Ívar Halldórs var týndi sonur Jóhanns G. Jóhannssonar Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 19. maí 2026 10:39 Ívar er þakklátur fyrir að hafa náð að kynnast pabba sínum fyrir andlátið. Útvarpsmaðurinn Ívar Halldórsson er týndur sonur tónlistarmannsins Jóhanns G. Jóhannssonar. Ívar segir mikla leynd hafa ríkt yfir faðerni hans um árabil, það hafi verið súrrealískt að sjá mann svo líkan sér í sjónvarpi en þeim feðgum hafi komið vel saman þegar þeir hafi hitt hvorn annan í fyrsta sinn.
Þetta er meðal þess sem fram kom í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Þar kemur fram að Ívar hafi verið opinberaður sem týndur sonur Jóhanns á minningartónleikum um Jóhann á tónlistarhátíðinni Vor á Vatnsnesi í Keflavík í síðustu viku. Ívar segir í Bítinu frá því að Jakob Frímann Magnússon hafi komið að máli við hann og beðið hann um að koma fram á tónleikunum og spila þar frumsamið lag í minningu föður hans sem Ívar púslaði saman úr lögum föður síns. Sendi honum SMS „Þegar ég var ungur þá hvíldi svolítil leynd yfir þessu öllu saman og það voru skiptar skoðanir á því hver væri faðir minn. Svo ákvað ég eins og flestir held ég að geri að leita að mínum uppruna og set mig í samband við hann. Og skrifa undir það SMS: „Týndi sonurinn,“ af því að ég geri ráð fyrir því að hann viti af mér.“ Þetta var árið 2009 eftir að Ívar kom heim frá Bandaríkjunum. Hann lýsir því að hann hafi á þessum tíma horft á viðtal Jón Ólafs við föður sinn í þættinum Fingraför í sjónvarpinu. „Ég og konan mín erum að horfa á þetta og þetta var súrrealísk upplifun vegna þess að ég var að horfa á manneskju sem var með mína takta og konan mín var svona hálf frosin. Henni fannst þetta svolítið spooky. Henni fannst hún vera að horfa á eiginmann sinn eftir þrjátíu ár sirka. Þetta var magnað og opnaði fyrir mann svona raunveruleika að DNA-ið er ofboðslega sterkt.“ Fengu sér kex og kaffi saman Ívar segir föður sinn hafa tekið vel í SMS-ið. Þeir hafi mælt sér mót í stúdíóinu hans. „Við settumst bara niður og fengum okkur kex og kaffi og byrjuðum að ræða málin og fórum í hitt og þetta og fórum yfir skemmtilega hluti og erfiða hluti og kynntumst og tengdumst. Við höfðum það svo fyrir reglu að við hittumst einu sinni í viku. Svo bara leiddi það að því að við fórum með fjölskyldunni í jólaboð til hans.“ Þannig hafi Ívar þarna eignast tvær hálfsystur sem hann hafi ekki vitað af. Það hafi verið mikill fjársjóður og fjölskyldan tekið honum afar vel. Þá rifjar Ívar upp í Bítinu þegar Jóhann var á dánarbeði árið 2013 að þeir feðgar hafi náð vel saman. „Þá töluðum við saman um tónlist og það var svo greinilegt að tónlistin hans, fyrir honum var svo dýrmæt, hversu mikill fjársjóður þetta var og hann langaði svo mikið að tónlist hans myndi lifa áfram.“ Þannig hafi Ívar ekki þurft að hugsa sig lengur um þegar Jakob Frímann heyrði í honum og bað hann um að semja lag í tilefni fyrir minningartónleikanna. „Þá einmitt notaði ég tækifærið og púslaði saman fullt af titlum úr hans lagabanka sem við þekkjum svo vel og hafa verið spiluð hérna á Bylgjunni í áratugi. Flettaði þetta inn í lagatextann, þannig þetta er hálfgerð fjársjóðsleit fyrir þann sem er að hlusta, þú finnur þarna allskonar titla.“
Tónlist Bítið Ástin og lífið Mest lesið Verður að geta hent sér í hnébeygju Tíska og hönnun Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Sahara Ray látin Lífið Diljá Mist á lausu Lífið Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Fleiri fréttir Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Sjá meira