Kársnes á krossgötum Máni Þór Magnason skrifar 14. maí 2026 15:01 Nú þegar líður að kosningum eykst umræðan um uppbyggingu, framtíðarsýn og hvað má betur fara í samfélaginu okkar. Kársnesið í Kópavogi á fullt erindi í þá umræðu en þar hafa orðið miklar breytingar á fáum árum og er fleiri breytinga er að vænta. Það skiptir máli að hafa vel mótaða framtíðarsýn og að áskoranir framtíðarinnar séu endurspeglaðar í nýrri byggð og framtíðarskipulagi. Gæta þarf að uppbyggingin lendi ekki í sjálfsstýringu því það er ekki nóg að byggja nýjar íbúðir, með stækkandi hverfi þurfa að fylgja innviðir, græn svæði, þjónusta og rými fyrir mannlíf. Ungt fólk þarf raunhæfa valkosti Mikilvægt er að huga að því að skapa tækifæri fyrir ungt fólk sem hugar að því að stofna fjölskyldur. Það kallar á að raunhæfir kostir séu í boði og fjölbreyttar stærðir af íbúðum. Þessi þörf er nú þegar vel skilgreind í húsnæðisáætlun Kópavogsbæjar. Á tímabillinu 2024-2025 fækkaði Kópavogsbúum fæddum á árunum 1990-1999 í fyrsta skiptið í mörg ár. Kársnesið getur þarna gengt lykilhlutverki, enda mun fyrsti kafli Borgarlínunnar tengja Kársnesið og Hamraborg við miðbæ Reykjavíkur, háskólasamfélag HR og Landspítala. Um leið og samgöngur verða greiðari myndast tækifæri til að byggja upp hverfi þar sem þekking og nýsköpun fara hönd í hönd. Slíkt skapar atvinnutækifæri og hvetur tækni- og þróunarfyrirtæki til þess að setjast að í Kópavogi. Aðgengi að menningu Menning skiptir líka máli þegar kemur að uppbyggingu, Kársnesið og nágrenni hafa nú þegar sterkan menningarlegan grunn. Hér er að finna góða veitingastaði, fallega strandlengju, Gerðarsafn og fleira mætti telja. En nauðsynlegt er að auka samtöl til að kanna með skýrum hætti á hvaða sviðum menningarlífsins gæti bærinn skapað frekari hvata til að auðga menningarlíf bæjarins. Uppbygging sem þjónar Samtalið þarf að byrja hjá núverandi íbúum, þau sem þekkja hverfið, nota innviðina og hafa skilning á hvað þarf að bæta. Passa þarf að íbúasamráð verði ekki formsatriði sem fer fram eftir að búið er að taka stórar ákvarðanir. Mikilvægt er að taka mark á skoðunum íbúa í hvívetna og leita til þeirra fyrst. Kársnesið stendur á tímamótum, tímamótum sem veita gjöful tækifæri fyrir hverfi þar sem ungt fólk, eldri íbúar, atvinnulíf og menning geta vaxið saman í heildstætt hverfi. Pólitísk sýn og samráð skipa hér lykilstöðu. Ég vil að uppbyggingin í Kársnesi þjóni íbúum. Höfundur er á 13. sæti Viðreisnar í Kópavogi fyrir sveitastjórnakosningarnar 2026 og íbúi á Kársnesi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson Skoðun Skoðun Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Sjá meira
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar