„Aldrei verið sammála um stjórnmál“ Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 17. maí 2026 19:42 Ferskir pólitískir vindar blása á Skagaströnd. Vísir/Vilhelm Hjónin Eydís Inga Sigurjónsdóttir og Davíð Birkir Tryggvason fengu bæði sæti í sveitarstjórn Skagastrandar, Eydís sem oddviti Framsóknar og Davíð í öðru sæti fyrir Samfylkinguna. Eydís segir þau hjón aldrei hafa verið sammála um stjórnmál en búi þar af leiðandi að góðri æfingu af því að rökræða þau og miðla málum.
Sveitarstjórn Skagastrandar gekk í gegnum algjöra endurnýjun í nótt þar sem enginn fráfarandi sveitarstjórnarfulltrúi var í framboði. Skagastrandarlistinn var sjálfkjörinn í síðustu kosningum en að þessu sinni voru voru þrír listar í framboði og allir fengu þeir kjörinn fulltrúa. Kosningarnar voru einnig sögulegar að því leytinu til að konur voru oddvitar allra þriggja framboða og kjörsókn nam 88,1 prósentum. Í sveitarstjórn Skagastrandar sitja fimm fulltrúar. Samfylking og óháðir fengu tvo fulltrúa, K-listinn, Fyrir Skagaströnd tvo sömuleiðis og Framsókn og óháðir einn, hana Eydísi. Frekar áhyggjur af verkaskiptingunni heima Eydís Inga segir þau hjón brenna fyrir bænum og því ákveðið að slá til þegar þau fengu boð, hvort á sinn lista. Davíð Birkir hafi boðist annað sætið á lista Samfylkingar og óháðra og stuttu seinna bauðst Eydísi oddvitasæti Framsóknar. „Ég ákvað að slá til og sé heldur betur ekki eftir því. Þetta er búið að vera alveg ótrúlega gaman. Sama er að segja um manninn minn. Við höfum aldrei verið sammála um stjórmál en höfum verið lengi saman og við erum komin með góða æfingu í að rökræða,“ segir hún. Aðspurð segist hún eiga von á farsælu samstarfi þrátt fyrir að þau greini á í útfærslum. Grunngildunum deili þau. „Það eina sem við höfum áhyggjur er með börnin, hver á að grípa boltann. En þau eiga mjög góðar ömmur og afa sem hafa boðist til að stökkva til,“ segir Eydís. Úr ólíkum áttum en með sömu sýn Hjónin brenni fyrir því að lyfta bænum upp. Skagaströnd sé einstök náttúruperla sem hefur mikið upp á að bjóða en hafi verið í ákveðinni niðursveiflu. „Þegar ég er að alast upp erum við um 700 hérna og mikið líf, sjávarútvegurinn í brennidepli og ýmislegt, en nú erum við um 450. Það eru mörg mál framundan sem við þurfum að vinna og ég held að við munum tækla það ágætlega saman eins og við höfum gert allt annað,“ segir Eydís. „Svo er líka gott að hann er lögfræðimenntaður og ég hjúkrunarfræðimenntuð þannig að við höfum ólíka sýn á hluti og það mun hjálpa bænum okkar. Við erum að koma úr sitthvorri atvinnugreininni,“ segir hún. Þau komi því að starfinu með ólíkar áherslur en um aðalatriðin eru þau sammála. „Hér ríkir kyrrðin og rólegheitin. Við fluttum frá Kópavogi árið 2020 í kóvid og við erum að blómstra. Við finnum hvað streitustigið er búið að lækka mikið. Hér er dásamlegt að ala upp börn og náungakærleikurinn ríkjandi,“ segir Eydís Inga.
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Skagaströnd Mest lesið Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Innlent Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Innlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Innlent Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Kærastinn var á staðnum Erlent Fleiri fréttir Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Sjá meira