Hvernig losum við bílinn? Elín Anna Baldursdóttir skrifar 9. júní 2026 09:02 Mikið hefur verið skrifað og rætt um menntamál á Íslandi að undanförnu. Skýrslur hafa verið rýndar, tölur greindar og bent á ýmsar ástæður þess að staðan er eins og hún er. Það er gott og gilt en þegar bíll situr fastur í snjóskafli er ekki endilega besta lausnin að þrasa um það hvernig hann festist heldur ætti fókusinn að vera á það að losa bílinn. Íslenska skólakerfið er ekki komið að hruni. Á hverjum degi vinna kennarar, stjórnendur og annað starfsfólk mikilvægt starf fyrir börn landsins. En það er jafnframt ljóst að álagið á kerfinu hefur aukist verulega. Það sýna rannsóknir, skýrslur og reynsla þeirra sem starfa innan þess. Við megum þó ekki gera þau mistök að líta á skólann sem einangrað kerfi. Skólinn er hluti af stærri heild. Þegar biðlistar lengjast í heilbrigðisþjónustu, aðstoð er ekki nægilega aðgengileg, álag á fjölskyldum er mikið og stuðningur barna byggir á greiningum sem bíða þarf eftir í mörg ár, þá birtist vandinn að lokum inni í skólastofunni. Hlutverk kennara er fyrst og fremst að kenna og þeir eiga ekki einir að bera ábyrgð á öllum þeim samfélagslegu áskorunum sem birtast innan skólans. Þess vegna þurfum við að hætta að leita að einum sökudólgi og byrja að ræða lausnir. Lausnir sem byggja á samvinnu ríkis, sveitarfélaga, skóla, foreldra og fagfólks. Ein mikilvægasta breytingin er að færa þjónustuna nær börnum og fjölskyldum. Of oft þurfa foreldrar að bíða mánuðum eða árum saman eftir mati, greiningu, aðstoð eða sérfræðiþjónustu. Á meðan vex vandinn, sjálfstraust barnsins minnkar og álagið á fjölskylduna eykst. Við þurfum að byggja upp raunverulega snemmtæka íhlutun. Börn eiga ekki að þurfa að falla nógu langt til að fá hjálp. Foreldrar eiga að geta fengið ráðgjöf þegar áhyggjur vakna. Kennarar eiga að geta fengið stuðning áður en vandinn verður yfirþyrmandi. Rétt hjálp þarf að vera aðgengileg á réttum tíma, frá réttum aðila. Það er mikilvægt að við byggjum upp þrepaskipt kerfi sem grípur börn hvort sem um er að ræða námsvanda, tilfinninga- eða hegðunarvanda. Við þurfum að styrkja stoðþjónustu innan og utan skólanna. Byggja upp stuðningskerfi sem veitir aðstoð um leið og börn fara að beygja út af veginum. Við þurfum einnig að ræða hvernig við nýtum fjármagnið innan skólakerfisins. Á síðustu árum hefur stuðningsfulltrúum fjölgað mikið og þeir sinna mikilvægu starfi. En við þurfum að spyrja hvort núverandi fyrirkomulag sé það árangursríkasta til framtíðar. Þegar barn glímir við námsvanda, hegðunarvanda eða félagslegar áskoranir er lausnin oft að bæta við einstaklingsstuðningi. En væri fjármagninu betur varið í fleiri sérkennara, þroskaþjálfa, atferlisfræðinga, talmeinafræðinga og annað fagfólk sem gæti stutt bæði nemendur og kennara? Væri hægt að þróa fjölbreyttari útfærslur þar sem sérþekkingin er nær skólastarfinu sjálfu? Þarf að breyta áherslum í háskólanámi þeirra starfstétta sem koma að skólakerfinu? Á Norðurlöndum hafa víða verið þróaðar leiðir sem byggja á þessari hugsun. Þar er lögð áhersla á teymisvinnu, sérhæfðan stuðning innan skólans og aðlögun námsumhverfisins fremur en að setja alla ábyrgðina á einstaklinga. Slíkar hugmyndir eru ekki töfralausnir en þær minna okkur á að stundum þarf að breyta kerfinu sjálfu, ekki bara bæta fleiri verkefnum ofan á það. Foreldrar hafa einnig mikilvægu hlutverki að gegna. Skólinn getur ekki einn borið ábyrgð á uppeldi barna, skjánotkun, svefni, lestri eða félagsfærni. Sterkt menntakerfi byggir á samstarfi heimila og skóla þar sem allir vinna að sama markmiði. Ríkið þarf sömuleiðis að taka stærri ábyrgð. Ísland er lítið brot í tungumálaumhverfi heimsins sem þarf sjálft að þróa, þýða og gefa út stóran hluta þess námsefnis sem notað er í skólum landsins. Ef við viljum vernda íslenska tungu og tryggja gæði kennslu þarf það að sjást í fjárfestingu í námsefni, stafrænum lausnum og þróunarstarfi. Út frá því ætti Ísland í raun að verja jafn miklu ef ekki meira fjármagni en nágrannalönd okkar í útgáfu námsefnis. Loks þurfum við að nýta gögn betur. Ekki til að finna sökudólga heldur til að sjá hvað virkar. Við eigum að mæla árangur, fylgjast með framvindu og vera tilbúin að breyta um aðferðir þegar aðgerðir skila ekki þeim árangri sem vonast var eftir. Við getum flest verið sammála um markmiðið. Við viljum öll skóla þar sem börn fá tækifæri til að læra, dafna og njóta sín. Leiðin þangað verður ekki fundin með því að halda áfram sömu umræðum og undanfarin ár. Hún krefst þess að við forgangsröðum, endurhugsum og vinnum saman. Bíllinn er fastur í skaflinum. Spurningin snýst ekki lengur um hvernig hann festist heldur hvort við séum tilbúin að vinna saman að því að losa hann. Höfundur er sálfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Mest lesið Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson Skoðun Halldór 19.09.2026 Halldór Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson Skoðun Skoðun Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon skrifar Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo skrifar Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir skrifar Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Nóttin bjargar ekki deginum – hún afhjúpar hann Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Excel-væðing mannlífsins Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Kópavogur er klár – en þið? Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Hvers konar Ísland viljum við byggja? Albertína Friðbjörg Elíasdóttir skrifar Skoðun Fjölmiðlahelsi Sigurður Örn Hilmarsson skrifar Skoðun Að horfa heim Vera Wonder Sölvadóttir skrifar Skoðun Bættar styrkjareglur í menningarborginni Reykjavík Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun EES eftir 29. ágúst 2026 Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun D-vítamín og nýju fötin keisarans Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Eitruð jákvæðni í boði menntakerfisins Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Kröfur eru umhyggja Brynjar Karl Sigurðsson skrifar Skoðun Ákall til stjórnvalda Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Er mér óhætt hér?” sjúklingaöryggi fatlaðs fólks Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Viðskiptaráð með rörsýn á leigumarkaðinn Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Sáttamiðlun í sakamálum á Íslandi? Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Á Reykjavík að hafa þingmenn á Alþingi? Jón Bjarnason skrifar Sjá meira
Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar