Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Árni Sæberg skrifar 29. maí 2026 16:00 Kristján Björnsson, fyrrverandi vígslubiskup. Vísir/Magnús Hlynur Séra Kristján Björnsson lét af embætti vígslubiskups í Skálholti eftir að kona sem tengist honum fjölskylduböndum kærði hann fyrir kynferðisbrot til Lögreglunnar á Suðurlandi.
Þetta herma heimildir Vísis innan úr Þjóðkirkjunni en Ríkisútvarpið greindi fyrst frá málinu. Halda spilunum þétt að sér Vísir hefur reynt að fá það staðfest hjá Lögreglunni á Suðurlandi að kæra liggi fyrir en hún heldur spilunum þétt að sér. Grímur Hergeirsson lögreglustjóri segist ekki kannast við kæru en segist þó ekki vera inni í öllum málum. Jón Gunnar Þórhallsson yfirlögregluþjónn kveðst ekkert geta tjáð sig um málið. Heimir Hannesson, samskiptastjóri Þjóðkirkjunnar, staðfestir í samtali við Vísi að séra Kristján hafi látið af embætti í mars en segir kirkjuna að öðru leyti ekki geta tjáð sig um málefni einstakra starfsmanna. Þá hefur Vísir ekki náð tali af séra Kristjáni. Sagðist hættur til að hleypa breytingum að Heimildir Vísis herma að Kristján hafi verið boðaður á fund biskups Íslands í mars og þá hefði biskup þegar fengið heimild stjórnar Þjóðkirkjunnar til að svipta séra Kristján embætti. Konan kærði hann til lögreglu í september síðastliðnum en málið rataði ekki á borð kirkjunnar fyrr en í mars. Innan viku frá fundi með biskup hafði Kristján sagt af sér embætti. Séra Kristján sagði í viðtali við Morgunblaðið í lok mars að hann hefði látið af embætti vígslubiskups vegna nýrra starfsreglna um vígslubiskupa, sem voru samþykkta á kirkjuþingi helgina 20. til 22 mars. Reglurnar nýju gilda ekki um sitjandi vígslubiskup heldur aðeins eftirmenn þeirra og Kristján sagðist ekki hefðu viljað standa í vegi fyrir breytingum og því sagt af sér.
Þjóðkirkjan Kynferðisofbeldi Bláskógabyggð Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Sjá meira