Viðskipti erlent

Bora eftir jarð­hita á Tenerife

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Magnús Ásbjörnsson, forstjóri Reykjavík Geothermal segir um mikil tímamót að ræða.
Magnús Ásbjörnsson, forstjóri Reykjavík Geothermal segir um mikil tímamót að ræða.

Reykjavík Geothermal, í samstarfi við stjórnvöld og orkufyrirtæki á Tenerife, hefur hafið jarðhitaboranir til raforkuframleiðslu á Kanaríeyjum. Verkefnið er sagt marka stór tímamót í vegferð eyjanna í átt að hreinni, öruggari og staðbundinni orkuframleiðslu.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu. Þar segir að Reykjavík Geothermal sé leiðandi eigandi og þróunaraðili verkefnisins ásamt spænskum samstarfsaðilum og opinberum aðilum á Tenerife og komi að uppbyggingu verkefnisins allt frá rannsóknum og fjármögnun til þróunar og framtíðarreksturs. Meðal samstarfsaðila Reykjavík Geothermal er spænska fyrirtækið DISA sem er eitt stærsta fyrirtæki eyjanna og stærsti fjárfestir í hreinni orku Kanaríeyja,

Sögulegur áfangi í verkefninu hafi náðst um miðjan maí þegar boranir hófust á fyrstu rannsóknarholunni sem staðsett er á suðurhluta Tenerife. Verkefnið byggi á margra ára undirbúningsvinnu samstarfsaðilanna, sem tryggðu sér rannsóknarleyfi frá spænskum yfirvöldum á Tenerife og nágrannaeyjunni La Palma í opinberum útboðum 2023. 

Gríðarleg vinna sé að baki í jarðvísindarannsóknum og hinum ýmsu leyfisferlum, grenndarkynningum, skipulagsmálum og vinnu með hagaðilum. Núverandi lagaumhverfi geri það vandasamt að selja þá orku sem verkefnið gæti framleitt, vegna sérreglna sem skekkja orkumarkaðinn á Kanaríeyjum með því að niðurgreiða orkuframleiðslu með olíu og koma þannig í veg fyrir að ódýrari og hreinni orka komist að. Þróunaraðilar verkefnisins treysti þó á að spænsk stjórnvöld muni skapa skilyrði fyrir því að hreinni, hagkvæmari og sjálfbærari orkulausnir fái að ryðja sér til rúms á orkukerfi eyjanna.

„Verkefnið hefur jafnframt hlotið öflugan stuðning frá Evrópusambandinu og spænskum stjórnvöldum, sem hafa veitt allt að 58 milljónir evra í styrki til rannsóknarborana á allt að þremur svæðum samstarfsaðilanna á Tenerife og einu svæði á nágrannaeyjunni La Palma. Verkefnið markar mikilvægt skref í átt að auknu orkuöryggi og orkusjálfstæði Kanaríeyja. Í dag byggir yfir 80% raforkuframleiðslu á Kanaríeyjum á innfluttri olíu, sem leiðir af sér orkukostnað sem er allt að sex sinnum hærri en á Íslandi og mikla kolefnislosun,“ segir í tilkynningunni.

Á Tenerife, sem sé um tvö prósent af stærð Íslands sé þegar mikið landsvæði helgað vind- og sólarorkuverkefnum, sem taka að jafnaði um tíu sinnum meira pláss en jarðhitaverkefni. Því hafi yfirvöld á eyjunni gefið út að ekki verði lagst í fleiri stóra vind- og sólarorkugarða að svo stöddu. Ekkert vatnsafl sé að hafa og litlar grynningar sem mætti nýta fyrir vindorkugarða á hafi, svo jarðhitinn gæti verið eini raunhæfi möguleiki eyjanna til að tryggja sjálfbæra framtíð með orkuskiptum í raforkuframleiðslu, að því er fullyrt í tilkynningunni.

Íslensk þekking og reynsla sé í lykilhlutverki

Verkefnið sé dæmi um hvernig íslensk sérþekking og fjárfesting í jarðhita geti stutt við orkuskipti og aukið orkuöryggi á nýjum mörkuðum. Ef rannsóknarboranirnar reynist árangursríkar gætu þær rutt brautina fyrir uppbyggingu jarðhitavirkjana á Tenerife og stutt við langtímamarkmið Kanaríeyja um minni kolefnislosun, aukið orkuöryggi og meira sjálfstæði í orkumálum.

„Rannsóknarholan, sem nú er verið að bora, er staðsett í suðurhlíðum Teide-eldfjallsins og er sú fyrsta af nokkrum fyrirhuguðum rannsóknarholum sem ætlað er að meta jarðhitamöguleika eyjanna. Holunum, sem munu ná niður á um 2.500–3.000 metra dýpi, er ætlað að staðfesta hvort auðlindin henti til langtímaframleiðslu á endurnýjanlegri orku.“

Stór tímamót

Þá segir í tilkynningunni að samstarf Reykjavík Geothermal og yfirvalda og fyrirtækja á Kanaríeyjum endurspegli sameiginlega sýn um að efla endurnýjanlega orku og styðja við hreinni og sterkari orkuframtíð Kanaríeyja.

„Þetta eru stór tímamót bæði fyrir verkefnið sjálft og framtíð endurnýjanlegrar orku á Kanaríeyjum,“ segir Magnús Ásbjörnsson, forstjóri Reykjavík Geothermal.

„Kanaríeyjar eru eyjur í miðju Atlantshafinu sem eru háðar innfluttri olíu til orkuframleiðslu – rétt eins og Ísland var vel fram á seinni helming 20. aldarinnar. Það var alls ekki sjálfsagt fyrir okkur Íslendinga á þeim tíma að taka þá áhættu að veðja á jarðhitann með þeim hætti sem við gerðum, með bjartsýni og framsýni að vopni. Nú er komið að Kanaríeyjum að taka sama skref, í samstarfi heimafólks og okkar Íslendinga.“

„Reykjavík Geothermal var stofnað til þess að vinna að nákvæmlega svona verkefnum.Við trúum á jarðhitann og á íslenska þekkingu, og viljum því ekki bara selja hana út í heim heldur fjárfesta með heimafólki í að nýta þeirra jarðhitaauðlindir. Þannig sýnum við viljann í verki og stuðlum að sjálfbærari, sterkari, grænni og ódýrari orkukerfum sem skapa störf og bæta lífsgæði.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×