Reykjavík verður að styðja við fátæk börn í borginni Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir skrifar 14. maí 2026 09:12 Flokkur fólksins var stofnaður fyrir tíu árum beinlínis til að vinna gegn fátækt barna. Innan nokkurra vikna má vænta tillagna stýrihóps á vegum mennta- og barnamálaráðherra um aðgerðir í þessum efnum. Fátækt barna kemur meðal annars fram í alls kyns mismunun í íþrótta- og félagsstarfi þar sem foreldri eða foreldrar þeirra geta ekki staðið undir þeim kostnaði sem því fylgir. Þess vegna leggur Flokkur fólksins áherslu á að öll börn eigi rétt á að stunda íþróttir og tómstundir óháð efnahag foreldra. Útilokun frá íþróttastarfi, tónlistarnámi eða félagsstarfi almennt getur haft mjög skaðleg áhrif á sjálfsmynd barna. Það er ekki hvað síst í fjölbreyttu félags- og tómstundastarfi sem börn eignast vini og mynda tengsl sem endast kannski til lífstíðar. Félagsstarf byggir upp sjálfstraust og tilfinningu fyrir því að tilheyra. Mismunun vegna efnahags Allt of stór hópur foreldra neyðist til að velja á milli þess að borga húsleiguna og aðra reikninga eða greiða fyrir þátttöku barna sinna í íþrótta- og tómstundastarfi. Þetta er samfélagslegt óréttlæti og skőmm sem á ekki að líðast í einu ríkasta landi heims. Borgin verður að koma myndarlega til móts við börn í þessari stöðu. Sama gildir um ungmenni sem eru hvorki í námi né vinnu. Reykjavíkurborg verður að mæta þessu unga fólki á þeim stað sem það er og efla það til þátttöku í samfélaginu. Ungt fólk í þessari stöðu upplifir margt vanlíðan og félagslega einangrun og missir smátt og smátt trúna á sjálft sig. Flokkur fólksins vill samfélag sem mætir börnum og ungmennum af virðingu með raunverulegum úrræðum. Við eigum að fjárfesta í framtíð barnanna þannig að hæfileikar þeirra fái að blómstra burt séð frá efnalegi stöðu foreldra. Börn foreldra í vanda Við verðum líka að styrkja og aðstoða börn sem búa við vandamál innan heimilisins. Til að mynda þegar foreldri eða foreldrar glíma við alkóhólisma, geðrænan vanda eða mikla fjárhagsörðugleika. Við þær aðstæður þarf barnið víðtækan stuðning sem þolir enga bið. Öll börn eiga að hafa aðgang að félags- og sálfræðiþjónustu innan skólans. Börnin þurfa að geta treyst því að á þau sé hlustað og unnið í málum þeirra. Börnin eru framtíð samfélags okkar og við megum ekki fórna neinu þeirra á altari afskipta- og úrræðaleysis. Flokkur fólksins talar fyrir mannlegri reisn allra. Samfélag sem sparar í grunnþjónustu við börn greiðir fyrir það dýru verði síðar. Fyrir utan skaðan sem afskiptaleysið veldur börnum og ungmennum skaðar afskiptaleysið samfélagið í heild sinni. Það er til marks um ranga forgangsröðun í borginni þegar börnum er mismunað eftir efnahag foreldra, þegar börn fá ekki félags-, sálfræði- og almenna heilbrigðisþjónustu í samræmi við þarfir þeirra. Flokkur fólksins setur hag barna og efnaminni fjölskyldna í fyrsta forgang. Í dag er félagsþjónustan undirmönnuð og börn bíða mánuðum saman eftir aðstoð. Það er ólíðandi. Þess vegna verður rődd Flokk fólksins að heyrast hátt og snjallt í borgarstjórn. Ég skora á alla að setja X við F, hinn 16. maí. Höfundur skipar 3. sæti á lista Flokk fólksins í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson Skoðun Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku? Valerio Gargiulo Skoðun Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson Skoðun Viltu vita hvað virkar? Jón Pétur Zimsen Skoðun Börnin eru þrautseig. Kerfið hefur brugðist grunnfærninni Sigurður Sigurðsson Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson Skoðun Hvaða lærdóm má draga af ferðavenjukönnun 2025? Þórarinn Hjaltason Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson Skoðun Skoðun Skoðun Betri borg fyrir börn Bára Birgisdóttir skrifar Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar Skoðun Börnin eru þrautseig. Kerfið hefur brugðist grunnfærninni Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Viltu vita hvað virkar? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hvaða lærdóm má draga af ferðavenjukönnun 2025? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson skrifar Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson skrifar Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar andstæðingum eru eignuð orð Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Síðan hvenær er ég enginn? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Af bíómiðum og baðlónum María Rut Ágústsdóttir skrifar Skoðun Hvað verður minna þegar ríkið tekur meira? Íris Ósk Gísladóttir skrifar Skoðun Hver er okkar Napóleon Bónaparte? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Samfélagsumræðan og nunnan Ingibjörg Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun 0,01% er ekki undanþága frá ábyrgð Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Óréttlæti lífeyriskerfisins gagnvart ungu fólki Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við erum froskar í vatni sem nálgast suðu Isla Sweet,Jóhanna Malen Skúladóttir skrifar Sjá meira