Ekki kjósa Björgu, konuna mína Tryggvi Hilmarsson skrifar 15. maí 2026 08:50 Ekki kjósa Björgu, konuna mína og oddvita Viðreisnar í Reykjavík. Þetta segi ég ekki vegna þess að hún er ekki klár. Hún er líklega klárasta manneskja sem ég þekki. Segi þetta heldur ekki vegna þess að hún er löt. Duglegri manneskju hef ég aldrei kynnst. Ég segi þetta af allt annarri ástæðu. Bökkum aðeins. Ég er eyðslukló. Ef mig langar í eitthvað þá er ég fljótur að fá mér það, eftir því sem aðstæður á bankabók leyfa hverju sinni. Hvatvísin nær tökum á mér og á meðan mér er að detta í hug að kaupa eitthvað er ég oftast búinn að smella nokkrum sinnum og hluturinn er á leiðinni heim til okkar. Björg er ekki svona. Björg hagar samskiptum sínum við peninga einsog hún hafi lifað af móðuharðindin og beðið á bryggjunni þegar síldin hvarf. Það er til dæmis útilokað að henda mat á okkar heimili. Ég hef nokkrum sinnum staðið í eldhúsinu á leiðinni að henda jógúrti sem rann út þegar Katrín Jakobsdóttir var forsætisráðherra. Þá horfir hún Björg mín á mig einsog ég sé að henda fjölskylduarfi. „Þetta sleppur alveg,“ segir hún. Húfan sem hún notar á hverjum degi er útnöguð af Skugga, hundinum okkar. Ég bendi henni reglulega á að húfan sé með risa götum og líti út einsog hún hafi lifað tvö sjóslys í það minnsta. „Það ekkert að þessari húfu,“ segir hún. Það er þungt að skrifa þessa setningu en hún hefur rétt fyrir sér. Á meðan ég kaupi hluti sem ég „þarf“ eða einmitt þarf ekki, þá hugsar hún: „Er þetta besta leiðin til að nota peningana?“ Sem er hræðilegt fyrir mig persónulega en líklega gott fyrir Reykvíkinga. Ég viðurkenni alveg að ég verð reglulega þreyttur á því að búa með manneskju sem skolar zip-lock poka og notar þá aftur en ég veit að svona manneskja fer líka vel með peninga annarra og ber virðingu fyrir þeim. Manneskja sem hugsar áður en hún eyðir. Manneskja sem vill að peningarnir nýtist sem best. Manneskja sem kaupir ekki bara eitthvað afþví það hljómar vel. Þannig að ekki kjósa Björgu ef þú vilt áfram einhvern í Ráðhúsið sem eyðir sameiginlegum sjóðum kæruleysislega. En ef þú vilt manneskju sem tekur ábyrgð, hugsar hlutina til enda og mun hundrað prósent endurnýta kosningaplakötin í jólapappír í ár – þá ættirðu að kjósa hana. Höfundur er tilvonandi eiginmaður oddvita Viðreisnar í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar Skoðun Spánverjar vilja íslenskan sjávarútveg Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Fólkið eða peningarnir? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir skrifar Skoðun Fullveldi hvað Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar