Nítján ára með athygli heimspressunnar: „Ekki lengur bara undrabarn“ Aron Guðmundsson skrifar 8. júní 2026 10:31 Fimmti sigur Antonelli í röð í Formúlu 1 mótaröðinni, sá fimmti á ferlinum Vísir/Getty Yfirburðir ítalska ungstirnisins Kimi Antonelli, ökuþórs Formúlu 1 liðs Mercedes, halda áfram í mótaröðinni. Í stærsta íþróttamiðli Ítalíu er hann krýndur nýr konungur yfir Monte Carlo og í spænska stórblaðinu Marca segir að Kimi sé ekki lengur bara ungstirni, heldur eitthvað miklu stærra.
Sigur Antonelli í Mónakó kappakstrinum í gær var hans fimmti á ferlinum og sá fimmti í röð. Engum öðrum ökuþór í sögu Formúlu 1 hefur tekist að vinna sínar fyrstu fimm keppnir í Formúlu 1 allar í röð. Enn fremur er hans yngsti sigurvegari Mónakó kappakstursins frá upphafi Formúlu 1 mótaraðarinnar. En það er ekki bara sú staðreynd að Antonelli hafi unnið Mónakókappaksturinn, heldur það með hversu miklum yfirburðum hann gerði það, sem er farið að láta fólk taka hann alvarlega. Þegar að sex keppnishelgar eru yfirstaðnar á Formúlu 1 tímabilinu er það Antonelli sem trónir á toppi stigakeppni ökuþóra með 156 stig og 66 stiga forskot á Lewis Hamilton, ökuþór Ferrari sem vermir annað sætið. „Nýji konungur Monte Carlo“ Nítján ára gamall hefur Antonelli fangað athygli heimsbyggðarinnar. Hvergi er athyglin hins vegar meiri og ástríðufylli en í heimalandi hans, Ítalíu. Það fékk Antonelli ekkert stöðvað í Mónakó um nýliðna helgiVísir/Getty „Nýji konungur Monte Carlo,“ segir í frét La Gazetta dello Sport um afrek Antonelli og á sama tíma biður liðsstjóri Mercedes, Toto Wolff, ítölsku þjóðina að reyna eftir fremsta merki að halda sér á jörðinni þrátt fyrir frábæra takta Antonelli. „Þegar að hjálmurinn fór á fór Ítalinn ungi yfir í heim sem var algjörlega í hans eigu,“ segir í frétt La Gazetta dello Sport um sigur Antonelli. Spænska stórblaðið Marca sparar þá ekki stóru orðin í garð Antonelli. „Ítalinn er ekki lengur bara undrabarn í hraðasta bílnum á ráslínunni. Hann er að verða eitthvað miklu meira og stærra.“ Antonelli með liðsstjóra og framkvæmdastjóra Formúlu 1 liðs Mercedes, Toto Wolff. Vísir/Getty Sigur Antonelli sé högg fyrir aðra ökuþóra. „Hann vann ekki bara kappaksturinn. Heldur náði þungu sálfræðilegu höggi á keppinauta sína.“ The Guardian segir frammistöðu Antonelli vera á gæðastigi heimsmeistara. Þetta gæti verið fyrsti sigur Antonelli í Mónakó af mörgum. Formúlu 1 keppnistímabilið heldur áfram um komandi helgi þegar að Katalóníu kappaksturinn fer fram á Spáni. Sýn Sport Viaplay er heimili Formúlu 1 á Íslandi.
Akstursíþróttir Mest lesið Af hverju vildu Messi og félagar fá Ísland? Fótbolti Arnar pirraður: „Hræddir að sækja úrslit“ Fótbolti Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Íslenski boltinn HM-dómara neitað um inngöngu í Bandaríkin Fótbolti Andrea opnar sig eftir sjálfsniðurrrif: „Andskotinn hafi það“ Sport Löggan þorði ekki að þiggja miða Fótbolti Eriksen kominn heim og einbeitir sér að fótbolta með krökkunum Fótbolti Segir Eriksen ekki spila aftur sem atvinnumaður Fótbolti „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Á HM eftir „grófa“ leiki með KR í Bestu deildinni Fótbolti Fleiri fréttir Missti af verðlaunapalli og endaði í sjöunda sæti Nítján ára með athygli heimspressunnar: „Ekki lengur bara undrabarn“ Yngsti sigurvegari í sögu Mónakó Keppnin stoppuð eftir árekstur Leclerc Skilur ekki hvers vegna hann keyrir svona hægt Antonelli tók ráspólinn af Verstappen en Russell fer sjötti af stað Liðsstjóri Ferrari á spítala Fleiri lið reyndu að sækja Leclerc Verða fleiri framúrakstrar í Mónakó? Fékk nýjan samning en Ferrari gefur ekki upp árafjöldann Þykja Alpine liðið vera of dýrt Tískuhús blandar sér í Formúlu 1 Gætu þurft að stíga inn í eftir harða baráttu liðsfélaganna Sá fyrsti í sögu Formúlu 1 Antonelli styrkir stöðu sína í efsta sætinu George Russell og Lando Norris úr leik í Kanada Russell á ráspól í Kanada Fjórfaldur heimsmeistari slasaður eftir að brotist var inn til hans Mercedes ökumennirnir halda áfram að berjast Max Verstappen rétt missti af sigri Nítján ára í hóp með Schumacher og Senna Antonelli hélt uppteknum hætti Formúlunni flýtt vegna storms Antonelli fékk færri tilraunir en tók ráspólinn McLaren með bestu sprettina í Miami Heimsmeistarinn fremstur í sprettinum Leclerc sneggstur á æfingum Verstappen fámáll um framtíð sína Sjá meira