Gangbrautarvörður sem vill leysa málin Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar 13. maí 2026 09:03 Síðan við fjölskyldan fluttum í Laugardalinn hef ég ítrekað séð eða heyrt af börnum sem hafa næstum orðið fyrir bíl á gangbrautinni við heimili mitt á Kirkjuteig. Sem betur fer hafa flest þeirra sloppið án alvarlegra meiðsla en það er eflaust bara tímaspursmál þar til alvarlegt slys á sér stað. Í þrjá vetur hef ég hef ég staðið við þessa gangbraut ásamt öðrum foreldrum í kraftgalla og hjálpað börnum yfir götuna. Við skipulögðum gangbrautavörslu vegna þess einhver varð að gera eitthvað til að tryggja öryggi barnanna á leið í skólann. Fyrst borgin ætlar ekki að laga þetta… Við höfðum ítrekað samband við Reykjavíkurborg. Frábærir foreldrar í hverfinu buðust meira að segja til að fjármagna gönguljós sjálf. En ekkert gerðist. Við fengum þau svör að gangbrautin uppfyllti alla öryggisstaðla. Þetta voru viðbrögð sem okkur í hverfinu þótti vægast sagt áhugaverð. Ef ítrekað er keyrt á fólk á gangbraut þá er hún augljóslega ekki nógu örugg, það sjá allir. Þegar ég stóð þarna á kraftgallanum þriðja veturinn í röð hugsaði ég með mér: „Fyrst að borgin ætlar ekki að laga þetta, þá ætla ég að laga þetta sjálf.“ Kerfi eiga að hjálpa fólki, ekki afsaka að ekkert sé gert Ég býð mig fram fyrir Viðreisn vegna þess að ég trúi því að Reykjavík geti verið bæði fallegri, öruggari, grænni og betri borg fyrir okkur öll. Borg sem er sveigjanleg og er ekki svo upptekin af reglum og stöðlum að við missum sjónar á því sem skiptir máli. Ég vil að börn geti leikið sér frjálst, byggt kofa og upplifað æsku sem snýst ekki alltaf um reglur og bannskilti. Umræðan um kofann í Vesturbænum sem krakkarnir byggðu er gott dæmi um það hvernig við megum ekki kæfa allt sjálfsprottið líf úr borginni okkar í nafni kerfis og reglna. Viðbrögðin við kröfum okkar foreldra í Laugardal eru svipuð - staðlar ráða för en raunverulegur tilgangur gleymist. Borg sem hlustar á fólkið sitt Reykjavík þarf fólk í borgarstjórn sem hefur áhuga á að leysa mál, en ekki útskýra af hverju þau séu flókin. Við í Viðreisn lítum svo á að borgarfulltrúar séu kjörnir þjónustufulltrúar sem eiga að einbeita sér að því að ná raunverulegum árangri fyrir íbúana með því að hlusta á fólkið sem í borginni býr, vera sveigjanleg og missa ekki sjónar hver raunverulegur tilgangur þessa alls er - að íbúar velji að búa í Reykjavík - og elski að búa í Reykjavík. Ég vil Reykjavík þar sem fólk finnur að það sé hlustað á það. Borg þar sem kerfið vinnur með íbúunum, ekki á móti þeim. Borg þar sem foreldrar þurfa ekki lengur að standa í kraftgalla á gangbraut á morgnana til að börnin þeirra komist örugg í skólann. Höfundur er íbúi í Laugardal og skipar 4. sæti á lista Viðreisnar í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson Skoðun Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku? Valerio Gargiulo Skoðun Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson Skoðun Viltu vita hvað virkar? Jón Pétur Zimsen Skoðun Börnin eru þrautseig. Kerfið hefur brugðist grunnfærninni Sigurður Sigurðsson Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson Skoðun Hvaða lærdóm má draga af ferðavenjukönnun 2025? Þórarinn Hjaltason Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson Skoðun Skoðun Skoðun Betri borg fyrir börn Bára Birgisdóttir skrifar Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar Skoðun Börnin eru þrautseig. Kerfið hefur brugðist grunnfærninni Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Viltu vita hvað virkar? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hvaða lærdóm má draga af ferðavenjukönnun 2025? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson skrifar Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson skrifar Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar andstæðingum eru eignuð orð Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Síðan hvenær er ég enginn? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Af bíómiðum og baðlónum María Rut Ágústsdóttir skrifar Skoðun Hvað verður minna þegar ríkið tekur meira? Íris Ósk Gísladóttir skrifar Skoðun Hver er okkar Napóleon Bónaparte? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Samfélagsumræðan og nunnan Ingibjörg Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun 0,01% er ekki undanþága frá ábyrgð Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Óréttlæti lífeyriskerfisins gagnvart ungu fólki Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við erum froskar í vatni sem nálgast suðu Isla Sweet,Jóhanna Malen Skúladóttir skrifar Sjá meira