Wiegman sendi kveðju til Íslands: „Gangi ykkur vel“ Sindri Sverrisson skrifar 8. júní 2026 20:16 Þjálfarinn sigursæli Sarina Wiegman þurfti að horfa upp á lið sitt tapa 4-0 gegn Spáni á föstudaginn og þar með náðu Spánverjar efsta sæti undanriðilsins. Getty/Naomi Baker Englendingar halda í vonina um hjálp frá Íslendingum annað kvöld í baráttunni um að komast á HM kvenna í fótbolta. Þjálfari Englands segir ekkert hægt að útiloka þó að flestir reikni með tapi Íslands gegn heimsmeisturum Spánar.
England steinlá gegn Spáni á útivelli á föstudaginn, 4-0, og þar með dugar Spánverjum að vinna Ísland á Laugardalsvelli á morgun til að tryggja sig inn á HM. Ef Spáni tekst ekki að vinna Ísland þá getur England náð efsta sæti undanriðilsins og komist beint á HM. Annars þurfa Englendingar að fara í sama umspil og Íslendingar en þjóðirnar munu þó ekki geta mæst þar. Wiegman var því spurð um það á blaðamannafundi í dag hvort að hún hefði sent skilaboð til kollega sinna í þjálfarateymi Íslands og var fljót að nýta sjónvarpsvélarnar til að gera það: „Gangi ykkur vel!“ sagði Wiegman áður en hún hélt áfram og sagði: „Ég held alltaf í vonina. Fótbolti er óútreiknanlegur. Auðvitað halda allir fyrir fram að Spánn vinni þennan leik en við höfum svo oft séð óvænt úrslit. Auðvitað vonast ég eftir því en á sama tíma er ég algjörlega einbeitt á okkar lið og það sem við þurfum að gera til að vinna okkar leik. Svo sjáum við til hvað gerist.“ Georgia Stanway og Glódís Perla Viggósdóttir hafa fagnað titlum saman hjá Bayern München og Glódís gæti gert Stanway stóran HM-greiða með því að ná í stig gegn Spáni á morgun.Getty/Hulda Margrét Glódís Perla Viggósdóttir landsliðsfyrirliði, sem til að mynda hefur verið liðsfélagi enska miðjumannsins Georgiu Stanway hjá Bayern München, segir það ekki hafa nein áhrif á íslenska liðið að England vilji hjálp á morgun. „Við erum fyrst og fremst að spila þennan leik fyrir okkur sjálfar. Við skuldum Englandi ekki neitt. Við erum að fara í þennan leik til að vinna hann, auðvitað, hvaða áhrif sem það hefur á þessa undankeppni… Ég hef engar svakalegar áhyggjur af að þessi lið komist ekki bæði á HM, hvernig sem þessi riðill fer. Við förum bara í leikinn til að spila vel og ná í góð úrslit fyrir okkur sjálfar,“ sagði Glódís á blaðamannafundi í dag.
Landslið kvenna í fótbolta HM 2027 í Brasilíu Mest lesið Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Fótbolti Breiðablik - Afturelding 2-1 | Blikar bikarmeistarar í annað sinn Íslenski boltinn Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ Fótbolti FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Fótbolti Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Fótbolti Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Handbolti ÍBV samdi við bandarískan hermann Handbolti Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Enski boltinn Arteta mjög hissa á ummælum Jesus Enski boltinn „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Handbolti Fleiri fréttir „Maður er í þessu til þess að vinna titla“ „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ „Við náðum einum af þessum stóru í ár“ „Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Breiðablik - Afturelding 2-1 | Blikar bikarmeistarar í annað sinn Lagði upp á leið í undanúrslit FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Viktor skoraði í fjórða sigrinum í röð Markasúpa í Noregi Spenntur að sjá rauða hafið í stúkunni Meðvitaðir um pressuna Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Hljóta allir að sjá á hverjum pressan er í þessum leik“ Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Ólafur skilur Magga en er ekki sammála Róbert Frosti með slitið krossband og á leið í aðgerð Sjáðu markaveislur United og Bayern München Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag United aldrei í vandræðum Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Bakverðir til bjargar Frakkar vilja Infantino burt Tvö íslensk hæfileikabúnt til Molde Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta „Vona að það verði enginn munur á vellinum“ Sjá meira