Staðan enn alvarleg fyrir farþega en lítil hætta fyrir almenning Lovísa Arnardóttir skrifar 12. maí 2026 13:39 Farþegi sem var um borð í skipinu á leið á flugvöllinn á Tenerife. Vísir/EPA Embætti landlæknis segir stöðuna enn alvarlega fyrir þá sem hafa orðið fyrir áhrifum vegna hantaveirusmits en að áhætta fyrir almenning á ESB/EES-svæðinu sé áfram mjög lítil. Fleiri smit geti komið upp á næstu vikum.
Greint var frá því í morgun að allir farþegar hefðu yfirgefið skipið, MV Hondius, eftir að það kom til Tenerife þann 10. maí. Skipið hefur lagt úr höfn frá Tenerife og er á leið til Hollands með hluta af áhöfn, lækni og hjúkrunarfræðing, þar sem skipið og farangur verða þrifin og sótthreinsuð. Í uppfærslu landlæknis á Facebook segir að í varúðarskyni séu allir farþegar og áhöfn talin vera útsett fyrir landgöngu og heimflutning. Þau af skipinu sem hafa einkenni þurfa tafarlausa einangrun, prófun og viðeigandi heilbrigðisþjónustu. Þau sem ekki hafa einkenni hafa verið beðin um að vera í sóttkví og fylgjast með einkennum í sex vikur. Tveir hafa greinst með hantaveiru eftir að hafa yfirgefið skipið og haldið heim. Báðir eru í einangrun. Um er að ræða Frakka og Bandaríkjamann. Í uppfærslu landlæknis segir að annar hafi fengið bráð einkenni í flugi heim og sé nú á gjörgæslu og annað tilfelli hafi greinst á Spáni hjá farþega eftir heimkomu. Skipið er nú á leið til Hollands. Vísir/EPA Fleiri tilfelli geti komið upp á næstu vikum Sóttvarnastofnun Evrópu hefur varað við því að vegna langs meðgöngutíma veirunnar geti fleiri tilfelli komið fram á næstu vikum meðal farþega og áhafnar en að áhætta fyrir almenning á ESB/EES-svæðinu sé áfram mjög lítil. Öll staðfest og líkleg tilfelli tengjast skipinu. Einhverjir farþeganna verða í einangrun í þessari miðstöð í Perth í Ástralíu. Vísir/EPA Þá kemur fram í uppfærslunni að raðgreining bendi til þess að veiran tengist sama upphaflega smitgjafa og sé svipuð þekktum Andesveirum sem finnast í Suður-Ameríku. „Þetta er ekki nýtt afbrigði og engar vísbendingar eru nú um að veiran berist auðveldar milli manna eða valdi alvarlegri sjúkdómi en áður þekkist. Staðan er áfram alvarleg fyrir þau sem hafa orðið fyrir beinum áhrifum, en áhætta fyrir almenning á ESB/EES-svæðinu er áfram mjög lítil,“ segir að lokum í stöðuuppfærslunni.
Hantaveirusmit um borð í MV Hondius Spánn Holland Heilbrigðismál Tengdar fréttir Hafna því að hantaveiran hafi borist frá hjara veraldar Yfirvöld í ferðamannabænum Ushuaia á syðsta odda Suður-Ameríku þræta fyrir að hópsýking hantaveiru eigi upptök sín í borginni. Argentínskir sérfræðingar telja mögulegt að veiran hafi borist í ferðamenn á vinsælum fuglaskoðunarstað í Ushuaia. 11. maí 2026 07:38 Frakki sýndi veirueinkenni og allir fimm skikkaðir í einangrun Einn af þeim fimm frönsku ríkisborgurum sem fluttir voru af MV Hondius, farþegaskipinu þar sem hantaveirusmit braust út, er sagður sýna sjúkdómseinkenni. Farþegarnir fimm hafa verið skikkaðir í einangrun. 10. maí 2026 17:52 Fallhlífastökkvarar aðstoða með hantasmit á afskekktri eyju Sjúkraliðar úr breska hernum stukku úr flugvél með fallhlífum yfir eyjunni Tristan da Cunha fyrr í dag til að koma breskum manni sem smitaðist af hantaveiru til hjálpar. Eyjan er ein sú afskekktasta og er mitt á milli Argentínu og Suður-Afríku á miðju Atlantshafi. 10. maí 2026 14:15 Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Fleiri fréttir Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Sjá meira
Hafna því að hantaveiran hafi borist frá hjara veraldar Yfirvöld í ferðamannabænum Ushuaia á syðsta odda Suður-Ameríku þræta fyrir að hópsýking hantaveiru eigi upptök sín í borginni. Argentínskir sérfræðingar telja mögulegt að veiran hafi borist í ferðamenn á vinsælum fuglaskoðunarstað í Ushuaia. 11. maí 2026 07:38
Frakki sýndi veirueinkenni og allir fimm skikkaðir í einangrun Einn af þeim fimm frönsku ríkisborgurum sem fluttir voru af MV Hondius, farþegaskipinu þar sem hantaveirusmit braust út, er sagður sýna sjúkdómseinkenni. Farþegarnir fimm hafa verið skikkaðir í einangrun. 10. maí 2026 17:52
Fallhlífastökkvarar aðstoða með hantasmit á afskekktri eyju Sjúkraliðar úr breska hernum stukku úr flugvél með fallhlífum yfir eyjunni Tristan da Cunha fyrr í dag til að koma breskum manni sem smitaðist af hantaveiru til hjálpar. Eyjan er ein sú afskekktasta og er mitt á milli Argentínu og Suður-Afríku á miðju Atlantshafi. 10. maí 2026 14:15