Golf

Gunn­laugur Árni fyrstur Ís­lendinga til að tryggja sig inn á U.S. Open

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Gunnlaugur Árni Sveinsson spilaði frábærlega í dag og lét ekki eina slæma holu stoppa sig.
Gunnlaugur Árni Sveinsson spilaði frábærlega í dag og lét ekki eina slæma holu stoppa sig. mynd/LSU

Gunnlaugur Árni Sveinsson verður meðal þátttakenda á U.S. Open risamótinu í golfi í ár eftir að hafa komist í gegnum bráðabana í kvöld. Hann er fyrstur Íslendinga til að tryggja sig inn á Opna bandaríska meistaramótið.

Fjögur sæti voru í boði en fjórir voru jafnir í öðru sætinu og því þurfti bráðabana til að skera úr um það hverjir komast á risamótið.

Úrslitin réðust strax á fyrstu holu bráðabanans þar sem Gunnlaugur Árni hélt haus og kláraði sitt.

Gunnlaugur Árni spilðai frábært golf á lokaúrtökumótinu í Ohio í dag þar sem að spilaðar voru 36 holur og endaði Íslendingurinn knái, sem er á meðal bestu háskólakylfinga í heimi, á níu höggum undir pari líkt og þrír aðrir kylfingar.

Aðeins efsti kylfingur umrædds móts hafði þá tryggt sér farmiða í gegnum lokaúrtökumótið á Opna bandaríska meistaramótið en Gunnlaugur og þrír aðrir kylfingar börðust um þá þrjá farmiða á mótið í bráðabananum.

Beint streymi frá bráðabananum má finna hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×