Þekking sem mótar land, byggð og samfélag Þórður Már Sigfússon skrifar 5. júní 2026 11:32 Í dag brautskrást átta nemendur með meistaragráðu í skipulagsfræði frá Landbúnaðarháskóla Íslands. Það er ánægjulegur áfangi fyrir útskriftarnemana sjálfa en ekki síður fyrir íslenskt samfélag sem stendur frammi fyrir sífellt flóknari verkefnum í skipulagsmálum. Skipulagsfræði snýst um að móta umhverfi okkar til framtíðar. Hún fjallar um samspil samfélags, atvinnulífs, náttúru og byggðar og leitast við að finna jafnvægi milli ólíkra hagsmuna og þarfa. Á tímum hraðra breytinga, loftslagsáskorana, þéttingar byggðar, orkuuppbyggingar og aukinnar ásóknar í land og auðlindir hefur mikilvægi faglegrar skipulagsvinnu sjaldan verið meira. Sumum kann að þykja sérstakt að meistaranám í skipulagsfræði sé kennt við Landbúnaðarháskóla Íslands. Í alþjóðlegu samhengi er það þó alls ekki óvenjulegt. Víða um Evrópu eru skipulagsnámsleiðir kenndar við háskóla sem eiga rætur í landbúnaðar-, umhverfis- og náttúruvísindum. Þar er viðurkennt að skipulagsmál snúast ekki aðeins um borgir og byggingar heldur einnig um landnotkun, landslag, vistkerfi, matvælaframleiðslu og sjálfbæra nýtingu lands. Á undanförnum árum hafa menntaðir skipulagsfræðingar markað sífellt dýpri spor í íslenskum skipulagsmálum; hjá sveitarfélögum, ríkisstofnunum og á ráðgjafarmarkaði. Þekking þeirra á stefnumótun, samráði, greiningu og framtíðarsýn er mikilvæg forsenda þess að hægt sé að taka upplýstar ákvarðanir um þróun samfélagsins. Þrátt fyrir það má færa rök fyrir því að enn sé svigrúm til að efla stöðu skipulagsfræðinnar innan íslenskrar stjórnsýslu. Skipulagsmál verða sífellt umfangsmeiri en fagþekking skipulagsfræðinga nýtist ekki alltaf sem skyldi við stefnumótun og ákvarðanatöku. Efla þarf fagið, fjölga tækifærum fyrir skipulagsfræðinga og tryggja að skipulagsleg sjónarmið hafi eðlilegt vægi þegar teknar eru ákvarðanir um framtíð og þróun byggðar. Fyrir hönd Skipulagsfræðingafélags Íslands óska ég verðandi nýútskrifuðum skipulagsfræðingum innilega til hamingju með áfangann. Samfélagið hefur þörf fyrir þekkingu þeirra, sýn og fagmennsku. Höfundur er formaður Skipulagsfræðingafélags Íslands (SFFÍ). Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skipulagsmál Skóla- og menntamál Mest lesið Halldór 29.08.26 Halldór Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff skrifar Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Fullveldi er ekki stofustáss María Kristín Gylfadóttir skrifar Sjá meira
Í dag brautskrást átta nemendur með meistaragráðu í skipulagsfræði frá Landbúnaðarháskóla Íslands. Það er ánægjulegur áfangi fyrir útskriftarnemana sjálfa en ekki síður fyrir íslenskt samfélag sem stendur frammi fyrir sífellt flóknari verkefnum í skipulagsmálum. Skipulagsfræði snýst um að móta umhverfi okkar til framtíðar. Hún fjallar um samspil samfélags, atvinnulífs, náttúru og byggðar og leitast við að finna jafnvægi milli ólíkra hagsmuna og þarfa. Á tímum hraðra breytinga, loftslagsáskorana, þéttingar byggðar, orkuuppbyggingar og aukinnar ásóknar í land og auðlindir hefur mikilvægi faglegrar skipulagsvinnu sjaldan verið meira. Sumum kann að þykja sérstakt að meistaranám í skipulagsfræði sé kennt við Landbúnaðarháskóla Íslands. Í alþjóðlegu samhengi er það þó alls ekki óvenjulegt. Víða um Evrópu eru skipulagsnámsleiðir kenndar við háskóla sem eiga rætur í landbúnaðar-, umhverfis- og náttúruvísindum. Þar er viðurkennt að skipulagsmál snúast ekki aðeins um borgir og byggingar heldur einnig um landnotkun, landslag, vistkerfi, matvælaframleiðslu og sjálfbæra nýtingu lands. Á undanförnum árum hafa menntaðir skipulagsfræðingar markað sífellt dýpri spor í íslenskum skipulagsmálum; hjá sveitarfélögum, ríkisstofnunum og á ráðgjafarmarkaði. Þekking þeirra á stefnumótun, samráði, greiningu og framtíðarsýn er mikilvæg forsenda þess að hægt sé að taka upplýstar ákvarðanir um þróun samfélagsins. Þrátt fyrir það má færa rök fyrir því að enn sé svigrúm til að efla stöðu skipulagsfræðinnar innan íslenskrar stjórnsýslu. Skipulagsmál verða sífellt umfangsmeiri en fagþekking skipulagsfræðinga nýtist ekki alltaf sem skyldi við stefnumótun og ákvarðanatöku. Efla þarf fagið, fjölga tækifærum fyrir skipulagsfræðinga og tryggja að skipulagsleg sjónarmið hafi eðlilegt vægi þegar teknar eru ákvarðanir um framtíð og þróun byggðar. Fyrir hönd Skipulagsfræðingafélags Íslands óska ég verðandi nýútskrifuðum skipulagsfræðingum innilega til hamingju með áfangann. Samfélagið hefur þörf fyrir þekkingu þeirra, sýn og fagmennsku. Höfundur er formaður Skipulagsfræðingafélags Íslands (SFFÍ).
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar
Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar