Strákarnir læri af biturri reynslu Arnars með Davíð Oddssyni í Japan Valur Páll Eiríksson skrifar 14. maí 2026 09:32 Arnar Gunnlaugsson segist hafa verið ungur og vitlaus í Japan árið 1994. Getty/Ramsey Cardy Arnar Gunnlaugsson opinberaði í gær landsliðshóp karla í fótbolta fyrir komandi leiki við Japan og Argentínu. Hann var með Davíð Oddssyni í för þegar hann fór síðast til Austurlanda fjær og hvetur leikmenn sína til að njóta betur hann gerði sjálfur á unga aldri.
Tveir mismunandi hópar sem fara í þessa tvo leiki við Japan og Argentínu. Það þýðir fleiri leikmenn og meiri hausverk fyrir landsliðsþjálfarann við valið. „Mér finnst alltaf vera meiri og meiri hausverkur ef ég á að segja alveg eins og er. Það koma sífellt ný og ný nöfn. Núna ertu með Stefán Inga, Viktor Bjarka og Benóný Breka. Það eru alltaf nýir að bætast í púllíuna sem gefur manni enn stærri hausverk en á góðan hátt. Við viljum auka breiddina í okkar hópi,“ segir Arnar. Kári varnarmaður til 27 ára aldurs Þeir Stefán Ingi Sigurðarson, Viktor Bjarki Daðason og Benóný Breki Andrésson eru allir nýliðar og geta spilað sinn fyrsta landsleik í Japan. Allir eiga þeir sameiginlegt að vera framherjar. Er áhyggjuefni að minna bjóðist af ungum og upprennandi varnarmönnum? „Það er alveg hægt að líta á það þannig að þetta sé fíllinn í herberginu sem menn eru ekki alltaf að tala um. En við ræðum þetta nánast daglega innanbúða í KSÍ, hvað við getum gert og svo framvegis,“ segir Arnar. „Það eru leikmenn að koma upp, það er engin spurning. En svo er spurning hvenær hægt er að henda þeim í djúpu laugina. Það er oft auðveldara með framherja því mistök þeirra eru ekki eins dýr og varnarmanna,“ „Það eru samt leikmenn að koma upp og við fylgjumst með þeirra þróun. En það er líka undir okkur komið að vera skapandi. Ég tek sem dæmi, ég held að Kári Árnason hafi verið miðjumaður þangað til hann var 27 ára. Eru mögulega einhverjir miðjumenn þarna sem geta tekið við eftir tvö til þrjú ár?“ spyr Arnar. Fór ungur og vitlaus með Davíð til Japan Frétt Morgunblaðsins um leikinn. Þar má sjá Arnar að skora sigurmarkið.Tímarit.is/Morgunblaðið 22.3.1994 Frétt Morgunblaðsins um Japansför Davíðs.Tímarit.is/Morgunblaðið 18.3.1994 Arnar greindi frá því á blaðamannafundi í gær að hann hafi sjálfur skorað mark fyrir landsliðið í Japan. Það taldi þó ekki meðal landsliðsmarka hans enda var leikurinn við lið Hitachi Reysol þar í landi. Davíð Oddsson, þáverandi forsætisráðherra, var með í för þar sem efla átti samskipti milli ríkjanna tveggja. Það var í byrjun árs 1994 og Arnar þá rúmlega tvítugur. Hann kveðst sjá eftir því að hafa ekki notið þess betur að kynnast landi og þjóð. „Ég man það var haldin einhver svaka veisla þarna. Davíð Oddsson, heitinn, fyrrverandi forsætisráðherra, var þá með í för. Það var tengt einhverri sýningu eða eitthvað svoleiðis. Þar voru einhverjar kræsingar þarna sem ég myndi sannarlega njóta í dag en á þeim tímapunkti bað maður bara um hrísgrjón og vatn,“ „Maður var ekki þroskaðri en það, því miður. En það eru nokkrir líklegir í mínum hópi sem eru ekki eins þroskaðir heldur þannig að ég mun reyna að miðla af minni reynslu,“ segir Arnar léttur. „Þegar maður er ungur og vitlaus heldur maður að svona tækifæri komi á hverjum degi, sem það gerir ekki. Bæði það að spila á móti frábærri fótboltaþjóð og upplifa þeirra frábæru menningu er bara einstakt tækifæri.“ Fleira kemur fram í viðtali við Arnar sem má sjá í heild að neðan. Klippa: Arnar ræðir hópinn, Japansför með Davíð Oddssyni og að mæta heimsmeisturum
Landslið karla í fótbolta Japan KSÍ Mest lesið Liverpool - Manchester City | Fyrsti leikurinn eftir dóm City Enski boltinn „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Íslenski boltinn Íslenskir dómarar úti í kuldanum: „Þetta er auðvitað svekkjandi“ Fótbolti Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Enski boltinn Pínleg mistök Neuer gáfu hraðasta mark í sögu deildarinnar Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Þurfti að gefa í þegar maginn sagði til sín Sport Bestu tilþrifin: Plakat á Höfn, ótrúleg karfa nýliðans og svakalegur þristur Körfubolti Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Enski boltinn Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Enski boltinn Segir Barcola ekki í vandræðum Enski boltinn Fleiri fréttir Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Ísak skoraði glæsimark í sigri Fúll heim af gamla heimavellinum Liverpool - Manchester City | Fyrsti leikurinn eftir dóm City Jón Dagur og félagar enn með fullt hús Segir Barcola ekki í vandræðum Kyssti Bentancur eftir rauða spjaldið Sjáðu mörkin sem björguðu FH, felldu ÍBV og tryggðu KR tugi milljóna Messi og Suárez í stuði Íslenskir dómarar úti í kuldanum: „Þetta er auðvitað svekkjandi“ Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Aflýstu leik vegna skutlukasts „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ „Þetta var alltaf mitt mark“ „Vonsviknir að ná ekki að nýta yfirburðina“ Pínleg mistök Neuer gáfu hraðasta mark í sögu deildarinnar Uppgjörið: Fram - KR 1-2 | KR styrkti stöðu sína í öðru sæti Mark tekið af Vinicius og fékk rautt spjald í staðinn Kristian Nökkvi og félagar nokkrum stigum frá toppnum Sigurganga Börsunga heldur áfram Svekkjandi tíu manna janftefli hjá Frey „Við ætlum að vinna rest“ Linta eftir fallið: „Enginn bjóst við þessu“ ,,Menn þurfa að bera meiri virðingu fyrir Stjörnunni en þetta” „Orðið algjört vígi að koma hérna“ Fiskaði rautt spjald í sigri Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Uppgjörið: Þór - ÍBV 1-0 | Felldu Eyjamenn og halda í vonina Sjá meira