Ugla sat á kvisti í kjörklefanum Benóný Arnórsson skrifar 12. maí 2026 12:20 Í æsku minni notaðist ég oft við vísuna Ugla sat á kvisti þegar ég þurfti t.d. að velja síðasta leikmanninn í fótbolta í frímínútum eða þegar ég átti við almennan valkvíða að stríða. Nú á þrítugsaldri hefur þessi valkvíði skotið kollinum upp aftur þegar kemur að því hvaða flokk skal kjósa í sveitarstjórnarkosningum í Reykjavík og því neyðist ég til þess að nýta mér vísuna aftur í kjörklefanum þann 16.maí. Þrátt fyrir ýmsa frambærilega frambjóðendur hefur valið reynst mér erfitt. Lítil stemming hefur myndast í kring um þessar kosningar og virðast stefnumál flokkana hafa týnst einhvers staðar í frumskógi örvæntingarinnar. Sem ungur faðir eru málefni barna og ungmenna mér mikilvægust fyrir þessar kosningar. Leikskólamálin hafa verið í miklu ólagi hér í borginni. Í stað þess að búa til hvata fyrir fólk að vilja vinna í leikskólum og stytta biðtíma inn á leikskólana virðast framboðin frekar vilja fara í leðjuslag um hvaða „bæjarmódel” virkar best þegar kemur að rekstur leikskóla. Slagur sem bitnar fyrst og fremst á börnum borgarinnar. Helsta leið þessara flokka til að ná til ungs fólks virðist vera í gegnum hálfbakaðar Tik Tok tískubylgjur. Í stað þess að hvetja ungt fólk til þess að kjósa og taka þátt fáum við mjög hagnýtar upplýsingar um hverjum frambjóðendur myndu vilja ríða, drepa eða giftast af öðrum frambjóðendum. Eða glæsilegt gervigreindarmyndband af oddvita að lemja annan oddvita þar sem hæstvirtum menntamálaráðherra bregður fyrir að dansa á ögrandi máta beint í andlitið á manni. Frábært efni! Auðvitað er mjög auðvelt fyrir mig að sitja hér með morgunbollann og gagnrýna frambjóðendur. Hins vegar þegar að helstu tíðindin nokkrum dögum fyrir kosningar eru um hvar oddviti lagði bílnum sínum, varpar það drungalegu ljósi á stöðu mála og sýnir svart á hvítu hvar áherslurnar liggja fyrir þessar kosningar. Leggjum frekari áherslu á velferð barna og ungmenna. Keyrum upp stemminguna þessa síðustu daga fyrir kosningar! Ugla sat á kvisti Átti börn og missti 1-2-3 og það varst þú Sem fékkst atkvæðið mitt Því þú varst skástur Eða þannig Höfundur er faðir, leikari og sálfræðinemi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir skrifar Skoðun Fullveldi hvað Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar