Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Hólmfríður Gísladóttir skrifar 9. júní 2026 06:55 Þótt fallið hafi verið frá þróun nýrrar herþotu munu aðrir þættir verkefnisins mögulega verða að raunveruleika, svo sem þróun dróna og ný hernaðarleg skýjaþjónusta. Getty/Stefan Sauer Stjórnvöld í Þýskalandi og Frakklandi hafa komist að þeirri niðurstöðu að fyrirtæki sem áttu að starfa saman að því að framleiða nýja orrustuþotu muni ekki ná að komast að samkomulagi um verkefnið.
Þau hafa þannig fallið frá verkefninu, sem þykir nokkuð stórt högg fyrir sameiginlegt Evrópuátak í varnarmálum í kjölfar ágengni Rússa og breyttrar afstöðu vestanhafs gagnvart Atlantshafsbandalaginu. Fréttaveitan AFP hefur eftir embættismanni að um hafi verið að ræða sameiginlega niðurstöðu Friedrich Merz, kanslara Þýskalands, og Emmanuel Macron Frakklandsforseta. Samið var um verkefnið árið 2017, í kanslaratíð Angelu Merkel, en nýju þotunum var ætlað að koma í stað Rafale þota Frakka og Eurofighter þotanna sem Þjóðverjar og Spánverjar hafa notast við. Stefnt var að því að taka þoturnar í notkun árið 2040 en verkefnið hefur tafist vegna ágreinings á milli fyrirtækjanna Airbus og Dassault Aviation í Frakklandi. Ágreiningurinn er sagður hafa varðað það hver ætti að fara fyrir verkefninu. Þá eru yfirvöld í Frakklandi og Þýskalandi sögð hafa verið ósammála um hönnun þotunnar enda þarfir þeirra ólíkar, þar sem Frakkar kröfðust þotu sem gæti borið kjarnavopna og lent á flugmóðurskipum. Guardian greindi frá.
Þýskaland Frakkland Hernaður Öryggis- og varnarmál Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Innlent Fjölmenni í héraðsdómi Innlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Fleiri fréttir Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Sjá meira