Allt sem þú þarft að vita um kosningarnar Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 15. maí 2026 07:03 Það er að ýmsu að huga þegar kemur að þessum kosningum sem eru á morgun. Vísir/Anton Brink Landsmenn munu ganga að kjörborðinu á morgun og kjósa til sveitarstjórna víðsvegar um landið. Kjörstaðir verða opnaðir um allt land í fyrramálið, flestir klukkan níu og verður þeim í flestum tilfellum lokað klukkan 22. Vísir hefur tekið saman nokkur helstu atriðin varðandi kosningarnar og framkvæmd þeirra.
Hvað eru margir í framboði? Yfir þrjú þúsund manns eru í framboði um allt land í yfir fimmtíu sveitarfélögum víðsvegar um landið. Fjöldi lista er rétt um rúmlega 180 talsins um allt land en sjálfkjörið er í fjórum sveitarfélögum. Svo til allir oddvitar hafa kynnt sig í Oddvitaáskoruninni hér á Vísi. Sjá má lista yfir framboð hér. Hver má kjósa? Í sveitarstjórnarkosningum byggir kosningarréttur á lögheimili en ekki ríkisborgararétti líkt og í öðrum kosningum. Kosningaréttur gildir í því sveitarfélagi þar sem viðkomandi er skráður með lögheimili, á viðmiðunardegi þann 8. apríl 2026. Norrænir ríkisborgarar hafa þannig kosningarétt ef þeir eru orðnir átján ára á kjördag og eru með lögheimili í sveitarfélaginu. Aðrir erlendir ríkisborgarar hafa kosningarétt ef þeir eru átján ára á kjördag og hafa átt lögheimili á Íslandi í þrjú ár samfleytt fyrir kjördag. Íslenskir námsmenn sem búsettir eru á Norðurlöndunum og eru með lögheimili sitt skráð þar geta kosið í sveitarstjórnarkosningum, en þurfa að sækja sérstaklega um það. Kosningarétturinn gildir í því sveitarfélagi sem viðkomandi átti síðast skráð lögheimili. Sama gildir um maka og börn þeirra sem dveljast með þeim í viðkomandi landi. Hér er hægt að fletta því upp hvort þú sért á kjörskrá og hvar þú átt að kjósa. Hvernig kýs maður? Það er einfalt að kjósa. Fyrst þarftu að vita hvar þú kýst en hægt er að finna það á vef kjörskrár hér, meðal breytinga í ár er meðal annars sú að kosið er í Seljaskóla í Breiðholti í ár en ekki Ölduselsskóla. Kjörstaðir eru almennt opnir frá 09:00 til 22:00 en geta verið opnir skemur, upplýsingar um opnunartíma má finna á heimasíðum sveitarfélaga. Þegar þú mætir á þinn kjörstað finnurðu þína kjördeild, þeim er raðað upp eftir heimilisföngum. Því næst gefurðu þig fram við kjörstjörnina og sýnir skilríki. Best er að koma með skilríki með mynd á kjörstað, til dæmis ökuskírteini eða vegabréf, til þess að kjósandi geti gert grein fyrir sér. Stafræn ökuskírteini eru gild skilríki við kosningar. Þau eru núna aðgengileg í Ísland.is appinu. Kjörstjórnin merkir við nafnið þitt í kjörskránni og afhendir þér kjörseðilinn. Þú ferð með hann inn í kjörklefa og greiðir þar atkvæði án þess að nokkur sjái. ÍU kjörklefanum eru skriffæri sem þú notar til þess að setja X í ferning sem er fyrir framan bókstaf þess lista sem þú vilt kjósa. Heimilt er að strika yfir nöfn einstakra frambjóðenda eða gera breytingu á röðun þeirra. Þú getur leitað ráða hjá kjörstjórn ef þú ert óviss um hvernig það er gert. Það má ekki gera breytingar á öðrum listum en þeim sem þú kýst! Nánar má lesa sér til um ferlið hér fyrir neðan. Allir geta fengið aðstoð við að kjósa Allir kjósendur geta fengið aðstoð við að kjósa og þurfa ekki að gefa neinar ástæður fyrir því. Kjósandi getur komið með eigin aðstoðarmann eða fengið aðstoð frá starfsfólki kosninga. Ef kjósandi er með eigin aðstoðarmann þá gildir eftirfarandi: Aðstoðarmaður þarf að fylla út sérstakt eyðublað/yfirlýsingu á kjörstaðnum. Aðstoðarmaður má ekki vera frambjóðandi í kosningunum og ekki heldur maki, barn, systkini eða foreldri frambjóðanda. Aðstoðarmaður má ekki aðstoða fleiri en þrjá kjósendur við sömu kosningar. Kemstu ekki að kjósa á morgun? Ef þú kemst ekki að kjósa á morgun á kjördag er hægt að kjósa í utankjörfundaratkvæðagreiðslu í dag, hjá sýslumanni. Á höfuðborgarsvæðinu er sem dæmi opið hjá sýslumanni í Hlíðarsmára til klukkan 21:00 í kvöld. Nánari staðsetningar má sjá hér. Kjósandi þarf líkt og á kjördag að gera grein fyrir sér með skilríkjum eða á annan fullnægjandi hátt hjá sýslumanni. Kjörseðill við kosningu utan kjörfundar er auður, á honum eru hvorki nöfn framboða né frambjóðenda. Kjósandi skrifar eða stimplar listabókstaf þess framboðs sem hann vill kjósa á seðilinn. Kjósandi sem greiðir atkvæði hjá sýslumanni í umdæmi þar sem hann er á kjörskrá getur sett bréfið í atkvæðakassa þar. Hvað á ég að kjósa? Það er þitt val en ljóst er að úr nægu er að velja, þá sérstaklega þegar litið er til fjölda framboða um allt land. Ellefu listar bjóða sem dæmi fram í Reykjavík. Kosningaumfjöllun fréttastofu Sýnar getur aðstoðað þig við valið. Fréttastofan hefur boðið upp á öfluga umfjöllun síðustu vikur. Þá minnum við á að Sýn verður með skemmtilegra kosningasjónvarp á kosningakvöld í opinni dagskrá og öflugan fréttaflutning á Bylgjunni og á Vísi næstu daga, líkt og ávallt. Þannig lagði fréttastofa land undir fót og heimsótti helstu sveitarfélög landsins. Fréttamenn framleiddu í kjölfarið sérstaka kosningaþætti þar sem rætt er við oddvita og kjósendur í hinum ýmsu landshlutum. Austurland Vestfirðir og Vesturland Suðurland Norðurland Einnig voru kappræður oddvita í Reykjavík í beinni útsendingu með áhorfendum í sal á miðvikudagskvöld. Þar var nýjasta könnun Maskínu í aðdraganda kosninga rædd og margt sem kom í ljós. Auk þess hafa oddvitar átta framboða í Reykjavík sýnt á sér mannlegu hliðina í Af vængjum fram, sérstökum skemmtiþætti þar sem þeir borða sterka kjúklingavængi. Þá hafa oddvitar framboða í nokkrum af stærstu sveitarfélögum landsins, Kópavogs, Garðabæjar,Hafnarfjarðar, Mosfellsbæjar og Reykjanesbæjar mæst í Pallborðum á Vísi. Þar hafa málefnin verið rædd í þaula og oddvitar rætt sína sýn á framtíð bæjanna. Kappræðurnar, Pallborðið, kosningainnslög í Íslandi í dag og Af vængjum fram má einnig horfa á á Sýn+. Að lokum má ekki gleyma að nefna aftur Oddvitaáskorun Vísis sem langflestir oddvitar um allt land hafa tekið þátt í. Alla umfjöllun fréttastofunnar má sjá á myndbandsvef Vísis hér. Þá má lesa allar fréttir Vísis um sveitarstjórnarkosningarnar 2026 hér, í tímaröð.
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið „Hann var orðinn svo ofboðslega kaldur“ Innlent Öll áhöfnin talin af Erlent Inga komin úr átján daga veikindaleyfi: „Hún getur náð okkur, veiran“ Innlent Fólk komi rautt í framan eins og humar Innlent Sérsveitarmaður lagði hné á háls manns Innlent Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Erlent Keyrði rútu á 20 km/klst frá BSÍ í Hafnarfjörð: „Kannski á ég eftir að fá símtöl“ Innlent Skilur ekki hvernig ríkið ætlar að komast undan ábyrgð Innlent Húnvetningar sjá fram á mikla fjölgun starfa Innlent Í gæsluvarðhald eftir ofsóknir í garð konu og barna hennar Innlent Fleiri fréttir Réttarhöld yfir Ming Ting halda áfram Símarnir í frí í skólum Reykjavíkur frá haustinu Hvalveiðiundirbúningur vonbrigði en styðja ekki aðgerðir Watson Sérsveitarmaður lagði hné á háls manns Alþingi á lokasprettinum: Þingstörfin gjörólík milli ára Veðrið best á höfuðborgarsvæðinu á þjóðhátíðardaginn Skilur ekki hvernig ríkið ætlar að komast undan ábyrgð Plastbarkadómi áfrýjað og hvalavinir ósáttir við ráðherra Þrjár vikur til stefnu í umfangsmiklu fíkniefnamáli Í gæsluvarðhald eftir ofsóknir í garð konu og barna hennar Inga komin úr átján daga veikindaleyfi: „Hún getur náð okkur, veiran“ Tveir í gæsluvarðhaldi vegna stunguárásar Ríkið áfrýjar dómi í plastbarkamáli „Hann var orðinn svo ofboðslega kaldur“ Húnvetningar sjá fram á mikla fjölgun starfa Fólk komi rautt í framan eins og humar Kompásar stilltir fyrir komandi hvalveiðar Gríðarlegt safn bóka fannst við tiltekt í Valhöll Óvissa með haustið en sér nú vonarglætu Keyrði rútu á 20 km/klst frá BSÍ í Hafnarfjörð: „Kannski á ég eftir að fá símtöl“ Hvalbátarnir halda á veiðar undir helgina Kannaðist við að hafa ekið á níu ára stúlku og stungið af Áhyggjufullir ferðalangar, sólbrunnin þjóð og sögulegt sund í beinni Gluggagægir flúinn þegar lögreglu bar að garði Minniháttar röskun gæti haft alvarlegar afleiðingar Hótaði að drepa konu og hundinn hennar Skaðinn sem þau hafi þurft að þola „óásættanlegur með öllu“ Skar kindur á háls án þess að svipta þær meðvitund fyrst Þórdís Lóa ráðin framkvæmdastjóri Félagsbústaða Hvetja fólk til að gerast gjafar: „Það er alltaf pláss fyrir fleiri gæðablóð“ Sjá meira