Ný Heiðmörk fyrir Reykvíkinga Sara Björg Sigurðardóttir skrifar 14. maí 2026 12:20 Austurheiðar hafa verið falin útivistarperla við borgarmörkin. Svæðið hefur verið vannýtt og óskipulagt, þar sem ólíkir hópar og tegundir útivistar hafa skarast og stundum rekist á. Því viljum við í Samfylkingunni breyta og móta heildstæða framtíðarsýn fyrir svæðið, svo það verði nýtt í sátt við náttúru, notendur og fjölbreytt útivistartækifæri allt árið um kring. Austurheiðar fyrir fjölbreytni Síðustu árin hefur aðsókn að Austurheiðum vaxið hratt og notkun svæðisins er afar fjölbreytt. Þar mætast ólíkir hópar; göngufólk, hlaupafólk og hjólreiðafólk, hestafólk, hundaeigendur og fjölskyldur, auk sívaxandi hóps sem stundar vetrarútivist á borð við gönguskíði og skauta. Þessi fjölbreytni er einn helsti styrkleiki svæðisins, en kallar jafnframt á skýrari umgjörð, þjónustu og aðgreiningu til að tryggja öryggi og góða upplifun allra. Með því að bæta stígakerfið á svæðinu, skýrari merkingar og auka þjónustu, skapast tækifæri fyrir gesti að stunda útivist við ólíkar aðstæður allt árið um kring. Austurheiðar fyrir náttúrutengingu Rauðavatn, Reynisvatn og Langavatn eru vötnin þrjú og þau geta orðið spennandi áfangastaðir. Með því að byggja upp svæði fyrir fólk með aðstöðu og góðum tengingum skapast skýrara skipulag og betri dreifing á gestum. Væri ekki geggjað að hafa þjónustumiðstöð við Rauðavatn, bætta aðstöðu fyrir vatnaíþróttir og útinám við Reynisvatn eða hafa kyrrðarstað fyrir náttúruupplifun, stjörnuskoðun eða ratleik við Langavatn? Taka gönguskíðahring undir stjörnubjörtum himni milli furutrjáa á sporinu, ganga í litadýrð haustsins í leit að berjum eða stunda fuglaskoðun? Austurheiðar fyrir lýðheilsu og lífsgæði Samfylkingin er með skýra framtíðarsýn á Austurheiðar og vötnin þrjú. Með því að skipuleggja svæðið í þágu lýðheilsu og lífsgæða mun verða til ný Heiðmörk Reykvíkinga í jaðri borgarinnar. Við viljum skipuleggja og fjárfesta til framtíðar í nýju útivistarsvæði og um leið skapast tækifæri til að vernda ennþá betur vatnsból höfuðborgarbúa í Heiðmörk. Undir forystu Samfylkingarinnar er Reykjavíkurborg borg lífsgæða og lýðheilsu og af því erum við stolt. Við viljum halda áfram að þróa Austurheiðar til framtíðar enda getur svæðið orðið eitt af sterkustu kennileitum Reykjavíkur – svæði þar sem borg og náttúra mætast, þar sem fjölbreytt útivist styður við heilsu, vellíðan og lífsgæði fyrir öll. Tryggjum áframhaldandi uppbyggingu lífsgæða í landi Austurheiða og merkjum X-við S þann 16. maí næstkomandi. Höfundur er borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, skipar 10. sæti á lista flokksins í kosningunum 16. maí og vill sjá Austurheiðar rísa upp sem nýja Heiðmörk Reykvíkinga. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sara Björg Sigurðardóttir Mest lesið Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson Skoðun Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku? Valerio Gargiulo Skoðun Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson Skoðun Viltu vita hvað virkar? Jón Pétur Zimsen Skoðun Börnin eru þrautseig. Kerfið hefur brugðist grunnfærninni Sigurður Sigurðsson Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson Skoðun Hvaða lærdóm má draga af ferðavenjukönnun 2025? Þórarinn Hjaltason Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Skattgreiðendur á TikTok Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Betri borg fyrir börn Bára Birgisdóttir skrifar Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar Skoðun Börnin eru þrautseig. Kerfið hefur brugðist grunnfærninni Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Viltu vita hvað virkar? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hvaða lærdóm má draga af ferðavenjukönnun 2025? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson skrifar Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson skrifar Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar andstæðingum eru eignuð orð Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Síðan hvenær er ég enginn? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Af bíómiðum og baðlónum María Rut Ágústsdóttir skrifar Skoðun Hvað verður minna þegar ríkið tekur meira? Íris Ósk Gísladóttir skrifar Skoðun Hver er okkar Napóleon Bónaparte? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Samfélagsumræðan og nunnan Ingibjörg Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun 0,01% er ekki undanþága frá ábyrgð Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Óréttlæti lífeyriskerfisins gagnvart ungu fólki Kjartan Björgvinsson skrifar Sjá meira