Þversögn umburðarlyndis og góðmennsku Meyvant Þórólfsson skrifar 16. maí 2026 07:32 Þegar spurt var um þjónustu við íbúa í nýlegri könnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands skar stærsta sveitarfélagið sig úr. Einungis 30% kjósenda í Reykjavík sögðust ánægðir með þjónustuna þar, en 70% íbúa nágrannasveitarfélaga reyndust aftur á móti ánægðir með þjónustu sinna sveitarfélaga. „Vasast í öðru“ en lögbundinni þjónustu Í Kastljósi 4. maí sagðist Rúnar Vilhjálmsson prófessor telja skýringuna þá að stjórnendur borgarinnar væru að„vasast í fleiru“ en lögbundinni þjónustu. Í samanburði við nýrri og vinsælli verkefni þættu rútínubundin verkefni á borð við sorphirðu og snjómokstur sennilega ekki eins spennandi og væru því ekki í fókus. Meðal nýrri og vinsælli verkefna nefndi Rúnar mannréttindamál; í viðtalinu birti Kastljós um leið táknræna myndbandsupptöku af fyrrverandi borgarstjóra og fylgdarliði hans við regnbogagötumálun og einnig af umdeildum fánum sem flaggað hefur verið við ráðhús borgarinnar um nokkurt skeið. Meint „mannréttindamál“ hafa fengið sífellt meira rými hjá ráðhússhernum þótt þau séu „ekki lögbundin verkefni sveitarfélaga“ eins og Rúnar benti á. Birtingarmyndir mannúðar og góðmennsku Ráðhússherinn birtist okkur gjarnan eins og kappreiðahross með augnblöðkur, sem takmarka sjónsviðið svo þau haldi einbeitingu og villist ekki af braut. Það vekur hjá manni spurningar um hvað stjórni í raun athöfnum þess. Hver skyldi hinn raunverulegi tilgangur góðmennsku þessa hers vera í garð útlendinga og dýrkunar á regnbogatáknum kynsegin fólks? Birtingarmyndir mannúðar og lýðræðislegrar góðmennsku stjórnast gjarnan af torræðum pólitískum straumum eins og heimspekingurinn Karl Popper fjallaði um í The Open Society and Its Enemies. Hjá „opnu samfélagi“ ráðhússins við Tjörnina starfar her manns að svonefndum mannúðarmálum á vegum mannréttindaráðs og mannréttindaskrifstofu – hve margir vissu m.a.o. um þau element í ráðhússrekstrinum - með fulltingi ýmissa sérskipaðra starfshópa, sem væntanlega eru jafnframt launaðir af skattfé. Ráðhússherinn hefur sett sér það „göfuga“ markmið að frelsa alla borgarbúa undan meintri mismunun vegna uppruna, litarháttar, kynhneigðar, kynvitundar, kyneinkenna, heilsufars, trúar, lífsskoðana eða stjórnmálaskoðana og er þá ekki allt upp talið úr mannréttindastefnu borgarinnar. Allt hefur verið meitlað í stein með Stefnu í málefnum innflytjenda, flóttafólks og umsækjenda um alþjóðlega vernd, Stefnu um fjölmenningarborgina Reykjavík 2026-2030 og Aðgerðaáætlun Reykjavíkurborgar í jafnréttis- og mannréttindamálum 2023-2026. Vissu borgarbúar af því? Að skapa samfélag Yfirlýstur tilgangur ráðhússhersins virðist vera að fyrirbyggja mismunun, öðrun (othering) og annarleika (otherness). En að mati undirritaðs bendir margt til þess að sá tilgangur geti snúist upp í andhverfu sína og orðið meintum minnihlutahópum til meins frekar en framdráttar. Í ágúst síðastliðnum lýsti ráðhússherinn sig „stoltan stuðningsaðila hátíðarinnar Hinsegin daga 2025“, einnar stærstu borgarhátíðar Reykjavíkur. Forseti borgarstjórnar mætti á göngubrúna við Ráðhús Reykjavíkur og dró hinsegin fána að húni og setti hátíðina undir yfirskriftinni Samstaða skapar samfélag“. Vert er að gefa þeirri yfirskrift sérstakan gaum í tengslum við stefnu ráðhússhersins í mannúðarmálum. Samstaða byggð á rökum og skynsemi ætti jú vissulega að skapa réttlátt samfélag, því ættum við öll að vera sammála. Og höfum hugfast að samkvæmt boðorðum ráðhússhersins skal ekki mismuna borgarbúum vegna lífsskoðana og stjórnmálaskoðana. Þversögn umburðarlyndis Þar komum við að því sem Karl Popper nefndi „þversögn umburðarlyndisins“. Hina meintu hugmyndafræði mannúðar skortir nefnilega oft umburðarlyndi þegar á reynir. Ljóst er að margir hræðast að tjá tilteknar skoðanir sínar vegna tengsla við vini, vandamenn, starfsfélaga o.s.frv., jafnvel á forsendum skynsemi og hlutleysis, eins og hinn merki breski höfundur ritsins Among the Mosques, Edmond Mohamed Husain, benti á: „Fólk vill ekki láta standa sig að því að ofsækja minnihlutahópa, sem er vissulega gott mál út af fyrir sig. En það má ekki verða til þess að við getum ekki átt frjáls skoðanaskipti á heiðarlegan og virðingarfullan hátt.“ Höfundur er háskólakennari á eftirlaunum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Skoðun Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Sjá meira
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar