Hleypum þeim værukæru í kærkomið frí Bjarni Thor Kristinsson skrifar 13. maí 2026 13:16 Nú styttist í sveitarstjórnarkosningar og þá gefst okkur tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á nærsamfélagið okkar. Mitt nærsamfélag heitir Garðabær og þar er ágætt að búa. Frá mínu heimili er stutt í leikskóla og matvöruverslun og öll almenn þjónusta yfirleitt innan seilingar. En það er ekki þar með sagt að allt sé eins og best verður á kosið. Sem Garðbæingur ætti maður ekki að þurfa að fara í nágrannasveitarfélögin til að komast á tónleika eða aðra menningarviðburði. En þannig er það samt aðeins og oft. Vissulega er ástandið mun betra en það var. Hér er rekið flott Hönnunarsafn og Jazzþorpið er frábært. Svo eru minni viðburðir og tónleikar af og til. En það væri hægt að gera svo miklu meira. Í Garðabæ skortir einfaldlega grunninnviði fyrir menningarlíf. Hér er hvorki alvöru tónleikasalur né menningarhús og menningarstefna bæjarins er bæði gömul og úrelt. Reyndar á nú loksins að stækka okkar ágæta Tónlistarskóla en börnin sem lentu á biðlistum síðustu ára hafa nú þegar misst af lestinni. Við í Samfylkingunni viljum breyta þessu. Við viljum byggja menningarhús þar sem íbúar geta bæði notið og skapað. Menning á ekki að vera munaður heldur er hún nauðsynlegur þáttur í því að byggja upp lifandi samfélag. Ef betur er að gáð er ljóst að Garðabær hefur allt of lengi setið í farþegasætinu þegar kemur að menningarmálum og látið nágrannabæina ráða för. Við sitjum einfaldlega hjá á meðan aðrir byggja upp innviði og skapa mannlíf. Því miður á þetta ekki bara við um menninguna. Til eru dæmi um að fólk hafi þurft að flytja til annarra bæjarfélaga vegna þess að það fékk ekki þá félagslegu þjónustu í Garðabæ sem það þurfti á að halda og á rétt á, samkvæmt lögum. Það er grafalvarlegur vitnisburður um hina værukæru bæjarstjórn sem hefur haft áratugi til að byggja upp þjónustu og innviði. Nokkrar skóflustungur korter í kosningar breyta ekki miklu. Nú er kominn tími á breytingar. Bæjarstjórn Sjálfstæðisflokksins er mjög einsleitur hópur sem endurspeglar alls ekki hið fjölbreytta og skemmtilega samfélag sem Garðabær er í dag. Við skulum því hleypa þeim í kærkomið frí. Samfylkingin er öflugur jafnaðarmannaflokkur sem lætur verkin tala. Veljum jöfnuð, kjark og framfarir fyrir Garðabæ. Setjum X við S. Höfundur er menningarstjórnandi og óperusöngvari og skipar 8. sæti á lista Samfylkingarinnar í Garðabæ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar Skoðun Spánverjar vilja íslenskan sjávarútveg Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Fólkið eða peningarnir? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir skrifar Skoðun Fullveldi hvað Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar