Grindavík - Tindastóll 89-94| Tindastóll heldur lífi í einvíginu Stefán Marteinn Ólafsson skrifar 15. maí 2026 21:29 Sigtryggur Arnar og Deandre Kane áttu í baráttu í kvöld. Anton Brink/Vísir Þriðji leikur úrslitaeinvígis Bónus deild karla fór fram í HS Orku höllinni í kvöld þegar heimamenn í Grindavík mættu Tindastól. Grindavík leiddi einvígið 2-0 og gat með sigri tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn á meðan Tindastóll var með bakið upp við vegg. Eftir stórkostlegan körfuboltaleik náði Tindastóll frábærum fimm stiga sigri 89-94 og tryggði sér um leið fjórða leikinn í einvíginu.Leikurinn fór fjörlega af stað og voru Grindvíkingar fyrstir á blað. Virkilega fjörugur fyrsti leikhluti sem var endana á milli. Stemmningin í húsinu magnaði upp hverja körfu. Það var lífleg barátta úti á velli og mátti sjá hversu miklu máli þetta skipti fyrir bæði lið. Jeremy Pargo og Sigtryggur Arnar áttu skemmtilega baráttu auk annara. Adomas Drungilas blakaði sóknarfrákasti niður fyrir gestina til að tryggja að þeir væru með forystu eftir fyrsta leikhluta 26-29. Grindavík-Tindastóll úrslit Bónus deild 2026Anton Brink/Vísir Adomas Drungilas opnaði annann leikhluta á sama máta og hann lokaði fyrsta með því að blaka niður sóknarfrákasti og gestirnir að ná ágætis tökum á leiknum þarna. Grindavík hleypti gestunum ekkert frá sér og voru fljótir að snúa leiknum upp í jafna baráttu aftur. Leikurinn var í járnum alveg út leikhlutann en frábær lokasprettur frá Tindastól þar sem þeir stálu meðal annars innkasti og refsuðu með þrist skilaði þeim yfir í hálfleik 47-51. Grindavík-Tindastóll úrslit Bónus deild 2026Anton Brink/Vísir Júlíus Orri Guðmundsson opnaði þriðja leikhluta með þrist og kom gestunum í sjö stiga forskot. Einhverjir höfðu sennilega séð fyrir sér Tindastól grípa augnablikið þarna en svo var ekki. Grindavík tóku yfir augnablikið og þeir náðu að snúa leiknum sér í vil. Jordan Semple og Ólafur Ólafsson áttu góðar körfur og allt í einu var eins og Grindvíkingar ætluðu að gera sig líklega til þess að hlaupa með leikinn. Grindavík-Tindastóll úrslit Bónus deild 2026Anton Brink/Vísir Körfubolti er leikur áhlaupa og eftir að hafa misst Grindvíkinga fimm stigum fram úr sér svaraði Tindastóll með flottu áhlaupi. Ragnar Ágústsson stal boltanum af Jeremy Pargo og tróð með tilþrifum á hinum endanum til að koma Tindastól í forystu aftur. Tindastóll virtist vera að fara með gott forskot inn í fjórða leikhluta en tveir þristar í röð þar af annar frá miðju þegar flautan gall frá Deandre Kane skildi okkur eftir í eins stigs leik 68-69.Það var allt undir í fjórða leikhluta. Grindvíkingar sáu fyrir sér titilinn á meðan Tindastóll barðist fyrir lífi sínu í þessu einvígi. Það voru gestirnir frá Sauðárkróki sem reyndust sterkari á lokasprettinum og unnu vel fyrir sigrinum í kvöld og tryggðu sér fjórða leikinn í einvíginu í Síkinu á mánudaginn kemur með öflugum fimm stiga sigri 89-94. Grindavík-Tindastóll úrslit Bónus deild 2026Anton Brink/Vísir Atvik leiksins Þristurinn frá Adomas Drungilas seint í fjórða leikhluta þegar Grindvíkingar voru byrjaði að ógna forystu Tindastóls. Hann drap að mér fannst alla von Grindavíkur um að fá eitthvað úr þessum leik. Adomas Drungilas átti góðan leik í kvöld,Anton Brink/Vísir Stjörnur og skúrkar Hjá Tindastól var Dedrick Basile öflugur og endaði stigahæstur með 21 stig og gaf auk þess 6 stoðsendingar. Adomas Drungilas var að mínu mati með mikilvægustu stig leiksins í gegnum allan leikinn í raun. Hann endaði með 20 stig og tók auk þess níu fráköst. Hjá Grindavík voru það Jeremy Pargo og Deandre Kane sem stýrðu ferðinni. Deandre Kane endaði með 29 stig, 11 fráköst og gaf 5 stoðsendingar á meðan Jeremy Pargo endaði með 21 stig og gaf 10 stoðsendingar. Dómararnir Kristinn Óskars, Sigmundur Már og Bjarki Þór sáu um að dómgæsluna í kvöld. Mér fannst þeir komast vel frá sínu í kvöld. Bestu dómarar landsins segja margir og það er alveg hægt að taka undir það. Stemning og umgjörð Það var uppselt á þennan viðburð fyrir löngu og stútfull höll í Grindavík. Úrslitaeinvígi og bikarinn í boði svo það var sturluð stemning. Þvílíkur hávaði sem myndaðist og allt eins og þú vilt sjá í úrslitaeinvíginu. Stúkan var mögnuð í kvöldAnton Brink/Vísir Viðtöl Arnar Guðjónsson þjálfari Tindastóls í leiknum.Anton Brink/Vísir „Skemmtilegur körfuboltaleikur og gott að fá að keppa lengur“ „Það var hugrekki í því sem að við gerðum“ sagði Arnar Guðjónsson þjálfari Tindastóls í samtali við Andra Már Eggertsson eftir sigurinn í kvöld. „Það kom þarna kafli sem að var mjög slakur hjá okkur í upphafi þriðja og mér fannst strákarnir ná að vera svolítið þolinmóðir þegar það gekk sem verst“ Liðin skiptust á forystu í fyrri hálfleik og var hnífjafn leikur. „Þetta var ekki gamli góðir leikur áhlaupa. Þetta var bara jafn körfuboltaleikur. Það var ekkert langt áhlaup hjá hvoruga áttina. Þetta var svolítið bara svipað og leikirnir eru búnir að vera og hefði geta fallið hvoru megin sem var“ Varnarleikur Tindastóls var frábær í fjórða leikhluta og skoraði Grindavík ekki stig í um sex mínútur. „Það er nú það sem maður er að reyna að láta þessa menn ekki skora. Mér fannst við á köflum góðir varnarlega og á köflum aðeins að ströggla“ „Þetta var bara skemmtilegur körfuboltaleikur og gott að fá að keppa lengur“ sagði Arnar Guðjónsson. Jóhann Þór Ólafsson þjálfari GrindavíkurVísir/Guðmundur Þórlaugarson „Hlaut að koma að því að þetta myndi bíta okkur í rassinn“ „Stólarnir eru bara allt sem heitir vilji, orka og ákefð. Við erum bara undir í því“ sagði Jóhann Þór Ólafsson þjálfari Grindavíkur í samtali við Andra Már Eggertsson eftir tapið í kvöld. „Sóknarfráköst, lausir boltar og allt svona þeir bara komu hérna með lífið í lúkunum og við bara ekki klárir“ „Við erum staðir sóknarlega á löngum köflum. Klaufalega tapaðir boltar og svo fáum við á okkur 94 stig sem að er kannski aðeins of mikið“ „Þetta var svolítið bara stöngin út. Við klikkum úr níu vítum og þetta eru bara auðveld skot sem að þú færð í körfubolta og það er bara of dýrt þegar leikurinn er svona jafn eins og raun bar vitni og bara eins og þessir leikir eru búnir að vera“ „Við höfum sloppið hingað til en það hlaut að koma að því að þetta myndi bíta okkur í rassinn“ sagði Jóhann Þór Ólafsson Bónus-deild karla Grindavík Tindastóll