Háhyrningar vöktu lukku Eiður Þór Árnason skrifar 26. maí 2026 19:31 Ljósmyndirnar voru teknar á fimmta tímanum í dag. Aðsend Háhyrningar sáust við Sky Lagoon í Kópavogi síðdegis í dag. Vakti það mikla athygli meðal baðgesta og starfsmanna þegar nokkrir þeirra syntu inn í Nauthólfsvík. „
Þetta kemur mér ekkert stórkostlega á óvart. Við höfum séð hvali reglulega hérna hjá okkur, oftast seli svo sem, en hvalir koma alveg fyrir og við eigum bara mjög eftirminnileg augnablik með þeim. En þetta er reyndar í fyrsta sinn sem ég heyri af háhyrningum,“ segir Ragnheiður Harpa Haraldsdóttir, markaðs- og upplifunarstjóri Sky Lagoon, sem fékk að heyra um háhyrningana frá samstarfsmönnum sínum. „Þetta er alltaf jafn magnað og mikil upplifun að sjá þetta og maður finnur það líka hjá gestunum. Þetta alveg gerir daginn og ferðina jafnvel.“ Ein fjölskylda hafi til að mynda verið búin að útbúa lista yfir hluti sem þau vildu upplifa í ferð sinni til Íslands og undir lokin hafi þau einungis átt eftir að fara í Sky Lagoon og sjá seli. „Þau voru á leiðinni upp á flugvöll þegar þau fóru til okkar og sáu selina þar. Þannig að fólk er alveg að slá tvær flugur í einu höggi þarna.“ Lykilkonur hjá Sky Lagoon. Ragnheiður Harpa Haraldsdóttir, Helga María Albertsdóttir, Ása Valdimarsdóttir og Mariane Úlfarsdóttir. Aðsend Gaman sé fyrir gesti og starfsfólk að upplifa þetta saman: „Þetta er alveg ótrúlegt þegar þetta gerist.“ Ragnheiður segir að dýrin stoppi yfirleitt stutt utan við lónið en selir séu þar eitthvað lengur. Eitt sinn hafi starfsmaður hrifist af fallegu sólarlagi og farið inn í gufubað eftir að allir gestir voru farnir til að taka upp myndband. „Það er búið að loka og sólin er að setjast og hann tekur vídeó og svo bara allt í einu heyrist í honum hálfpartinn öskra, af því að það hoppar hvalur þarna upp úr sjónum.“ „Við erum bara ótrúlega heppin að fá að eiga svona mikla nánd við náttúruna innan höfuðborgarinnar.“
Mest lesið Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Heiða greinir frá morðhótunum Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Mikil spenna í veðurkortunum Innlent Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Innlent Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Innlent Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Innlent Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Innlent Fleiri fréttir Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Nýr bæjarstjóri, morðhótanir og afar samrýmdar systur Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Bein útsending: Kynna meirihlutasáttmála og nýjan bæjarstjóra Hafnarfjarðar Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Mikil spenna í veðurkortunum Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Heiða greinir frá morðhótunum Selja húsnæðið vegna andstöðu íbúa Komu vélarvana fiskibát til hjálpar Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Sátt á þingi um þjóðaratkvæði og beðið eftir fréttum úr borginni Bein útsending: Borgarfulltrúar kveðja „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Afbókuðu hantaveiruskipið í maí en enn væntanlegt í ágúst Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Hafi ekki hætt þrátt fyrir ítrekuð högg frá konunni Matvælastofnun kærir hótanir til lögreglu Valdimar kveður sáttur en segir síðustu daga krefjandi Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í rafhlaupahjóli innandyra Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Sjá meira