegn Spáni. „Það væri ógeðslega gaman að ná að vinna Spánverjana.“ Þó að Spánn sé heimsmeistari þá er þetta frábært próf fyrir íslenska landsliðið. Ef liðið ætlar á HM þarf liðið að geta náð góðri frammistöðu gegn erfiðum liðum. Í fyrri leik riðlakeppninnar gegn Spáni vann Spánn leikinn 3-0. Guðrún segir að það sé ýmislegt sem liðið geti lært af þeim leik. „Við þurfum að þora meira. Þær náðu að ýta okkur langt niður,“ segir Guðrún og bætir við að liðið þurfi að sækja í svæðin sem opnast þegar Spánn stígur upp á völlinn. Viðtalið má sjá í heild sinni í spilara hér að neðan: Klippa: Guðrún Arnardóttir fyrir leik gegn Spáni
HM 2027 í Brasilíu Landslið kvenna í fótbolta Mest lesið Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Haukar halda sigurgöngunni áfram Handbolti Skoraði sitt fyrsta mark í Meistaradeildinni Fótbolti Útskýrir hvers vegna afsökunarbeiðnin fór á samfélagsmiðla Formúla 1 Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Handbolti Verðlaunafé fyrir karla og konur í tennis verði það sama Sport Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Skellur fyrir Arsenal og Grikkland Fótbolti Danmörk - Portúgal 2-4 | Portúgal vann þrátt fyrir fjarveru Ronaldo Fótbolti KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Handbolti Fleiri fréttir Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Ásaka Barcelona um að hafa borgað varaforseta spænskra dómarasamtaka Skellur fyrir Arsenal og Grikkland Skoraði sitt fyrsta mark í Meistaradeildinni Danmörk - Portúgal 2-4 | Portúgal vann þrátt fyrir fjarveru Ronaldo Írland - Austurríki 2-2 | Svekkjandi jafntefli fyrir Heimi Enn er penninn á lofti í Laugardal Hættur við að hætta við að hætta Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Tekur strax við sjöunni af Ronaldo Jesus sveik lærisveininn Fékk gráðuna fyrir viku og lék í djörfu myndbandi Litlu finnsku uglurnar slá í gegn Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Yfirmenn Heimis teknir á teppið Tók boltann með höndum og kostaði Arsenal tvö stig Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Þýsku meistararnir unnu stórsigur í Meistaradeildinni Ída Marín skoraði í stórsigri í Evrópubikarnum Hlín og félagar á leið í 16-liða úrslitin sannfærandi Uppgjörið: Czarni - Breiðablik 1-0 (7-2) | Áttu aldrei séns Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Diljá Ýr skaut Brann í 16-liða úrslitin Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Uppgjörið: Frankfurt - FH 4-1 | Stórliðið batt enda á Evrópudraumi FH Sjá meira