Týnda kosningamálið Sigurður Hannesson og Halla Gunnarsdóttir skrifa 12. maí 2026 12:13 Á laugardag verður gengið að kjörborðinu í sveitarfélögum landsins og flokkar keppast nú um athygli fólks í raunheimum jafnt sem á samfélagsmiðlum. Í slíku ati fara málefnin stundum halloka og að þessu sinni fer óþægilega lítið fyrir efnislegri umræðu um eitt mikilvægasta verkefni sveitarfélaganna sem er húsnæðismál. Húsnæði hefur grundvallaráhrif á lífsgæði og kjör fólks og hefur verið helsti drifkraftur verðbólgunnar. Þannig snerta húsnæðismál efnahagslífið eins og það leggur sig, ekki aðeins í dag heldur líka til framtíðar. Aðgerðaleysi í dag er verðbólga framtíðarinnar. Sveitarfélög halda á skipulagsvaldinu. Sveitarstjórnir ráða miklu um það hvar er byggt, hvers konar íbúðir eru byggðar og hvenær. Þannig er það í þeirra höndum að tryggja nægilegt magn af fjölbreyttum byggingarhæfum lóðum og skipulagi sem mætir þörfum samfélagsins. Þar hefur mikið vantað upp á til að koma á stöðugleika í húsnæðisuppbyggingu. Lóðir skila sér seint og illa og hægagangur ásamt síaukinni gjaldtöku sveitarfélaga hafa haft veruleg áhrif á húsnæðisverð til hækkunar. Á fjölsóttu málþingi VR og Samtaka iðnaðarins um húsnæðismál í febrúar sl. kom fram skýr krafa um að ríki og sveitarfélög taki höndum saman um langtímasýn í húsnæðismálum. Skipulagsferli sveitarfélaga sætti talsverði gagnrýni á fundinum og þar eru fjölmörg tækifæri til úrbóta sem geta flýtt fyrir uppbyggingu og átt þátt í að tryggja nægilegt og rétt framboð húsnæðis. Á fundinum kom þó líka fram skilningur á áskorunum sveitarfélaganna við uppbyggingu innviða í nýjum hverfum. En sveitarfélög verða að hafa skýra sýn í málaflokknum. Hvernig ætla þau að hátta uppbyggingu til framtíðar? Verður nægt framboð af lóðum og hvert verður fyrirkomulag gjaldtöku? Mun uppbygging innviða að öllu leyti vera greidd af íbúum nýrra hverfa? Hvernig verður tryggt að skipulag mæti þörfum samfélagsins? Allt eru þetta spurningar sem krefjast vel ígrundaðra svara og geta ráðið miklu um lífsgæði almennings, verðbólguþróun og styrk atvinnulífsins á næstu árum. Þótt ólíkar skoðanir séu uppi um einstakar aðgerðir til að bregðast við húsnæðisvandanum, þá er nokkuð ríkur samhljómur um að aðgerðaleysi sé ekki valkostur. Við köllum eftir því að flokkar í framboði til sveitarstjórna skýri áform sín í húsnæðismálum. Húsnæðismál eru alltof mikilvæg til að þau megi týnast í skrautlegri kosningabaráttu. Það er bæði nauðsynlegt og mögulegt að koma á stöðugleika á húsnæðismarkaði. Við skorum á þau sem hljóta kjör til sveitarstjórna landsins að vinna að því. Nú reynir á, að krefjast raunhæfrar sýnar og ábyrgðar í húsnæðismálum áður en atkvæðin falla. Þegar eitt stærsta hagsmunamál heimilanna er annars vegar eiga kjósendur rétt á skýrum svörum núna, ekki eftir kosningar. Sigurður er framkvæmdastjóri SI og Halla er formaður VR. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Húsnæðismál Mest lesið Nei Íslandsbanki ég er ekki 6 ára Kristján Logason Skoðun Mannréttindi í Reykjavík í hættu Eldur Smári Kristinsson Skoðun Hvar mega okkar minnstu bræður borða? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Lífeyririnn okkar má ekki týnast Sandra B. Franks Skoðun Dregur til tíðinda Hannes Pétursson Skoðun Aldrei fleiri Ljón á Íslandi Selma Rut Þorsteinsdóttir Skoðun Valdatafl og viðskiptapólitík í lagareldi Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Matvælaverð, tollar og heimildavinna Erna Bjarnadóttir Skoðun Börnin fyrst, kerfið svo Inga Sæland Skoðun Sálin tekin úr skólunum Ingibjörg Isaksen Skoðun Skoðun Skoðun Mannréttindi í Reykjavík í hættu Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Hvernig líður fjölskyldunni? Auður Axelsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigðisráðherra slær eigið heimsmet Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Borgarlínan og Línuborg Soria Þórður Már Sigfússon skrifar Skoðun Hvaða börn koma fyrst? Lúðvík Júlíusson skrifar Skoðun Lífeyririnn okkar má ekki týnast Sandra B. Franks skrifar Skoðun Aldrei fleiri Ljón á Íslandi Selma Rut Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Mikilvægur áfangi fyrir eldri ökumenn Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Nei Íslandsbanki ég er ekki 6 ára Kristján Logason skrifar Skoðun Er gervigreind örlög eða stefna? Hanna Kristín Skaftadóttir skrifar Skoðun Menningarsjá og hlutverk hennar Anna Hildur Hildibrandsdóttir ,Erna Kaaber skrifar Skoðun Líffræðileg fjölbreytni á undanþágu? Maren Davíðsdóttir skrifar Skoðun Minna fólk – aðrar þarfir Bozena Raczkowska skrifar Skoðun Fullveldi og almannaheill Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Börnin fyrst, kerfið svo Inga Sæland skrifar Skoðun Hvar mega okkar minnstu bræður borða? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Núverandi heilbrigðiskerfi er ekki sjálfbært – aukið einkaframtak er hluti af lausninni Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Valdatafl og viðskiptapólitík í lagareldi Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Sálin tekin úr skólunum Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Matvælaverð, tollar og heimildavinna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Stefna og innleiðing hennar á óvissutímum Jóhanna Gunnþóra Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hinar myrku hliðar deilds fullveldis: Sýndaráhrif og uppgjöf smáríkis Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Stækkar skrifræðið við inngöngu í ESB? Tölurnar segja annað Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Á úfnum sjó eða lygnum Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Fæðingarorlof á ekki að kosta fólk starfið Árni B. Björnsson,Bjarki Ómarsson skrifar Skoðun Ísland fær martröð (örsaga) Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Er 25% lækkun á matvælum raunhæf með evru? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Aðflæðisvandinn Finnur Pálmi Magnússon skrifar Skoðun Milli tveggja kosta - Efnahagslegt staðreyndatékk á framtíð Íslands Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fólkið sem þurrkaði út heilbrigðiseftirlitið Pétur Halldórsson skrifar Sjá meira
Skoðun Núverandi heilbrigðiskerfi er ekki sjálfbært – aukið einkaframtak er hluti af lausninni Sævar Þór Jónsson skrifar
Skoðun Hinar myrku hliðar deilds fullveldis: Sýndaráhrif og uppgjöf smáríkis Eggert Sigurbergsson skrifar
Skoðun Milli tveggja kosta - Efnahagslegt staðreyndatékk á framtíð Íslands Sigurður Sigurðsson skrifar