Stjórnlaus hraðferð ofan í dauðadal gervigreindar – og leiðin út Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar 9. júní 2026 07:03 Þegar skotið var á hús Sam Altman, forstjóra OpenAI, rofnaði hula. Gervigreindarbyltingin er ekki lengur fræðilegt kaffistofuhjal. Sjálfstýrðir drónar taka nú ákvarðanir um mannslíf á vígvöllum, kosningar drukkna í djúpfölsunum og stórfyrirtæki fela fjöldauppsagnir á bak við orðið „hagræðing“, þegar raunin er einfaldlega sú að vélarnar eru mættar til vinnu. Ég hef ítrekað sagt það í viðtölum undanfarin misseri að ég sé gríðarlega bjartsýnn á gervigreind til lengri tíma litið, en jafn svartsýnn til skamms tíma. Nú er þessi skammtíma svartsýni að raungerast. Við erum stjórnlaus á hraðferð ofan í myrkasta kaflann, sjálfan dauðadalinn, þar sem gömlu kerfin hrynja áður en þau nýju taka við og fyrirtækin sem ekki taka þátt, deyja. Blekkingarleikur og flóttinn út í geim Ferðalagið niður í dalinn er gert margfalt sársaukafyllra af því að umræðan er föst í stríði milli tveggja öfga. Annars vegar höfum við Tækni-trúboðana sem lofa fimmtán stunda vinnuviku í framtíðinni, en loka augunum fyrir því að fólk er að missa lífsviðurværi sitt í dag. Nema þessi elíta samþykki að greiða fyrir umbreytinguna, kallar hún yfir sig allsherjar uppreisn á vinnumarkaði. Hins vegar höfum við Afneitunarsinnana sem trúa að gervigreind sé bara hugbúnaður sem hægt sé að sniðganga, eða jafnvel bara bóla. Við verðum að tala tæpitungulaust: Gervigreind er orðin að grunninnviðum. Að berjast gegn henni er eins og að deila við þyngdaraflið. Að standa kyrr á ströndinni tryggir einfaldlega að flóðbylgjan skelli á þér. Á meðan þessir pólar rífast á sér stað stærsta eignatilfærsla mannkynssögunnar. Sömu tæknirisar og eiga stærstu líkönin sem taka nú yfir atvinnulífið verja auðæfum sínum í geimferðakapphlaup og neðanjarðarbyrgi. Þeir eru að smíða sér björgunarbáta á meðan við hin sitjum eftir til að takast á við afleiðingarnar. Við sjáum þegar teikn á lofti um það sem koma skal. Menntatæknifyrirtækið Chegg varð eitt af fyrstu fórnarlömbunum og missti stærstan hluta markaðsvirðis síns við tilkomu ChatGPT. Síðan þá hefur bylgjan stækkað, og nú sjáum við alþjóðleg þjónustuver á borð við Teleperformance og atvinnumiðlanir, líkt og Fiverr, taka þung högg á mörkuðum eftir því sem gervigreindin tekur yfir störf. Þetta er engin tilviljun, heldur bara forsmekkurinn að því sem koma skal þegar gervigreindin gerir hefðbundnar lausnir úreltar á einni nóttu. Við munum vita að við erum raunverulega á botninum þegar gervigreindin veldur stórri, óafvitandi krísu á mörkuðum eða í lýðræðisríki. Ljósið sjáum við ekki fyrr en ný nálgun á velferð, hvort sem það verða borgaralaun (UBI), tryggð grunnþjónusta (UBS) eða jafnvel almennur aðgangur að reikniafli (UBC), breytist úr pólitískri hugmyndafræði í neyðaraðgerð ríkisstjórna til að bjarga hagkerfinu, og tæknin fer loks að skila almennum lækningum inn í brotin heilbrigðiskerfi. Eina leiðin í gegn: Tryggt eignarhald og Agentar Við getum ekki beðið eftir því að stórveldin komi sér saman um reglurnar. Jafnvel þótt stjórnendur stærstu gervigreindarfyrirtækja heims, á borð við Anthropic, kalli nú eftir allsherjar frystingu á gervigreindarþróun af ótta við að mannkynið missi stjórnina, mun kapphlaupið halda áfram. Við getum ekki setið með hendur í skauti og vonað að einhver annar finni bremsuna. Sem íslensk þjóð getum við komist heil og höldnu í gegnum þennan storm ef við smíðum okkar eigin björgunarbát. Sú lausn heitir samfélagsleg valdefling, þar sem við nýtum tæknina til að „Agent-væðast“ á okkar eigin forsendum. Við getum ekki sætt okkur við að verða stafræn nýlenda sem leigir allt sitt hugvit af erlendum tæknirisum. Sem betur fer eigum við margt af því sem til þarf. Miðað við höfðatölu erum við risaveldi í uppbyggingu gagnavera, þar sem fyrirtæki líkt og atNorth sýna að við höfum bæði plássið og grænu orkuna. En það dugar ekki að eiga bara húsnæðið; við verðum að tryggja að hluti af þessu gríðarlega reikniafli (e. compute) verði frátekinn og aðgengilegur fyrir íslenskt atvinnulíf og stjórnvöld þegar alþjóðlegur skortur skellur á. Samhliða því höfum við unnið stórvirki í að kenna erlendum líkönum íslensku ásamt því að þjálfa algjörlega innlend mállíkön. Þetta tryggir að íslensk fyrirtæki geti keyrt sína eigin gervigreind á staðnum án þess að senda viðkvæmustu gögn sín úr landi. Grunnurinn er til staðar, en hið opinbera verður að stíga fastar til jarðar til að styðja þennan ramma með gáfulegri löggjöf og tryggja íslenskt stafrænt fullveldi. Umfram allt þarf skólakerfið að stökkbreytast; við eigum ekki að banna gervigreind í skólum heldur kenna næstu kynslóð að stjórna henni. Þessi ábyrgð nær einnig beint til íslenskra stjórnenda. Í stað þess að kaupa tilbúna sjálfstýrða gervigreindar-agenta til þess eins að fækka fólki, verða fyrirtæki að nýta tæknina til að valdefla sína eigin starfsmenn. Fyrirtækin sem munu blómstra eru þau sem verja tíma og fjármagni í að kenna fólkinu sínu að nota Agenta. Þannig breytum við hefðbundnum starfsmönnum í hljómsveitarstjóra þar sem við tæknivæðum ferlana en manngerum þjónustuna. Fyrir okkur sem einstaklinga er lausnin hvorki fólgin í því að flýja í afneitun né að trúa í blindni á draumsýn tæknirisanna. Það verður að vera persónulegt markmið hvers og eins að kynna sér þessi nýju verkfæri og byrja að nota þau. Sá sem „Agent-væðir“ sjálfan sig í dag tryggir sitt eigið atvinnuöryggi á morgun. Dauðadalur gervigreindarinnar er brattur, en ef við tökum í stýrið saman getum við siglt örugglega í gegnum storminn og komið sterkari út hinum megin. Fyrir mörg fyrirtæki getur þetta skref engu að síður virst yfirþyrmandi. Það er nákvæmlega þess vegna sem markviss ráðgjöf í gervigreindarinnleiðingu og stefnumótun verður lykilatriði á næstu misserum. Þau fyrirtæki sem leita sér faglegrar aðstoðar við að kortleggja vegferðina og valdefla starfsfólk sitt munu ekki aðeins lifa dalinn af, heldur koma út sem sigurvegarar. Það er kominn tími til að hefja þá vinnu. Höfundur er ráðgjafi í nýsköpun og gervigreind. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Björgmundur Örn Guðmundsson Mest lesið Bönnum Rússa en ekki Ísraela Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir Skoðun Íslenskir bændur berskjaldaðir í boði RÚV Heiðbrá Ólafsdóttir Skoðun Af hverju vill ríkisstjórnin neyða bændur til að taka á móti norskum froskköfurum? Arndís Kristjánsdóttir Skoðun Dýrasta land heims í nafni sjálfstæðisins Inga Valgerður Henrikssen Skoðun Hvernig losum við bílinn? Elín Anna Baldursdóttir Skoðun Stærsta hættan við gervigreind er ekki tæknin heldur hik stjórnenda Gísli Rafn Ólafsson Skoðun Uppskrift að lakari samkeppnishæfni fiskeldis Heiðrún Lind Marteinsdóttir Skoðun Að geyma þá í myrkri: Varðhaldsmiðstöðin sem Ísland á ekki að reisa Nichole Leigh Mosty Skoðun Skilgreiningarvald mennskunnar Erna Mist Skoðun Á að brenna ólesnar bækur? Jón Páll Haraldsson Skoðun Skoðun Skoðun Hræsni siðferðisriddara Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun „Við erum svo eitruð að við gætum ekki flokkast sem matvara“ Anna María Björnsdóttir skrifar Skoðun Er drónaskapur dónaskapur? Björn Steinbekk skrifar Skoðun Greining Kolbrúnar Bergþórsdóttur á geðástandi andstæðinga ESB Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Þegar allt virðist vera í lagi í vinnunni Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Um mögulega 20 km styttingu Hringvegar á Norðurlandi vestra Jónas B. Guðmundsson skrifar Skoðun Íslenskir bændur berskjaldaðir í boði RÚV Heiðbrá Ólafsdóttir skrifar Skoðun Stærsta hættan við gervigreind er ekki tæknin heldur hik stjórnenda Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Hvernig losum við bílinn? Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Að geyma þá í myrkri: Varðhaldsmiðstöðin sem Ísland á ekki að reisa Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Uppskrift að lakari samkeppnishæfni fiskeldis Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Af hverju vill ríkisstjórnin neyða bændur til að taka á móti norskum froskköfurum? Arndís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Á að brenna ólesnar bækur? Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Bönnum Rússa en ekki Ísraela Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Skoðun Stjórnlaus hraðferð ofan í dauðadal gervigreindar – og leiðin út Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Í upphafi skal endinn skoða Íris Eva Gísladóttir,Ársæll Guðmundsson,Jóhanna Stella Oddsdóttir,Simon Cramer Larsen,Helga Þórðardóttir skrifar Skoðun Skilgreiningarvald mennskunnar Erna Mist skrifar Skoðun Dýrasta land heims í nafni sjálfstæðisins Inga Valgerður Henrikssen skrifar Skoðun Hugleiðingar um meðferð á beiðni um DNA rannsókn á mannabeinum í grafreit Lára Magnúsardóttir skrifar Skoðun Hvenær ætlar ríkisstjórnin að hætta að ljúga að sjálfri sér – og okkur? Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Ef þetta væri barnið þitt Arnar Kjartansson skrifar Skoðun Eru áfengiskaup verndandi þáttur? Dagbjört Harðardóttir skrifar Skoðun Hvenær er maður þjófur og hvenær er maður ekki þjófur? Einar Helgason skrifar Skoðun Gerðu það sem ég segi, ekki það sem ég geri! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Frá fullveldi til Brussel Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Fögnum Heimsdegi hafsins 8. júní Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Er íslenskan að verða gestur í eigin landi? Petra María Ingvaldsdóttir skrifar Skoðun Barátta við náttúru og yfirvald Jón Steinar Sæmundsson skrifar Skoðun STEM ævintýrið á Íslandi: Lausn við PISA-vandanum eða táknræn stefnumótun? Maren Davíðsdóttir skrifar Skoðun „Mamma, sjáðu, útlendingur!“ – Hvenær hættir maður að vera útlendingur? Valerio Gargiulo skrifar Sjá meira
Af hverju vill ríkisstjórnin neyða bændur til að taka á móti norskum froskköfurum? Arndís Kristjánsdóttir Skoðun
Skoðun Stærsta hættan við gervigreind er ekki tæknin heldur hik stjórnenda Gísli Rafn Ólafsson skrifar
Skoðun Að geyma þá í myrkri: Varðhaldsmiðstöðin sem Ísland á ekki að reisa Nichole Leigh Mosty skrifar
Skoðun Af hverju vill ríkisstjórnin neyða bændur til að taka á móti norskum froskköfurum? Arndís Kristjánsdóttir skrifar
Skoðun Stjórnlaus hraðferð ofan í dauðadal gervigreindar – og leiðin út Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar
Skoðun Í upphafi skal endinn skoða Íris Eva Gísladóttir,Ársæll Guðmundsson,Jóhanna Stella Oddsdóttir,Simon Cramer Larsen,Helga Þórðardóttir skrifar
Skoðun Hugleiðingar um meðferð á beiðni um DNA rannsókn á mannabeinum í grafreit Lára Magnúsardóttir skrifar
Skoðun Hvenær ætlar ríkisstjórnin að hætta að ljúga að sjálfri sér – og okkur? Kristinn Karl Brynjarsson skrifar
Skoðun STEM ævintýrið á Íslandi: Lausn við PISA-vandanum eða táknræn stefnumótun? Maren Davíðsdóttir skrifar
Skoðun „Mamma, sjáðu, útlendingur!“ – Hvenær hættir maður að vera útlendingur? Valerio Gargiulo skrifar
Af hverju vill ríkisstjórnin neyða bændur til að taka á móti norskum froskköfurum? Arndís Kristjánsdóttir Skoðun