Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Valur Páll Eiríksson skrifar 2. júní 2026 08:02 Kolbeinn Kristinsson var illa út leikinn eftir rosalegan og blóðugan bardaga. Vísir/Lýður Valberg Kolbeinn Kristinsson tók þátt í sínum tuttugasta bardara í boxhringnum um helgina og vann sinn tuttugasta sigur. Hann hefur sjaldan þurft að hafa eins mikið fyrir hlutunum í blóðugum bardaga.
Kolbeinn Kristinsson hélt ferilskrá sinni sem atvinnuboxari flekklausri þegar hann vann Tékkann Pavel Sour með tæknilegu rothöggi á einkar blóðugu boxkvöldi í Kaupmannahöfn. Blóðmagnið á sér vart hliðstæðu. „Þetta var helvítis bras,“ segir Kolbeinn og hlær. „Heldur betur blóðbað. Ég var einmitt að pæla í því í gær hvort það sé ekki slæmt að missa svona mikið blóð. Þetta var örugglega lítri.“ Kolbeinn var heldur ófrýnilegur að sjá og bar sólgleraugu í viðtalinu til að hylja tvö myndarleg glóðaraugu. Hann segir líðanina betra en útlitið. „Mér líður bara vel. Maður einhvern veginn er bara búinn að berjast og svo heldur lífið áfram,“ segir Kolbeinn. Kolbeinn tognaði í kálfa tveimur dögum fyrir bardagann. Hann fór heldur hægt af stað í bardaga laugardagsins. Var meiðslunum um að kenna? „Það ruglaði aðeins í manni, fótavinnan var ekki alveg sú sama. En það var þessi skalli sem sló mig aðeins út af laginu. Ég fékk þetta högg upp úr engu einhvern veginn. Það ruglaði mann smá og svo bara blæddi ótrúlega mikið,“ segir Kolbeinn og bætir við: „Það fór í augun á mér og eitthvað. Ég sagði lækninum að það væri ekki að gerast en maður segir ekki alltaf satt.“ Iðulega hefur Kolbeinn unnið sína bardaga nokkuð þægilega og ekki fengið aðra eins áskorun eða blóðbað. Var þetta ekki öðruvísi áskorun? „Þetta var það heldur betur. Þetta er skemmtileg lífsreynsla að eiga í bankanum og við tökum þetta með okkur í reynslubankann áfram.“ Hvað tekur nú við? „Aðeins að recovera og fara yfir það sem fór úrskeiðis. Það er bara að bæta það og svo í haust tökum við eitthvað stórt.“ Viðtalið má sjá í spilaranum. Varað er við myndefninu sem fylgir fréttinni.
Box Mest lesið Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa Fótbolti FIFA: Örflagan sýnir enga snertingu við vírinn Fótbolti Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Körfubolti Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Fótbolti Hissa á útspili Haalands Fótbolti McGregor entist aðeins í 69 sekúndur Sport Haaland eldri hraunar yfir dómarana Fótbolti Maður dagsins á HM: Öldungar á rassinum og nærbuxur Kim Kardashian Fótbolti Metið kolféll í Laugavegshlaupinu Sport Sýður á Svisslendingum Fótbolti Fleiri fréttir „Mikil saga og mikill sársauki“ Sýður á Svisslendingum Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Haaland eldri hraunar yfir dómarana Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum McGregor entist aðeins í 69 sekúndur Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Argentínsk goðsögn fallin frá FIFA: Örflagan sýnir enga snertingu við vírinn Maður dagsins á HM: Öldungar á rassinum og nærbuxur Kim Kardashian Sveindís og stöllur unnu toppliðið Felldi tár og sendi fingurkoss til himna Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Dagskráin í dag: Líflegur dagur í Bestu deildinni Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Bellingham sendi sára Norðmenn heim Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa „Ástæðan fyrir því að það er talað um að hún sýni ekki nóg“ Héldu flugi eftir sigurinn á Íslandi og drottna yfir EM U19 Metið kolféll í Laugavegshlaupinu Hissa á útspili Haalands Hélt haus eftir hrun og vann vinkonu sína í úrslitum Wimbledon FH leiðir í bikarnum og ungir ÍR-ingar fögnuðu titli Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik „Frakkar eiga að óttast okkur“ Óðinn óstöðvandi í stórsigri Messi ræður sjálfur hvort hann taki vítin Klopp samþykkir að taka við Þýskalandi Ken Bates látinn Suður-Afríka syrgir landsliðsmann skömmu eftir HM Sjá meira