Týndi hópurinn á húsnæðismarkaði – gullnu árin Ragnar Þór Reynisson skrifar 13. maí 2026 20:31 Þegar verið er að ræða um uppbyggingu á íbúðum og fasteignamarkaði í Hafnarfirði, þá er algengast að verið sé að tala um íbúðir fyrir fyrstu kaupendur, íbúðir fyrir lágtekjuhópa, íbúðir fyrir eldri borgara og hjúkrunarheimili. Hver er þessi týndi hópur? Týndi hópurinn er fólk á aldrinum frá 60 til 70 ára og jafnvel yngra. Hann er fólkið sem er búið að ala upp sín börn og börnin flutt að heiman. Fólk sem er á besta aldri með góða heilsu og er enn í fullri vinnu. Fólk sem býr jafnvel í sérbýli eða blokk án lyftu og á jafnvel 80% í eign sinni. Fólk sem gæti hugsað sér að minnka við sig. Fólk sem vill tryggja sér góðan, öruggan stað áður en heilsan krefst þess en sér ekki tækifærin né fjárhagslega getu til þess. Forsendur flutninga og keðjuverkun Hvað á ég við með týndum hópi á fasteignamarkaði? Eins og ég segi hér á undan, þá er oft engin pressa á að selja eða kaupa aðra eign. Allir við góða heilsu. Geta gengið upp stigann, hugsað um garðinn sinn og haldið húsinu við sér til heilsubóta í leiðinni. Við viljum alltaf gera hlutina á okkar forsendum. En ef við hugsum þetta á þann hátt að með því að skipta um umhverfi og búa í haginn fyrir þann tíma sem við hættum að vinna, og vera komin á réttan stað, þá erum við að greiða fyrir þeim yngri sem eru að stækka við sig. Þessi týndi hópur býr í eign sem yngra fólkið vill kaupa. En þá verður að vera eitthvað í boði. Gullnu árin og þarfir nýrra kynslóða Það hefur verið byggt mikið af þessum íbúðakjörnum fyrir týnda hópinn undanfarinn áratug og margir kjarnar eru einstaklega vel hannaðir, þannig að þessi hópur er í raun ekki týndur, heldur gleymist hann í umræðunni. Reiknað er með að þessi hópur eigi stórar fjölskyldur og þurfi að eiga pláss til að taka á móti gestum, þurfi góðar geymslur, sali fyrir boð, tómstundarými, þjónustu í nærumhverfi og margt fleira. Það þarf að halda áfram að þróa þessa kjarna sem ákall er eftir frá kynslóðum sem eru að fara að komast á gullnu árin (60-70 ára), þar sem þessi hópur mun stækka verulega á næstu áratugum. Við það að fjölga svona íbúðakjörnum þá mun samfélagið fá meiri tækifæri til veltu á íbúðum. Týnda kynslóðin fær meiri tíma til að njóta efri áranna í hentugu húsnæði án þess að eiga á hættu að vera föst í sinni eign. Tölfræðin segir að ef fólk flytur ekki á þessum gullnu árum eða fram að 75 ára aldri, þá eru meiri líkur á að það fari ekki fyrr en heilsan neyðir það til þess og hættan er þá biðlisti eftir réttu húsnæði þegar þörfin kallar. Og þá er það ekki á þeirra forsendum sem þau selja eða flytja. Framtíðarsýn í Hafnarfirði Við í Framsókn í Hafnarfirði viljum fjölga íbúðakjörnum fyrir fólk sem er á sínum gullnu árum og vill njóta lífsins til fulls. Við verðum að hafa hraðar hendur því okkur fjölgar og þurfum að hefjast handa við að láta hanna og byggja fleiri kjarna. Það stendur til að byggja lífsgæðakjarna við Vatnshlíð við Ásvallarbraut, þar sem væri tilvalið að byggja kjarna fyrir gullaldurshópinn. Þarfir kynslóða breytast og þarfir einstaklingsins eru mismunandi fjárhagslega og félagslega, sem þarf að taka mið af. Samfélagið er alltaf að græða á því að hugsa um uppbyggingu á íbúðum fyrir týndu kynslóðina. Byggjum fyrir fólk sem vill flytja á sínum forsendum. Þetta snýst um Hafnarfjörð. Höfundur er í 9. sæti á lista Framsóknar í Hafnarfirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir skrifar Skoðun Fullveldi hvað Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar