Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Tómas Arnar Þorláksson skrifar 28. maí 2026 11:55 Biðlað er til ökumanna að sýna aðgát. vísir/anton brink Sumarhret gengur yfir norðaustanvert landið í dag með snjókomu og strekkingsvindi. Líf- og fuglafræðingur við Mývatn segir um áhyggjuefni að ræða fyrir fuglalíf og sauðfé á svæðinu.
Gular veðurviðvaranir taka gildi á Norðurlandi eystra og Austurlandi klukkan þrjú í dag og verða í gildi fram eftir degi á morgun. Gert er ráð fyrir slyddu og snjókomu með köflum og átta til þrettán metrum á sekúndu á Norðurlandi eystra en snjókomu í innsveitum og á heiðum á Austurlandi með norðaustan strekkingi. Bændur á svæðinu hafa verið hvattir til að huga að lömbum sínum næstu daga. Fréttastofa ræddi við bændur sem hafa gripið til ráðstafana vegna þessa í gær. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir um áhyggjuefni að ræða fyrir bændur norðan heiða. „Þeir eru nú þokkalega undirbúnir. Þetta er búið að eiga sér aðdraganda en samt er ágætt að segja frá því að þetta er alls ekki jafn slæmt og hretið sem gerði á sama tíma árið 2024 og heldur ekki jafn slæmt og hretið sem gerði aftur í fyrra 2025.“ „Það kemur til með að gera slydduhraglanda og snjókomu til fjalla frá því bara seinni partinn í dag eða í kvöld og meira og minna á morgun, föstudag. Það varðar þá fyrst og fremst bændur sem eru á Norðausturlandi, sem sagt austan Eyjafjarðar og á Austurlandi og þá frekar inn til landsins, eins og í Mývatnssveit og fram í Dölum, en svo snjóar til fjalla og það er líka það að það gerir hálku og krapa og jafnvel snjó á fjallvegum eins og Fjarðarheiðinni“ Hann biðlar til ökumanna að sýna aðgát. „Þeir þurfa að fara varlega og það er þá frekar fyrri part dags og á morgnana sem er krapi og hálka á vegum heldur en yfir miðjan daginn.“ En er eitthvað annað hret í kortunum sem þú sérð í náinni framtíð? „Nei svo er nú bara svona hæg sumarkoma eins og við eigum von á á þessum árstíma. Vonandi erum við lausir við þessar dreggjar af vetrinum fyrir norðan landið, bara fyrir fullt og allt.“ Sölvi Rúnar Vignisson, líf- og fuglafræðingur sem leiðir náttúrurannsóknarstarf við Mývatn, segir um viðkvæman árstíma að ræða í samtali við fréttastofu. „Svona hret getur náttúrulega haft töluverð áhrif á fuglalíf. það er aðeins mismunandi hvaða tegundir þar geta orðið fyrir mestum áhrifum en það er í raun betra að það sé fyrr helur en seinna því að þá eru fuglarnir enn á eggjum og minni líkur á að ungar drepist. Ungarnir eru töluvert viðkvæmari en eggin. Þetta er samt á mörkunum, það er alveg hætt við því að þetta hafi einhver áhrif.“ Hann segir að veðrið geti einnig haft áhrif á minni fugla og annað líf á svæðinu. „Auðvitað hefur maður líka bara áhyggjur af landbúnaðinum. Það eru túnin og lömbin, lömbin eru nú flest komin út svo það er ekki gott. Ég veit að bændur eru stressaðir.“
Veður Landbúnaður Fjarðabyggð Sauðfé Fuglar Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Fleiri fréttir Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Sjá meira