Umferðinni beint inn í Laugardal og Háaleiti Friðjón R. Friðjónsson skrifar 15. maí 2026 09:00 Það ber kannski í bakkafullan lækinn að fjalla um Suðurlandsbraut og áform núverandi meirihluta með hana. Meirihlutinn ákvað að fresta samþykkt breytinga á deiliskipulagi vegna ótta við kjósendur og bíður það nýrrar borgarstjórnar eða það sem verra er borgarráðs sem fer með skipulagsheimildir eftir kosningar og þar til ný borgarstjórn tekur við. Það hefur hins vegar minna verið fjallað um hvað verður um þá umferð sem hverfur af Suðurlandsbraut. Í stuttu máli er gert ráð fyrir að hverfin í kringum Suðurlandsbraut, Miklubraut og Sæbraut muni taka við umferðinni. Engjavegur, Skipholt, Ármúli, Háaleitisbraut, Sundlaugavegur, Teigarnir, Laugarásvegur og Langholtsvegur, meira að segja Dalvegur mun fá á sig meiri umferð bíla. Mynd 7.4 í umhverfismatsskýrslu Borgarlínu sýnir hvernig umferðin dreifist þegar afkastageta Suðurlandsbrautar er skert. Umferðin hverfur nefnilega ekki. Hún leitar nýrra leiða. Fyrir íbúa í Laugardal og Háaleiti þýðir það meiri gegnumakstur um götur sem voru aldrei hannaðar sem stofnæðar fyrir aukið álag. Í skýrslunni er jafnframt viðurkennt að „umferðarmynstur muni breytast“ og að mörgum vinstri beygjum verði lokað. Slíkar breytingar geta haft veruleg áhrif á hvernig fólk ferðast um sín eigin hverfi, hvernig foreldrar aka með börn í skóla og íþróttir og hvernig þjónusta og atvinnustarfsemi tengist svæðinu. Stuðningsmenn framkvæmdanna tala gjarnan um fallegra göturými og breyttar ferðavenjur. Það eru gild markmið. En borgarskipulag þarf líka að taka mið af raunverulegri hegðun fólks og því hvernig samgöngukerfi virkar í dag. Það er ekki nóg að gera ráð fyrir að umferðin „gufi upp“. Skýrslan sjálf sýnir að hún færist einfaldlega til. Myndin sýnir (óljóst) hvernig fyrsti áfangi mun færa umferð inn í hverfi - allar rauðar línur er aukin umferð Þess vegna er mikilvægt að ræða áhrif þessara breytinga af fullri hreinskilni. Íbúar í Laugardal og Háaleiti eiga rétt á því að vita að breytingarnar snúast ekki aðeins um Borgarlínu á Suðurlandsbraut, heldur líka um hvernig umferð muni hríslast inn í nærliggjandi hverfi á komandi árum. Þess vegna vill Sjálfstæðisflokkurinn breyta fyrirætlunum meirihlutans með Suðurlandsbraut, ekki vegna andstöðu við almenningssamgöngur heldur vegna þess að áformin eru vanhugsuð og munu valda úlfúð meðal íbúa borgarinnar. Höfundur er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Friðjón Friðjónsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson Skoðun Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku? Valerio Gargiulo Skoðun Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson Skoðun Börnin eru þrautseig. Kerfið hefur brugðist grunnfærninni Sigurður Sigurðsson Skoðun Viltu vita hvað virkar? Jón Pétur Zimsen Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir Skoðun Hvaða lærdóm má draga af ferðavenjukönnun 2025? Þórarinn Hjaltason Skoðun Skoðun Skoðun Í sporum kindarinnar Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Þurfum við að óttast gervigreind? Óttar G. Birgisson skrifar Skoðun Skattgreiðendur á TikTok Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Betri borg fyrir börn Bára Birgisdóttir skrifar Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar Skoðun Börnin eru þrautseig. Kerfið hefur brugðist grunnfærninni Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Viltu vita hvað virkar? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hvaða lærdóm má draga af ferðavenjukönnun 2025? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson skrifar Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson skrifar Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar andstæðingum eru eignuð orð Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Síðan hvenær er ég enginn? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Af bíómiðum og baðlónum María Rut Ágústsdóttir skrifar Skoðun Hvað verður minna þegar ríkið tekur meira? Íris Ósk Gísladóttir skrifar Skoðun Hver er okkar Napóleon Bónaparte? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Samfélagsumræðan og nunnan Ingibjörg Gunnlaugsdóttir skrifar Sjá meira