„Er týpan sem er til í að taka nýjar áskoranir“ Henry Birgir Gunnarsson skrifar 20. maí 2026 07:30 Það verður áhugavert að fylgjast með Baldri Þór Ragnarssyni á Álftanesi næsta vetur. vísir/Anton Baldur Þór Ragnarsson var nokkuð óvænt tilkynntur sem nýr þjálfari Álftaness á mánudag en hann kemur frá nágrannaliði Stjörnunnar.
Það er aðeins eitt ár síðan Baldur gerði Stjörnuna að Íslandsmeisturum og en af hverju ákvað hann að fara til Álftaness? „Þeir eru með gott starf og reyna að búa til alvöru efstudeildar lið. Mér líst vel á þetta verkefni. Auðvitað er planið að gera vel á leikmannamarkaði og vera með lið í toppbaráttu. Það er vilji hjá mér að koma liðinu í toppinn og gera allt sem ég get í því. Ég veit að það er það sem samfélagið vill líka. Þeir hafa fengið smjörþefinn af þessu og vita hvað þetta er skemmtilegt,“ segir Baldur Þór og verður áhugavert að sjá hvaða leikmenn hann fær til félagsins. Stuðningsmenn Stjörnunnar voru margir hverjir hissa að Baldur skildi yfirgefa félagið og Hlynur Bæringsson Stjörnumaður sagði í Körfuboltakvöldi í fyrradag að þeir væru pirraðir. „Kannski ef maður lítur yfir minn feril þá er ég kannski þessi týpa sem er til í að taka nýjar áskoranir. Það er eitthvað sem er í mér þegar flæðið liggur í þá átt. Þá er ég til í að prófa nýja hluti og þetta er fín tímasetning til að taka við Álftanesi.“ Baldur segist vera stoltur af sínu starfi hjá Stjörnunni og neitar því ekki að það verði sérstakt að mæta með lið Álftaness í Ásgarð næsta vetur. „Það verður sérstakt. Það var líka sérstakt fyrir mig í langan tíma að fara til Þorlákshafnar eftir að hafa alist þar upp. Líka sérstakt að fara aftur á Krókinn eftir minn tíma þar. Það er eins og það er og þetta mun gefa leikjunum aukakrydd sem bæði lið ættu að geta nýtt sér til þess að auglýsa leikina. Það er bara stemning og það sem fylgir þessu.“
Bónus-deild karla Körfubolti UMF Álftanes Mest lesið Sagði frá því hvernig hann kom upp um hneyksli Infantino Fótbolti Jón Daði kvaddi á sama degi og Viðar skoraði fimm Íslenski boltinn „Engar afsakanir“ hjá Carrick eftir tapið á móti Amorim Enski boltinn Enn engin skýring á dauðaslysi hjólreiðakappans Sport Táningur sló 470 metra högg á DP World Tour Golf Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu Körfubolti Selfoss og Jón Daði semja um starfslok Íslenski boltinn Glódís Perla lyfti bikar í þriðja sinn á árinu 2026 Fótbolti Uppgjörið: FH-Breiðablik 0-3 | Meistaraafgreiðsla Blika í toppslagnum Íslenski boltinn „Við þurfum að gefa meira í þetta maður“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Íslensku stelpurnar unnu Dani og eru einum sigri frá A-deild Íslenska liðið enn ósigrað Don Nelson látinn Fullkomin byrjun íslensku drengjanna heldur áfram Tryggði bæði framlengingu og skoraði sigurkörfuna Strákarnir byrja Evrópukeppnina á tveimur sigurleikjum Ísrael í undanúrslit á kostnað Íslands Sjöfaldur NBA meistari kennir íslenskum krökkum að setja stóru skotin Njarðvík semur við Sadio Doucouré Berglind með 33 stig í fyrsta leik og strákarnir unnu Úkraínu Hilmir greiddi sjálfur fyrir félagaskiptin með launalækkun Sótti silfur á EM eftir rúmt ár af meiðslum Ármenningar semja við fyrrum Íslandsmeistara Stjarnan tekur efnilegan leikmann frá Álftanesi Sneru leiknum á síðustu stundu og komust áfram Sjá meira