Veljum samfélag þar sem enginn er skilinn eftir Sindri S. Kristjánsson skrifar 15. maí 2026 10:31 Kæri kjósandi. Á morgun hefur þú kost á að kjósa samheldinn og kraftmikinn hóp Akureyringa sem hefur einsett sér að vinna að jöfnu og sterku samfélagi þar sem enginn er skilinn eftir. Léttum þér daglega lífið Samfylkingin á Akureyri vill létta þér lífið þegar álagið er mest; setja þak á kostnað vegna leikskólavistar barna og innleiða 100% systkinaafslátt. Á sumrin ætlum við að nýta skólahúsnæði og bjóða upp á sumarfrístund yngstu barna í grunnskóla, eins og tíðkast í flestum öðrum sveitarfélögum. Við ætlum að hækka frístundastyrk barna í 75.000 krónur og leggja áherslu á að staða og fjárhagur foreldra komi ekki í veg fyrir íþróttaiðkun barna. Við minnkum skutlið með stórbættum almenningssamgöngum, meiri og betri strætó og bætum um leið andrúmsloftið í bænum. Hlúum að hverju barni Það þarf að stórauka aðgengi barna að sérfræðingum á borð við sálfræðinga, atferlisfræðinga og talmeinafræðinga innan skólanna. Þar er tækifærið til að styðja við börnin, grípa þau fyrr og gefa kennurum svigrúm til að gera það sem þeir gera best - kenna. Úrræðum á borð við Hlíðaskóla þarf að fjölga og efla starf félagsmiðstöðva. Þá sjáum við að stórauka þarf kennslu í íslensku fyrir börn með annað móðurmál og tryggja að öll grunnskólabörn á Akureyri hafi gott aðgengi að list- og verkgreinakennslu. Húsnæði fyrir öll Fasteignagjöld hafa hækkað mikið umfram verðbólgu á kjörtímabilinu. Nokkrar ástæður eru fyrir því; hækkað fasteignamat og hækkun á veitugjöldum, en þó einkum tregða sitjandi meirihluta við að lækka fasteignaskatta í takt við ytri aðstæður. Það þarf að tryggja að Akureyri sé samkeppnishæfur búsetukostur við höfuðborgarsvæðið. Gera skal kröfu um að þriðjungur húsnæðis í öllu nýju skipulagi sé eyrnamerktur óhagnaðardrifinni uppbyggingu og nauðsynlegt er að stytta biðlista eftir félagslegu húsnæði. Síðast en ekki síst ætlum við að hætta að láta verktaka ráða för þegar kemur að skipulagi bæjarins og því hvernig lóðum er úthlutað. Áhyggjulaust og skemmtilegt ævikvöld Við munum beita okkur fyrir vönduðum og hröðum úrbótum í húsnæðismálum hjúkrunarheimilanna í bænum, eftir mikla þrautagöngu íbúa og starfsfólks undanfarin ár. Samfylkingin á Akureyri mun ávallt tala máli íbúa sinna og lætur ekki eins og aðstæður eldri borgara á hjúkrunarheimilum sé sveitarfélaginu óviðkomandi. Við viljum samþætta þjónustu með innleiðingu ‘Gott að eldast’ verkefnisins, sem komin er góð reynsla á í nokkrum sveitarfélögum. Verkefnið yrði unnið í samstarfi ríkis og sveitarfélagsins með það að markmiði að bæta viðmót, þjónustu og skilvirkni. Við höfum orðið vör við ákall frá aðstandendum fólks með heilabilun og skylda sjúkdóma, þar sem skortir á stuðning og úrræði fyrir sjúklinga og aðstandendur þeirra. Við þurfum að tryggja að fólk falli ekki á milli kerfa, og að aðstandendur veikist ekki sjálfir af álagi við umönnun síns fólks. Á Akureyri er afar öflugt félag eldri borgara, EBAK, og við viljum reisa félagsaðstöðu sem sómi er af í samstarfi við félagið. Það þarf að vinna að efldri lýðheilsu eldra fólks og hvetja til virkni, hreyfingar og þátttöku og draga um leið úr félagslegri einangrun. Ein leið til þess er að bjóða okkar elstu borgurum frítt í sund og að auka stafrænt læsi eldri borgara með námskeiðahaldi. Akureyri í sókn Við munum stunda virka hagsmunagæslu fyrir bæinn, íbúa hans og atvinnulíf og marka bænum atvinnu- og vaxtastefnu til framtíðar. Setjum á fót Atvinnulífsstofu og auðveldum fólki og fyrirtækjum að hefja rekstur á Akureyri. Stuðlum að því að hér blómstri fjölbreytt atvinnulíf og fáum fólkið okkar heim aftur eftir nám og störf annars staðar. Stöndum vörð um Akureyrarflugvöll og millilandaflugið og eflum Akureyri sem heilsársáfangastað með bættu aðgengi að perlum bæjarins yfir vetrartímann, sem gagnast bæði ferðamennskunni og íbúum. Við ætlum að styrkja stöðu okkar sem skólabærinn Akureyri með auknu samstarfi við háskólann og bættu framboði á húsnæði fyrir stúdenta. Tala máli framhaldsskólanna okkar og berjast fyrir því að ungmenni geti áfram sótt fjölbreytt nám í heimabænum sínum. Við munum nýta hvert tækifæri til að minna á mikilvægi sjúkrahússins og uppbyggingu þess, sem og heilsugæslanna okkar, vera lausnamiðuð og vinna að samþættingu þjónustu með ríkinu í þeim málaflokkum sem falla undir bæði stjórnsýslustig. Við erum sterkari saman. Við komumst lengra saman. Vertu með og settu X við S í kjörklefanum 16. maí. Höfundur er oddiviti Samfylkingarinnar á Akureyri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sindri S. Kristjánsson Mest lesið Nei Íslandsbanki ég er ekki 6 ára Kristján Logason Skoðun Hvar mega okkar minnstu bræður borða? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Lífeyririnn okkar má ekki týnast Sandra B. Franks Skoðun Dregur til tíðinda Hannes Pétursson Skoðun Aldrei fleiri Ljón á Íslandi Selma Rut Þorsteinsdóttir Skoðun Valdatafl og viðskiptapólitík í lagareldi Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Matvælaverð, tollar og heimildavinna Erna Bjarnadóttir Skoðun Börnin fyrst, kerfið svo Inga Sæland Skoðun Borgarlínan og Línuborg Soria Þórður Már Sigfússon Skoðun Sálin tekin úr skólunum Ingibjörg Isaksen Skoðun Skoðun Skoðun Mannréttindi í Reykjavík í hættu Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Hvernig líður fjölskyldunni? Auður Axelsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigðisráðherra slær eigið heimsmet Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Borgarlínan og Línuborg Soria Þórður Már Sigfússon skrifar Skoðun Hvaða börn koma fyrst? Lúðvík Júlíusson skrifar Skoðun Lífeyririnn okkar má ekki týnast Sandra B. Franks skrifar Skoðun Aldrei fleiri Ljón á Íslandi Selma Rut Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Mikilvægur áfangi fyrir eldri ökumenn Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Nei Íslandsbanki ég er ekki 6 ára Kristján Logason skrifar Skoðun Er gervigreind örlög eða stefna? Hanna Kristín Skaftadóttir skrifar Skoðun Menningarsjá og hlutverk hennar Anna Hildur Hildibrandsdóttir ,Erna Kaaber skrifar Skoðun Líffræðileg fjölbreytni á undanþágu? Maren Davíðsdóttir skrifar Skoðun Minna fólk – aðrar þarfir Bozena Raczkowska skrifar Skoðun Fullveldi og almannaheill Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Börnin fyrst, kerfið svo Inga Sæland skrifar Skoðun Hvar mega okkar minnstu bræður borða? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Núverandi heilbrigðiskerfi er ekki sjálfbært – aukið einkaframtak er hluti af lausninni Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Valdatafl og viðskiptapólitík í lagareldi Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Sálin tekin úr skólunum Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Matvælaverð, tollar og heimildavinna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Stefna og innleiðing hennar á óvissutímum Jóhanna Gunnþóra Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hinar myrku hliðar deilds fullveldis: Sýndaráhrif og uppgjöf smáríkis Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Stækkar skrifræðið við inngöngu í ESB? Tölurnar segja annað Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Á úfnum sjó eða lygnum Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Fæðingarorlof á ekki að kosta fólk starfið Árni B. Björnsson,Bjarki Ómarsson skrifar Skoðun Ísland fær martröð (örsaga) Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Er 25% lækkun á matvælum raunhæf með evru? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Aðflæðisvandinn Finnur Pálmi Magnússon skrifar Skoðun Milli tveggja kosta - Efnahagslegt staðreyndatékk á framtíð Íslands Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fólkið sem þurrkaði út heilbrigðiseftirlitið Pétur Halldórsson skrifar Sjá meira
Skoðun Núverandi heilbrigðiskerfi er ekki sjálfbært – aukið einkaframtak er hluti af lausninni Sævar Þór Jónsson skrifar
Skoðun Hinar myrku hliðar deilds fullveldis: Sýndaráhrif og uppgjöf smáríkis Eggert Sigurbergsson skrifar
Skoðun Milli tveggja kosta - Efnahagslegt staðreyndatékk á framtíð Íslands Sigurður Sigurðsson skrifar