Árásir á Pétursborg á fyrsta degi fjárfestaráðstefnu Pútíns Samúel Karl Ólason skrifar 3. júní 2026 13:59 Mikinn reyk bar yfir Pétursborg í dag. AP Úkraínumenn gerðu í morgun árásir með langdrægum drónum á olíuinnviði og hernaðarleg skotmörk í Pétursborg. Miklir eldar kviknuðu við árásirnar en árleg viðskiptaráðstefna hófst í Pétursborg í morgun. Úkraínumenn segjast hafa ráðist á að minnsta kosti tuttugu olíuvinnslur á undanförnum 33 dögum.
Í þessu tilfelli var drónunum flogið um 1.100 kílómetra frá Úkraínu til Pétursborgar. Þar voru þeir notaðir til að ráðast á olíudælustöð í höfn Pétursborgar. Einnig var ráðist á herstöð á svæðinu en þar lenti dróni á rússneskri korvettu. Hún er hluti af Eystrasaltsflota Rússa og hafði verið í slipp frá því í febrúar. Hversu mikið hún skemmdist í árásinni liggur ekki fyrir. ❗️Ukraine’s Unmanned Systems Forces hit Russia’s Boiky corvette in the Veleshchinsky dry dock in Kronstadt on June 3. The Project 20380 guided-missile corvette belongs to the Baltic Fleet and had been under planned repair since February 2026 after missions for the Russian Navy.… pic.twitter.com/4dHKjGSsd4— NOELREPORTS 🇪🇺 🇺🇦 (@NOELreports) June 3, 2026 Þá réðust Úkraínumenn einnig á skotmörk í Tamobv-héraði í Rússlandi, sem er í um sex hundruð kílómetra fjarlægð frá Úkraínu. Financial Times hefur eftir yfirmanni í úkraínska hernum að ráðist hafi verið á að minnsta kosti tuttugu olíuvinnslur í Rússlandi á undanförnum 33 dögum. Þessar árásir eru taldar hafa komið verulega niður á olíuframleiðslu í Rússlandi, sem er helsta tekjulind ríkisins. Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, hefur lengi kallað þessar árásir skilvirkustu „refsiaðgerðirnar“ gegn Rússlandi. New York Times segir þó að deilt sé um skilvirkni þessara árása meðal ráðamanna í Úkraínu. Einhverjir telji að þær muni ekki höggva nægilegt skarð í fjárhag Rússa til að binda enda á stríðið en að þær hafi þess í stað mikil sálræn áhrif á Rússa. Our long-range sanctions carried out by the warriors of the Security Service of Ukraine, the Unmanned Systems Forces, the Special Operations Forces, the Defense Intelligence of Ukraine, and the State Border Guard Service of Ukraine have yielded good results. Important facilities… pic.twitter.com/esxYMexU8d— Volodymyr Zelenskyy / Володимир Зеленський (@ZelenskyyUa) June 3, 2026 AP fréttaveitan segir að árásirnar á Pétursborg séu niðurlægjandi fyrir Vladimír Pútín, forseta Rússlands, sem fæddist í borginni og haldi mikið upp á áðurnefnda ráðstefnu. Þetta komi í kjölfar þess að hann hélt mun smærri skrúðgöngu í Moskvu í síðasta mánuði en gengur og gerist þegar Rússar halda upp á sigur gegn Þjóðverjum í seinni heimsstyrjöldinni. Á ráðstefnunni í Pétursborg reyna Rússar að laða að erlenda fjárfesta en henni hefur oft verið líkt við ráðstefnu Alþjóðaefnahagsráðsins í Davos. Delegates of the St Petersburg International Economic Forum arriving at the opening ceremony as the St Petersburg port (10 miles away) burns in the background, following a wave of Ukrainian strikes. Video posted by Ksenia Sobchak https://t.co/SuL4mL1Qd0 pic.twitter.com/8r26Dstas3— Yaroslav Trofimov (@yarotrof) June 3, 2026 Loka þurfti flugvellinum í Pétursborg í um fimm klukkustundir vegna árásanna. Á einhverjum tímapunkti reyndu lögregluþjónar að skjóta úkraínska dróna niður með rifflum. Áhugasamir geta séð fleiri myndbönd hér. What was air defense doing in St. Petersburg? This is what air defense was doing in St. Petersburg. Except some small arms, non-existent. See how Ukrainian strike drones hit oil terminal infrastructure one by one. #Russia pic.twitter.com/C8NeEpcdNR— NOELREPORTS 🇪🇺 🇺🇦 (@NOELreports) June 3, 2026 Langdrægar árásir fá meira vægi Rússum hefur ekki vegnað vel á víglínunni í Úkraínu á undanförnum vikum og jafnvel mánuðum. Verulega hefur hægt á framsókn þeirra þar, þó þeir sæki enn fram á nokkrum stöðum, og er talið að mannfall hafi aukist. Samhliða þessari þróun hafa Rússar aukið verulega á dróna- og eldflaugaárásir sínar á úkraínskar borgir og bæi. Það er á sama tíma og Úkraínumenn eiga erfiðara með að verða sér úti um flugskeyti í Patriot-loftvarnarkerfi þeirra, sem notuð eru til að verjast rússneskum skotflaugum.
Rússland Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Hernaður Vladimír Pútín Tengdar fréttir Ellefu látnir í umfangsmiklum árásum Rússa Að minnsta kosti ellefu eru látnir eftir umfangsmiklar árásir Rússa á Kænugarð, Kharkív og Dnipro. Þá eru tugir særðir og einhverjir fastir undir húsarústum. 2. júní 2026 07:33 Frakkar tóku skuggaskip á Atlantshafi Franskir hermenn gerðu áhlaup um borð í olíuflutningaskip sem talið er hafa verið notað til að komast hjá viðskiptaþvingunum og refsiaðgerðum gegn Rússlandi. Skipið var stöðvað á alþjóðlegu hafsvæði með aðstoð annarra ríkja, eins og Bretlands, en Frakkar hafa stöðvað nokkur skuggaskip á undanförnum mánuðum. 1. júní 2026 08:45 Ver billjónum í „draumóra“ um lengra líf Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hefur gert rannsóknir sem ætlað er að lengja líf fólks að forgangi í Rússlandi. Umfangsmiklum fjármunum hefur verið varið í rannsóknir sem snúa meðal annars að því að rækta ný líffæri og þá meðal annars inn í smásvínum og í kælimeðferðir. 29. maí 2026 12:48 Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Innlent Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Innlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Fleiri fréttir Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Tígrisdýrið verður ekki aflífað Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Fær aukadag til stjórnarmyndunar Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Leó páfi á leið í aðgerð eftir að hnútur fannst á lunga Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Vill nýjan Úkraínuforseta Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Níu létust eftir skotárás Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Sjá meira
Ellefu látnir í umfangsmiklum árásum Rússa Að minnsta kosti ellefu eru látnir eftir umfangsmiklar árásir Rússa á Kænugarð, Kharkív og Dnipro. Þá eru tugir særðir og einhverjir fastir undir húsarústum. 2. júní 2026 07:33
Frakkar tóku skuggaskip á Atlantshafi Franskir hermenn gerðu áhlaup um borð í olíuflutningaskip sem talið er hafa verið notað til að komast hjá viðskiptaþvingunum og refsiaðgerðum gegn Rússlandi. Skipið var stöðvað á alþjóðlegu hafsvæði með aðstoð annarra ríkja, eins og Bretlands, en Frakkar hafa stöðvað nokkur skuggaskip á undanförnum mánuðum. 1. júní 2026 08:45
Ver billjónum í „draumóra“ um lengra líf Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hefur gert rannsóknir sem ætlað er að lengja líf fólks að forgangi í Rússlandi. Umfangsmiklum fjármunum hefur verið varið í rannsóknir sem snúa meðal annars að því að rækta ný líffæri og þá meðal annars inn í smásvínum og í kælimeðferðir. 29. maí 2026 12:48