Hvalir éta frá okkur fiskinn? Valgerður Árnadóttir skrifar 7. júní 2026 11:31 Það er lífseig sú mýta að hvalirnir séu að éta frá okkur fiskinn og að þess vegna þurfi að veiða hvali. Þegar fiskistofnar sveiflast eða afli minnkar er þægilegt að benda á stærstu dýr hafsins og gera þau að sökudólgum. En rannsóknir sýna fram á að sveiflurnar orsakast af samverkandi þáttum, ofveiði, mengun, loftslagsbreytingar, hækkandi hitastig og súrnun sjávar eru aðal orsakavaldar þess að sjávarstofnar sveiflast. Allt eru þetta manngerð vandamál sem menn geta og ættu að leysa, en því fer fjarri að lausnin sé að fækka enn frekar í hvalastofnum. Nýlegar rannsóknir á vistkerfi sjávar sýna að hvalir eru ekki ógn við fiskistofna heldur mikilvægur hluti af kerfinu sem heldur hafinu heilbrigðu og frjósömu. Skíðishvalir, eins og langreyðar, nærast fyrst og fremst á átu og smáum uppsjávartegundum neðarlega í fæðukeðjunni, ekki á þeim nytjafiskum sem íslenskur sjávarútvegur byggir afkomu sína á. Samkvæmt skýrslunni Hvalir í vistkerfi sjávarer skörun milli fæðuvals hvala og íslensks sjávarútvegs lítil og ekki talin marktæk. Hvalir gefa meira en þeir taka. Þegar hvalir kafa djúpt eftir æti og koma síðan upp að yfirborði til að anda og losa úrgang flytja þeir næringarefni eins og köfnunarefni, fosfór og járn upp í yfirborðslag sjávar. Þessi næring virkar eins og náttúrulegur áburður fyrir hafið. Svifþörungar dafna, frumframleiðsla eykst og grunnur allrar fæðukeðju hafsins styrkist. Ný rannsókn sem birtist í vísindaritinuPNAS árið 2025 sýndi að næringarefni frá hvölum gætu aukið frumframleiðslu sjávar um allt að 10% á sumum hafsvæðum. Með öðrum orðum: fleiri hvalir = meiri fæða fyrir fiska. Mynd: Roman and McCarthy 2010. Hvalir eru mikilvægir í baráttunni við loftslagsvá. Eitt stórhveli bindur um 33 tonn af kolefni yfir ævina. Þegar hvalur deyr og sekkur til botns flyst kolefnið niður í djúpsjó þar sem það getur varðveist í aldir. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur bent á að endurheimt hvalastofna geti aukið kolefnisbindingu hafsins verulega og eru því mikilvægir í baráttunni gegn loftslagsbreytingum. Taprekstur af hvalveiðum og stopul störf. Iðnaðarhvalveiðar á Íslandi hafa ekki reynst arðbærar á þessari öld. Samkvæmt opinberum gögnum tapaði Hvalur hf. þrem milljörðum króna á veiðunum á árunum 2012–2020. Á sama tíma er hvalaskoðun á Íslandi ein mikilvægasta og arðbærasta ferðaupplifun landsins sem skilar Íslandi um 3,6 milljörðum króna árlega og laðar að sér hundruð þúsunda ferðamanna á hverju ári. Hvalveiðar eru hinsvegar stopul og ótrygg atvinnugrein þar sem ekki er lengur markaður fyrir hvalkjöt og hafa veiðar ekki farið fram síðustu tvö ár þrátt fyrir gild veiðileyfi. Forstjóri Hvals hf., Kristján Loftsson, sagði sjálfur opinberlega að verð á japanska markaðnum væri "svo lágt að það er ekki réttlætanlegt að fara á veiðar." Japansmarkaður, sem er eini útflutningsmarkaðurinn, er í samdrætti og hafa fulltrúar japanskra fyrirtækja lýst því yfir að engar afurðir verða keyptar frá Íslandi þar sem japönsk fyrirtæki vilja sitja ein að markaðnum. Nýlegur dómur féll í máli fyrrverandi starfsmanna Hvals hf., sem eftir stöðvun veiðitímabilsins árið 2023 lögðu fram bótakröfur vegna vangoldinna launa. Niðurstaða dómstóla var þó sú að aðeins tveir fastráðnir starfsmenn áttu rétt á greiðslum en kröfum þriggja vertíðarbundinna starfsmanna var hafnað. Þetta sýnir að umræðan um „mikla atvinnusköpun“ vegna hvalveiða stenst illa nánari skoðun. Á meðan hvalaskoðun styður hundruð starfa víða um land virðist atvinnugrundvöllur hvalveiða bæði ótryggur og ósjálfbær. Það er ekki hægt að veiða stórhveli á mannúðlegan máta Opinberar skýrslur Matvælastofnunar um langreyðaveiðar árin 2022 og 2023 sýndu að 40% hvala sem skotnir voru dóu ekki samstundis heldur eftir langdregin dauðastríð sem gátu varað í allt að tvær klukkustundir. Fjórðungur dýra voru skotin oftar en einu sinni og töluvert margar kefldar hvalkýr voru veiddar og líflaus fóstrin dregin úr kviði þeirra. Niðurstaða MAST var sú að veiðiaðferðirnar uppfylltu ekki kröfur laga um velferð dýra. Fagráð um velferð dýra komst að sömu niðurstöðu og gaf það út að ekki væri hægt að tryggja mannúðlegar veiðar á hvölum. Þegar allt þetta er lagt saman er ómögulegt að réttlæta áframhaldandi hvalveiðar. Hvalveiðar eru hvorki nauðsynlegar fyrir stjórn fiskistofna né efnahagslega mikilvægar fyrir samfélagið. Þær skaða ímynd Íslands, grafa undan náttúruvernd og ganga gegn þeirri þekkingu sem við höfum í dag um mikilvægi hvala fyrir hafið sjálft. Það er kominn tími til að hætta að kenna hvölum um sveiflur í fiskistofnum, sú orðræða er ekki á rökum reist. Hvalir eru ekki að éta fiskinn „frá okkur”, þeir eru þvert á móti að stuðla að aukinni fæðu fyrir fiska og heilbrigði hafsins. Hvet öll sem er annt um heilbrigði hafs og vistkerfis sjávar að skrá sig í Hvalavini - Vernd Hafsins og leggja okkur lið að berjast fyrir vernd hvala og ábyrgri umgengni um hafið. Það má skrá sig hér! Höfundur er formaður Hvalavina og MSc nemi í Umhverfis- og Auðlindafræði við Háskóla Íslands Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hvalir Hvalveiðar Umhverfismál Valgerður Árnadóttir Mest lesið Fullveldi þjóðar og fullveldi ríkis Þorsteinn Siglaugsson Skoðun Hver bauð Baudenbacher? Sigurður Sigurðsson Skoðun ,,Taktu lyfin þín“ Ása Lind Finnbogadóttir Skoðun Þegar hagsmunir á hundruðum milljarða mæta lýðræðinu Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað metum við mest? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Mannréttindi eiga ekki að vera pólitískt þrætuefni María Mist Þórs Sigursteinsdóttir Skoðun Er skólinn að kenna barninu þínu að lesa? Ertu viss? Andri Þorvarðarson Skoðun MR vinnur gegn markmiðum menntayfirvalda Óttar Kolbeinsson Proppé Skoðun Það er margt sem ég ekki skil Elinóra Inga Sigurðardóttir Skoðun Sverð Íslands og skjöldur Daði Már Kristófersson Skoðun Skoðun Skoðun Sverð Íslands og skjöldur Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Þegar hagsmunir á hundruðum milljarða mæta lýðræðinu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Europe’s Second Soul Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Fullveldi þjóðar og fullveldi ríkis Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun ,,Taktu lyfin þín“ Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Hver bauð Baudenbacher? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Kúvending eða ferð til fjár? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hinsegin fólk á vinnumarkaði – Frá tölum til aðgerða Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin er heimskur, síljúgandi siðblindingi Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ein borg, minna kerfi og betri nýting fjármuna Sölvi Breiðfjörð skrifar Skoðun Það er margt sem ég ekki skil Elinóra Inga Sigurðardóttir skrifar Skoðun Er skólinn að kenna barninu þínu að lesa? Ertu viss? Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Hvað metum við mest? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Tæknilausnir og lesblindir Guðmundur S. Johnsen skrifar Skoðun Mannréttindi eiga ekki að vera pólitískt þrætuefni María Mist Þórs Sigursteinsdóttir skrifar Skoðun MR vinnur gegn markmiðum menntayfirvalda Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar Skoðun Réttmæt kjörskrárvinnsla Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Látum ekki sumarið koma okkur aftur á óvart í Kópavogi Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Á Ísland að segja sig úr UEFA? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvar eigum við heima? Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Já er uppgjöf og Nei er ekki nóg Ágústa Árnadóttir skrifar Skoðun Hversu lengi eigum við að bíða? Kristín María Birgisdóttir skrifar Skoðun Akkeri og trygging fyrir Ísland Gunnar Örn Gunnarsson skrifar Skoðun Afborgunarlaus lán eru ekki neyðarúrræði – svar við dritdreifingu Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hörmuleg húsnæðisstaða ungs fólks á Íslandi Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki gjöf stjórnvalda Jón Þorsteinn Sigurðsson skrifar Skoðun Heilsuspillandi aðbúnaður fanga er dýrt stjórnunarlegt fúsk Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun 29. ágúst ‒ Fullveldið endurheimt? Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Fyrsta jáið skiptir máli Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Atvinnulífið ætti að vilja sjá samninginn Margrét Guðmundsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Mannréttindi eiga ekki að vera pólitískt þrætuefni María Mist Þórs Sigursteinsdóttir skrifar
Skoðun Afborgunarlaus lán eru ekki neyðarúrræði – svar við dritdreifingu Halldór Jörgen Olesen skrifar