Vilhjálmur verður bæjarstjóri Samúel Karl Ólason skrifar 21. maí 2026 17:34 Vilhjálmur Árnason, verðandi bæjarstjóri Reykjanesbæjar. Vísir/Vilhelm Vilhjálmur Árnason, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ, verður bæjarstjóri en hann og Gunnlaugur Kárason, oddviti Miðflokksins, skrifuðu í dag undir málefnasáttmála nýs meirihluta. Gunnlaugur verður formaður bæjarráðs.
Þá verður Margrét Þórarinsdóttir úr Sjálfstæðisflokknum forseti bæjarstjórnar. Greint var frá því í gær að samkomulag um meirihlutasamstarf flokkanna væri í höfn. Fyrir kosningarnar, þegar Vilhjálmur var kynntur sem bæjarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins sagði hann að hann myndi einungis segja af sér sem þingmaður ef hann yrði pólitískt kjörinn bæjarstjóri. Sjá einnig: Meirihlutasamstarf í höfn í Reykjanesbæ Í málefnasáttmála Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins segir að leiðarstef bæjarfulltrúa flokkanna verði að íbúar njóti góðrar þjónustu, fjölbreyttra tækifæra og öflugra innviða. Leggja á áherslu á að skapa umhverfi sem styður við atvinnulíf, nýsköpun og fjárfestingu og þá á einnig að styrkja rekstur bæjarins. það sé forsenda öflugra innviða og góðrar þjónustu. Þá hyggst meirihlutinn ætla að setja skýr mörk í málefnum hælisleitenda og flóttamanna og segir í sáttmálanum að markmiðið verði að tryggja að „íbúar búi við góða öryggistilfinningu og að Reykjanesbær beri ekki meiri byrðar en önnur sveitarfélög í málaflokknum.“ Sáttmálann í heild má finna hér að neðan. Ný sókn í bæ tækifæranna Málefnasáttmáli Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins í Reykjanesbæ 2026–2030 Samstarf Sjálfstæðisflokks og Miðflokks byggir á sameiginlegri sýn um öflugan, framsækinn og fjölskylduvænan Reykjanesbæ þar sem ábyrgur rekstur, sterk þjónusta og markviss uppbygging fara saman. Leiðarstef meirihlutans er að Reykjanesbær verði samfélag í fremstu röð þar sem íbúar njóta góðrar þjónustu, fjölbreyttra tækifæra og öflugra innviða. Á komandi kjörtímabili verður lögð áhersla á skýra forgangsröðun, skilvirka stjórnsýslu og framkvæmdamiðað vinnulag. Samstarfið byggir á ábyrgð, trausti og vilja til að vinna hratt og vel í þágu bæjarbúa. Ákvarðanir verða teknar með hagsmuni samfélagsins að leiðarljósi og áhersla verður lögð á öfluga og aðgengilega þjónustu fyrir fólk á öllum aldri. Meirihlutinn mun leggja áherslu á að skapa umhverfi sem styður við atvinnulíf, nýsköpun og fjárfestingu þannig að hér verði til fjölbreytt og vel launuð störf. Undir stjórn meirihlutans verður unnið að því að styrkja rekstur bæjarins enda er sterk fjárhagsstaða forsenda öflugra innviða og góðrar þjónustu. Áhersla verður lögð á ábyrga fjármálastjórn og að fjármunir bæjarins nýtist sem best í þágu íbúa. Reykjanesbær stendur á mikilvægum tímamótum með mörg tækifæri til uppbyggingar. Lögð verður áhersla á metnaðarfulla og sjálfbæra uppbyggingu í skipulags-, samgöngu- og umhverfismálum, skýra framtíðarsýn og gott samráð við íbúa og fyrirtæki bæjarins. Menntun, íþróttir, menning og öflugt félagsstarf eru meðal helstu styrkleika Reykjanesbæjar. Meirihlutinn mun styrkja áfram skólastarf, bæta þjónustu við börn og fjölskyldur og tryggja að aðstaða til íþrótta, tómstunda og menningarstarfs þróist í takt við þarfir samfélagsins. Meirihlutinn hyggst setja skýr mörk í málefnum hælisleitenda og flóttamanna til að tryggja að íbúar búi við góða öryggistilfinningu og að Reykjanesbær beri ekki meiri byrðar en önnur sveitarfélög í málaflokknum. Með ábyrgri stjórn og skýrri sýn ætlar meirihlutinn að byggja upp samfélag sem fólk er stolt af að búa í, starfa í og ala upp fjölskyldur sínar í. Núna hefst nýtt sóknarskeið í bæ tækifæranna. Ábyrg fjármál og skilvirkur rekstur Meirihlutinn ætlar að ráðast í markvissa endurskoðun á rekstri bæjarins. Við munum fara yfir fjármálin með gagnrýnum hætti, nýta fjármuni betur og skapa svigrúm til að lækka skatta á heimili og fyrirtæki. Nýr meirihluti mun vinna að því að lækka fasteignaskatta og tryggja að hækkandi fasteignamat leiði ekki sjálfkrafa til aukinna álaga á bæjarbúa. Meirihlutinn mun tryggja fulla fjármögnun verkefna áður en framkvæmdir hefjast og leggja áherslu á vandaða verkefnastýringu með það að markmiði að áætlanir standist og þannig sé vel farið með fé skattgreiðenda. Verkefni kjörtímabilsins: Framkvæma heildarúttekt á fjármálum sveitarfélagsins Hagræða í rekstri og auka gagnsæi í stjórnsýslu Endurskoða fjármagnsskipan bæjarins með það að markmiði að lækka fjármagnskostnað og ná fram hagstæðari kjörum. Forgangsraða grunnþjónustu og reglubundnu viðhaldi innviða Styrkja tekjugrunn sveitarfélagsins með öflugra og fjölbreyttara atvinnulífi Einfalda stjórnsýslu og stytta boðleiðir innan sveitarfélagsins Íþróttir Öflugt íþróttastarf hefur lengi verið einn af styrkleikum sveitarfélagsins. Meirihlutinn vill efla íþróttahreyfinguna enn frekar og tryggja að öll börn og ungmenni geti tekið þátt í íþróttastarfi, óháð efnahag eða félagslegri stöðu. Áhersla verður lögð á aukinn stuðning við íþróttafélögin, bætta aðstöðu og sterkt samstarf við íþróttahreyfinguna um framtíðarsýn og uppbyggingu mannvirkja. Verkefni kjörtímabilsins: Tryggja jafnt aðgengi barna að íþróttum óháð efnahag og félagslegri stöðu Gera samninga við íþróttafélögin um aukinn stuðning og lækkun æfingagjalda Byggja upp skilvirkt samstarf við íþróttafélögin með samráði og sameiginlegri stefnumótun Tryggja gervigras á knattspyrnuvelli í samráði við knattspyrnuhreyfinguna Tryggja samkeppnishæfa aðstöðu fyrir iðkendur fimleika Efla og þróa áfram miðlægt íþrótta- og tómstundasvæði sveitarfélagsins Atvinnulíf og tækifæri Reykjanesbær er í einstakri stöðu á Íslandi vegna nálægðar við alþjóðaflugvöll, hafnir og öfluga innviði. Þessi staða skapar samkeppnisforskot á önnur sveitarfélög sem við þurfum að nýta til fulls. Góð lífskjör og sterk þjónusta byggjast á öflugu og fjölbreyttu atvinnulífi þar sem nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi fá að njóta sín. Þar verða til störf, fleiri tækifæri fyrir bæjarbúa og tekjur sem standa undir grunnþjónustunni okkar. Meirihlutinn mun vinna að því að Reykjanesbær verði fyrsti kostur fyrir fyrirtæki þar sem skýrt skipulag, lágar álögur, hraði í ákvarðanatöku og jákvætt viðmót skapa umhverfi þar sem hugmyndir verða að veruleika. Meirihlutinn mun styðja við vöxt mikilvægra stoða samfélagsins, svo sem Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, Lögreglunnar á Suðurnesjum og Fjölbrautaskóla Suðurnesja, enda gegna þær lykilhlutverki í áframhaldandi vexti bæjarins. Verkefni kjörtímabilsins: Vinna markvisst að því að fá afhent landsvæði í eigu Kadeco og ríkisins í bænum Markaðssetja styrkleika svæðisins til að laða að ný fyrirtæki og auka fjárfestingu Halda gjöldum og álögum í lágmarki Þróa ný atvinnusvæði og flýta uppbyggingu núverandi svæða Tryggja gott samstarf við fyrirtæki í sveitarfélaginu Styðja við að skipastóll Landhelgisgæslunnar verði staðsettur í Reykjanesbæ Markaðssetja Reykjanesbæ sem áfangastað fyrir ferðamenn Efla frumkvöðlastarf og nýsköpun með sterkari tengingu atvinnulífs, menningar og skóla Tryggja nauðsynlegar vegtengingar að atvinnusvæðum Skipulag og uppbygging Skipulag bæjarins hefur bein áhrif á daglegt líf fólks og mikilvægt er að uppbygging innviða haldi í við vöxt sveitarfélagsins. Meirihlutinn vill auka framboð húsnæðis sem íbúar kalla eftir, hraða nauðsynlegri innviðauppbyggingu og skapa jafnvægi í þróun hverfa bæjarins þannig að íbúar geti valið sér húsnæði sem hentar þeim og atvinnulífið fái svigrúm til að vaxa. Við ætlum að gera fólki kleift að byggja meira og borga minna með því að afnema innviðagjaldið sem fráfarandi bæjarstjórn setti á fót. Verkefni kjörtímabilsins: Stórauka framboð lóða fyrir sérbýli, meðal annars með því að ljúka skipulagsvinnu við Keflavíkurborgir Fella niður innviðagjaldið og skapa hvata sem hraða uppbyggingu og draga úr lóðabraski Auka framboð atvinnulóða með áherslu á lítil og meðalstór fyrirtæki Tengja betur saman bæjarhluta, meðal annars Ásbrú og Ásahverfi Efla miðbæinn sem lifandi hjarta bæjarins Breyta fyrirhuguðu skipulagi við Akademíureit Tryggja að ekki sé þrengt að einkabílnum Útlendingamál Meirihlutinn leggur áherslu á ábyrga og skýra stefnu í útlendingamálum þar sem hagsmunir bæjarbúa, öryggi samfélagsins og geta innviða sveitarfélagsins eru höfð að leiðarljósi. Meirihlutinn leggur áherslu á farsæla aðlögun innflytjenda að íslensku samfélagi og þar gegna menntakerfið og íþróttastarf lykilhlutverki. Reykjanesbær hefur um langt skeið borið óeðlilega miklar byrðar vegna móttöku hælisleitenda og flóttafólks og ljóst er að núverandi staða er ekki sjálfbær. Mikilvægt er að sveitarfélagið taki ekki á sig frekari skuldbindingar í málaflokknum. Meirihlutinn leggur jafnframt áherslu á að þeir sem setjast að í Reykjanesbæ virði íslensk lög, gildi og samfélagsreglur og taki virkan þátt í samfélaginu. Skýr mörk, ábyrg stefna og aukinn fyrirsjáanleiki eru forsenda öryggis, samheldni og trausts í samfélaginu. Verkefni kjörtímabilsins: Ekki gera nýja flóttamannasamninga við ríkið á komandi kjörtímabili Tryggja að kostnaður vegna hælisleitenda falli ekki á sveitarfélagið Setja skýr mörk og skapa fyrirsjáanleika í málaflokknum Styðja innflytjendur til virkrar þátttöku og aðlögunar að íslensku samfélagi Leikskólar Meirihlutinn mun taka skýra forystu í málaflokknum með það að markmiði að lækka inntökualdur barna, efla mönnun og tryggja fjölskyldum öruggari og betri þjónustu. Áhersla verður lögð á að styrkja faglegt starf leikskólanna, bæta starfsaðstæður starfsfólks og tryggja jafnræði milli leikskóla sveitarfélagsins. Meirihlutinn mun setja á fót sérstakt leikskólaráð til að vinna markvisst að því að bæta þjónustu sveitarfélagsins í málaflokknum. Verkefni kjörtímabilsins: Lækka inntökualdur barna í leikskóla og vinna markvisst að því að útrýma biðlistum Styðja starfsfólk til náms og fjölga leikskólakennurum og fagmenntuðu starfsfólki Jafna aðstæður milli leikskóla sveitarfélagsins Bæta starfsaðstæður kennara og starfsfólks Stytta biðtíma eftir sérfræðiþjónustu og leggja áherslu á snemmtæka íhlutun Gera þjónustukönnun til hagaðila um hvort vilji sé til að skoða breytingar á skipulögðum lokunum leikskóla Umhverfi, fegrun og lífsgæði Gott umhverfi skiptir máli fyrir heilsu, vellíðan og daglegt líf íbúa. Meirihlutinn vill byggja upp bæ þar sem fólk nýtur þess að vera, með grænum svæðum, góðum stígum og aðgengilegum áfangastöðum fyrir alla aldurshópa. Verkefni kjörtímabilsins: Þróa stórt útivistarsvæði með áherslu á aðgengi og upplifun íbúa og gesta Byggja upp fjölskyldusvæði í Innri-Njarðvík Efla græn svæði og bæta ásýnd bæjarins Tengja hverfi betur með göngu- og hjólastígum Efla áfangastaði fyrir íbúa og gesti Styrkja skólalóðir sem útivistarsvæði Samgöngur Samgöngur hafa bein áhrif á lífsgæði, öryggi og aðgengi íbúa að vinnu, skóla og þjónustu. Meirihlutinn vill bæta umferðarflæði, auka öryggi og stuðla að skilvirkum samgöngum sem styðja við daglegt líf fólks. Áhersla verður lögð á að bæta tengingar innan bæjarins og við helstu atvinnu- og þjónustusvæði. Verkefni kjörtímabilsins: Bæta umferðarflæði með breikkun gatna og nýjum hringtorgum, til dæmis Njarðarbraut, og göng við Ásahverfi Forgangsraða tengingum Reykjanesbrautar við Grænás Efla almenningssamgöngur innan bæjarins og við flugstöðina Styðja við íþrótta- og tómstundastarf barna með betra aðgengi og öruggari leiðum Setja umferðaröryggi í forgang í allri skipulags- og framkvæmdavinnu Halda áfram uppbyggingu göngu- og hjólastíga í og um bæinn Samfélag fyrir alla – betri velferð Meirihlutinn vill velferðarþjónustu sem styður fólk til sjálfstæðis á eigin forsendum. Áhersla verður lögð á aðgengilegt og skilvirkt stuðningskerfi sem byggir á valfrelsi, ábyrgð og raunverulegum þörfum fólks, óháð aldri eða aðstæðum. Meirihlutinn mun leggja áherslu á að einfalda aðgengi að upplýsingum og þjónustu sveitarfélagsins Verkefni kjörtímabilsins: Bjóða leigjendum félagslegs húsnæðis að kaupa íbúðina sem þeir leigja Koma á hvatagreiðslum til fatlaðra einstaklinga eldri en 18 ára Auka valfrelsi í þjónustuúrræðum og styðja við sjálfstæða búsetu Gera fleirum kleift að vinna fyrir sér með aukinni áherslu á „vinnu með stuðningi“ Eldri borgarar Meirihlutinn leggur áherslu á að eldri borgarar í Reykjanesbæ njóti öryggis, virðingar og góðra lífsgæða. Áhersla verður lögð á að styrkja þjónustu við eldri borgara, efla stuðning við heimabúsetu og skapa fleiri tækifæri til virkrar þátttöku í samfélaginu. Mikilvægt er að þjónusta sé aðgengileg, upplýsingagjöf skýr og að reynsla og þekking eldri borgara fái að njóta sín í samfélaginu. Verkefni kjörtímabilsins: Tryggja samfellu í þjónustu og efla stuðning við heimabúsetu Bjóða íbúum 65 ára og eldri reglulegar heilsufarsmælingar Styrkja félagsstarf og efla virkni eldri borgara Auka þátttöku eldri borgara í skólastarfi, til að mynda með lestrartengdum verkefnum fyrir börn Grunnskólar Markmið meirihlutans er skýrt: Reykjanesbær á að vera með framúrskarandi grunnskóla þar sem nemendur fá tækifæri til að ná árangri í öruggu og metnaðarfullu námsumhverfi. Áhersla verður lögð á að styðja kennara, bæta aðbúnað skóla og tryggja að hver skóli hafi svigrúm til að mæta ólíkum þörfum nemenda. Verkefni kjörtímabilsins: Hefja undirbúning að nýjum grunnskóla á Ásbrú Stytta biðtíma eftir sérfræðiþjónustu Stórbæta skólalóðir og gera þær að raunverulegum útivistarsvæðum Tryggja jafnræði í aðbúnaði milli skóla Auka hreyfingu barna í samstarfi við íþróttafélög Efla endurmenntun og faglega leiðsögn kennara Tryggja markvissa eftirfylgni með líðan og öryggi nemenda Leggja áherslu á snemmtæka íhlutun og stuðning við nemendur sem þurfa á aðstoð að halda Styðja við fjölbreyttar kennsluaðferðir og aukna nýtingu tækni í námi Klára núverandi framkvæmdir við Holtaskóla og Myllubakkaskóla Tryggja samræmdar árangursmælingar í grunnskólum Reykjanesbæjar Tómstunda- og frístundastarf Líflegt samfélag byggist á þátttöku og öflugu félagslífi. Meirihlutinn vill að Reykjanesbær verði leiðandi sveitarfélag þar sem einfalt er fyrir börn, ungmenni og fjölskyldur að taka þátt í fjölbreyttu tómstunda- og frístundastarfi. Áhersla verður lögð á að skapa öruggt og aðgengilegt umhverfi þar sem allir finna sitt rými í samfélaginu, óháð aldri eða aðstæðum. Verkefni kjörtímabilsins: Sameina frístundastarf undir eina öfluga tómstundamiðstöð Tryggja félagsmiðstöðvar við hvern grunnskóla Opna og þróa ungmennahús fyrir 16–18 ára Stuðla að fjölbreyttu framboði tómstunda fyrir alla aldurshópa og börn með sérþarfir Efla fræðslu og stuðning við foreldra Menning Reykjanesbær er einn öflugasti menningarbær landsins með sterka sérstöðu sem miðstöð tónlistar og skapandi greina. Meirihlutinn vill byggja áfram á þessum styrkleikum, efla menningarlíf bæjarins og gera það enn sýnilegra fyrir íbúa og gesti. Áhersla verður lögð á öflugt menningarstarf, sterka viðburði og áframhaldandi uppbyggingu menningar- og ferðatengdra áfangastaða í sveitarfélaginu. Verkefni kjörtímabilsins: Byggja markvisst á ímynd Reykjanesbæjar sem tónlistarhöfuðborgar landsins Efla söfn bæjarins og nýta þau betur til að laða að innlenda og erlenda gesti Efla viðburði á borð við Ljósanótt, 17. júní og Aðventugarðinn Efla Rokksafn Íslands sem lykiláfangastað í íslenskri tónlistarsögu Skoða möguleika á að opna aftur og efla Landnámsdýragarðinn með stuðningi einkaaðila Móta framtíðarsýn um húsnæði og aðstöðu menningarhúsa í sveitarfélaginu Ábyrg stjórnun og skýr verkaskipting Til að tryggja markvissa framkvæmd og eftirfylgni með áherslum meirihluta Sjálfstæðisflokks og Miðflokks verða nefndir og ráð sveitarfélagsins endurskipulögð, sérfræðihópar skipaðir og ráðist í úttektir á helstu málaflokkum. Meirihlutinn mun forgangsraða verkefnum í þágu bæjarbúa og grunnþjónustu og skera niður óþarfa yfirbyggingu í stjórnsýslunni. Sjálfbærniráð, lýðheilsuráð, menningar- og þjónusturáð og stjórn eignarsjóðs verða lögð niður. Þá verður Umhverfis- og skipulagsráð lagt niður en í staðinn munum við taka upp umhverfis- og framkvæmdaráð og skipulagsráð. Fastanefndir sveitarfélagsins munu verða: Atvinnu- og hafnarráð Bæjarráð Íþrótta-, tómstunda- og menningarráð Leikskólaráð Menntaráð Skipulagsráð Umhverfis- og framkvæmdaráð Velferðarráð Öldungaráð
Reykjanesbær Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sjálfstæðisflokkurinn Miðflokkurinn Mest lesið Þúsund íslensk ungmenni leggja undir sig Krít Innlent Viðreisn líst hvorki á Framsókn né Miðflokk Innlent Samfylking útilokar Framsókn: „Búið að brjóta það traust áður en það byrjaði“ Innlent Guðjón Reykdal Óskarsson er látinn Innlent Hræðileg umgengni á golfvellinum í Hveragerði Innlent Ekkjan fór með fullnaðarsigur af hólmi í héraði Innlent Tíðindi í vændum: Boðar borgarstjórnarflokkinn á fund Innlent Ísland sé orðið dýrasta land í heimi Innlent Fluttur til Noregs með brunasár á um helmingi líkamans Innlent Sjálfstæðismenn í Hafnarfirði slíta meirihlutaviðræðum Innlent Fleiri fréttir Prince setti svip sinn á tveggja milljóna verk Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Dramatík í Hafnarfirði Mikil leynd ríkir yfir smáatriðunum Vilhjálmur verður bæjarstjóri „Ég er ekki nógu góður í slíkri skák“ Skraf Sjálfstæðismanna í húsi Snarfara Gabríel Douane fær tólf mánuði til: „Fjarstæðukennt“ að hann hafi óvart tekið símann Ráða verkefnisstjóra í málum Grindavíkur Hyggjast halda samstarfinu áfram Viðreisn líst hvorki á Framsókn né Miðflokk Kristinn verður áfram bæjarstjóri Valdimar hafnar alfarið fullyrðingum um trúnaðarbrest Ekkjan fór með fullnaðarsigur af hólmi í héraði Icelandair og flugmenn funda aftur í fyrramálið Berglind verður bæjarstjóri og Óðinn formaður bæjarráðs Inga skipar nýjan skólameistara Borgarholtsskóla Hræðileg umgengni á golfvellinum í Hveragerði Samfylking útilokar Framsókn: „Búið að brjóta það traust áður en það byrjaði“ Tíðindi í vændum: Boðar borgarstjórnarflokkinn á fund Sjálfstæðismenn í Hafnarfirði slíta meirihlutaviðræðum Ísland dýrast í heimi og nýr meirihluti kynntur fyrir norðan Ísland sé orðið dýrasta land í heimi „Getum við þá hætt að tala um rafvarnarvopn?“ Árni skólameistari heldur embættinu Skipuð rektor MH fyrst kvenna Lokatölur í Mýrdalshreppi: Nýr listi með flest atkvæði Tvær sóttu um stöðu skólameistara Fjölbrautaskóla Suðurnesja Halla og Björn á ferð um Suðurland í dag Eldur kom upp í vélarúmi báts Sjá meira