Geta kosningar verið máttlaus öryggisventill? Martha Árnadóttir skrifar 15. maí 2026 16:01 Lýðræði er eitt af mikilvægustu fyrirbærum nútímans - en það er langt því frá fullkomið. Kosningar tryggja ekki sjálfkrafa að leiðtogar komi úr hópi hæfasta eða heiðarlegasta fólksins. Þær tryggja fyrst og fremst að vilji meirihlutans ráði - sem ef til vill er ekki mjög lýðræðislegt í sjálfu sér. Sagan gefur okkur skýr dæmi um þetta. Bæði Adolf Hitler og Benito Mussolini komust til valda með stuðningi kjósenda innan lýðræðislegra kerfa. Þeir nýttu sér ótta, óánægju og sundrungu í samfélaginu til að ná fylgi - og þegar völdin voru komin í þeirra hendur varð lýðræðis einskis virði. Viktor Orban var á góðri leið í þessa átt í Ungverjaland. Hann markvisst veikti lýðræðislegar stofnanir á valdatíma sínum. Hann sjálfur talaði opinberlega um að vilja byggja upp „ólýðræðislegt lýðræði“. Í stjórnartíð Orbans jukust pólitísk áhrif á störf dómstóla, frjálsir fjölmiðlar voru laskaðir, aukin þrýstingur á háskóla og félagasamtök og mikil samþjöppun valds í kringum ríkisstjórnina. Evrópuþingið gekk svo langt árið 2022 að lýsa Ungverjalandi sem „kosningalegu einræði“ vegna þess hvernig lýðræðislegar varnir, sem oftast eru staðsettar í stofnunum eins og dómstólum, þingum, fjölmiðlum og skiptingu valdsins á milli stofnana, höfðu smám saman orðið veikari. Af hverju er Ungverjaland áhugvert dæmi? Það sem gerir Ungverjaland áhugavert sem dæmi er að veiking lýðræðisins gerðist ekki með valdaráni eða afnámi kosninga á einni nóttu. Kosningar héldu áfram að fara fram - en stofnanir sem eiga að takmarka vald framkvæmdavaldsins urðu smám saman veikari - máttlausari og valdhafar fóru sínu fram. Hættan við aukið stjórnlyndi birtist ekki alltaf dramatískt eða skyndilega. Hún getur þróast hægt og stjórnlyndið tekið yfir frjálsan vilja almennings. Orðræða valdhafa fer að snúast um “aðsteðjandi hættur, harðari lög og reglu, það vill einhver taka landið okkar, við erum yfirburða - aðrir öfunda okkur, við þurfum strangari lög, við þurfum að banna hitt og þetta - loka landinu!” Þessi lexía á svo sannarlega við í dag - þegar stjórnmál verða sífellt meira að einhverskonar menningarstríði þar sem rekinn er óttaáróður og „við gegn hinum“ hugsun, þá skapast jarðvegur fyrir öfl sem vilja einfalda flókin mál og styrkja vald sitt á kostnað frelsis og lýðræðislegrar ákvarðanatöku. Sagan, gamla góða verkjaraklukkan, minnir okkur á að lýðræði krefst meira en bara kosninga. Það krefst gagnrýninnar hugsunar, upplýstrar umræðu og virkrar þátttöku borgaranna. Án þess getur lýðræðið orðið að innantómu formi - þar sem fólk kýs, en missir samt smám saman áhrifin. Spurningin sem við þurfum stöðugt að spyrja okkur er ekki bara hvern við kjósum, heldur hvers konar stjórnmál við viljum styðja. Höfundur er stjórnmálafræðingur Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir skrifar Skoðun Fullveldi hvað Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar