Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Agnar Már Másson skrifar 27. maí 2026 23:40 Tankurinn gaf sig. AP Ellefu manns eru taldir af eftir að efnatankur í pappírsverksmiðju gaf sig í Washington gær, þriðjudag.
Yfirvöld hafa staðfest að hið minnsta tveir séu látnir og telja engar líkur á að hinir níu séu á lífi. Björgunarsveitir hófu aftur í dag leit að þeim níu manns sem taldir eru af eftir að tankurinn gaf sig í gær í Longview í Washington. Átta aðrir slösuðust þegar tankurinn gaf sig hjá Nippon Dynawave Packaging Co. Þar á meðal var slökkviliðsmaður sem fékk aðhlynningu og var útskrifaður af sjúkrahúsi. Frá verksmiðjunni. Um 40 þúsund manns búa í long view.AP Yfirvöld sögðu í dag að úr tanki pappírsverksmiðjunnar hefðu lekið meira en 1,9 milljónir lítra af afar skaðlegri efnablöndu er kallast á ensku „white liquor“, en það er eins konar natrúmhýdroxíðbasi sem notaður er við pappírsframleiðslu. Eftir að hafa frestað leitinni vegna áhyggna af því að tankurinn gæti hrunið frekar komust björgunarsveitir að því að hann innihélt minni vökva en upphaflega var talið og væri því nógu stöðugur til að hefja aftur leit að þeim sem saknað er. Viðbragðsaðilar sögðu að leitin yrði hæg og skipulögð. „Við vitum ekki hvar þau níu eru öll,“ er haft eftir Scott Goldstein, slökkviliðsstjóra í Cowlitz-sýslu, í umfjöllun AP. Yfirvöld sögðu að slysið hefði ekki áhrif á andrúmsloft eða neysluvatn í Longview, sem er við Columbia-ána. Þau sögðu þó að hluti mengunarinnar hefði borist í ána og að rannsóknir stæðu yfir.
Bandaríkin Vinnuslys Mest lesið Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Fleiri fréttir Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Sjá meira