Væntir þess að vera fyrst á markað með hliðstæðu við sjö milljarða dala lyf
Hlutabréfaverð Alvotech hefur rokið upp eftir að félagið greindi frá því að FDA hefði tekið til umsagnar umsókn þess um markaðsleyfi fyrir væntanlega hliðstæðu við lyfið Entyvio. Félagið telur sig vera í sterkri stöðu til að verða fyrst á markað með slíka hliðstæðu bæði í Evrópu og Bandaríkjunum, en frumlyfið selst í dag fyrir meira en sjö milljarða dala á ári.
Tengdar fréttir
Lækka verðmatið og segja Alvotech vera í „biðstöðu“ fram að samþykki FDA
Þótt langtímahorfur á markaði fyrir líftæknilyfjahliðstæður séu góðar þá er útlit fyrir að Alvotech verði áfram í nokkurs konar „biðstöðu“ þangað til FDA gefur grænt ljós á markaðsleyfi í lok ársins, að mati greinenda erlends fjárfestingabanka, og er fjárfestum ráðlagt að fylgjast með fjárhagslegum sveigjanlega félagsins.
Afkoma Alvotech nokkuð undir væntingum og „sjóðsstaða þrengist“
Bæði tekjur og rekstrarhagnaður Alvotech á fyrsta fjórðungi var talsvert undir meðalspá greinenda en þar hefur meðal annars áhrif, að sögn stjórnenda, að hægja þurfti á framleiðslu vegna úrbóta á verksmiðjunni. Gengi bréfa Alvotech hríðlækkaði við opnun markaða en greinendur benda á að lausafjárstaða félagsins „þrengdist hratt“ á fjórðungnum.