Kosningar og leikskólamál Sigríður Clausen skrifar 14. maí 2026 08:32 Nú styttist hratt í kosningar og í fyrsta sinn hef ég ekki hugmynd hvað skal kjósa. Hvernig stendur á því? Jú því ég eins og margir aðrir Reykvíkingar er ósátt með hvernig borgin hefur verið rekin síðustu árin. Þá er eðlilegast að lýta í aðrar áttir og skoða hvaða valmöguleikar eru í boði. Því miður virðast þeir engu skárri. Eintóm loforð, fáránlegar hugmyndir og meira að segja hrokafullar staðhæfingar um námslengd leikskólakennara. Ég hef ákveðið að ég ætla að kjósa fyrir börnin mín. Börnin mín dvelja stórum hluta af degi sínum á yndislegum leikskóla þar sem þau hafa tækifæri til að vaxa og dafna til að verða góðir og duglegir einstaklingar. Það var lán í óláni að hverfisleikskólinn okkar reyndist myglaður og við urðum að endurskoða leikskólaval okkar þannig þau enduðu á þessum leikskóla í öðru hverfi. Ég vil tryggja börnunum mínum það að þau geti stundað sitt nám í myglulausu og öruggu húsnæði. Ég vil ekki þurfa að hafa áhyggjur af því að þau þurfi að flytjast annað til lengri eða styttri tíma því húsnæðið stenst ekki öryggis staðla. Ég vil heldur ekki þurfa að hafa áhyggjur af brotthvarfi kennara þeirra í önnur sveitarfélög sem gera betur við starfsfólk sitt en borgin að mörgu leyti. Það er vel þekkt staðreynd að við þurfum fleiri kennara, ekki færri, og þeir eru ekki allir að skipta yfir í grunnskólana vegna eins leyfisbréfs á öll skólastig. Sá oddviti sem kom með þá hugmynd að stytta nám leikskólakennara hefur ekki þekkingu til að vita hvað starfið gengur út á. Það er ekki sama sem merki á milli þess að ef börnin eru yngri að þá þurfi minni menntun til að kenna þeim. Bara alls ekki. Þetta fimm ára háskólanám snýst ekki eingöngu um að kenna börnum stafina. Þetta snýst um að kynna sér ólíkar kennsluaðferðir til að ná fram árangri og efla börnin okkar. Þetta snýst um að nálgast þau með áhugavert námsefni með tilliti til aldurs þeirra og þroska. Þá þarf að gera námið þeirra bæði sýnilegt og áþreifanlegt þannig þau geri sér grein fyrir eigin framförum. Þetta snýst um að gera börnin okkar að sterkum, sjálfsöruggum einstaklingum með góðan grunn til að taka sín fyrstu skref í lífinu. Kennsluaðferðirnar eru ekki jafn margar og börnin eru misjöfn en þær hafa allar sitt að segja og eru langflestar vafðar saman í leikskólum af leikskólakennurum til að uppfylla kröfur Aðalnámskrár. Að því sögðu þá vona ég að verðandi borgarfulltrúar, og þá sérstaklega oddviti Sjálfstæðisflokksins, vandi mál sitt í framtíðinni þegar rætt er um leikskólakennara því að mínu mati væri besta byrjun nýs meirihluta að fjölga kennurum. Þá væri fyrsta skrefið að sýna starfinu virðingu og tala starfið upp. Annars er ég ansi hrædd um að margir leikskólakennarar færi sig í önnur sveitarfélög, þar með talið ég. Höfundur er tveggja barna móðir, leikskólakennari og óákveðinn kjósandi sem óskar eftir samtalinu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson Skoðun Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku? Valerio Gargiulo Skoðun Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson Skoðun Viltu vita hvað virkar? Jón Pétur Zimsen Skoðun Börnin eru þrautseig. Kerfið hefur brugðist grunnfærninni Sigurður Sigurðsson Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson Skoðun Hvaða lærdóm má draga af ferðavenjukönnun 2025? Þórarinn Hjaltason Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Í sporum kindarinnar Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Þurfum við að óttast gervigreind? Óttar G. Birgisson skrifar Skoðun Skattgreiðendur á TikTok Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Betri borg fyrir börn Bára Birgisdóttir skrifar Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar Skoðun Börnin eru þrautseig. Kerfið hefur brugðist grunnfærninni Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Viltu vita hvað virkar? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hvaða lærdóm má draga af ferðavenjukönnun 2025? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson skrifar Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson skrifar Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar andstæðingum eru eignuð orð Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Síðan hvenær er ég enginn? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Af bíómiðum og baðlónum María Rut Ágústsdóttir skrifar Skoðun Hvað verður minna þegar ríkið tekur meira? Íris Ósk Gísladóttir skrifar Skoðun Hver er okkar Napóleon Bónaparte? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Samfélagsumræðan og nunnan Ingibjörg Gunnlaugsdóttir skrifar Sjá meira