Þjöppun byggðar eða einbýlishús í úthverfi? Er enginn millivegur? Svenný Kristins skrifar 11. maí 2026 14:22 Ég flutti heim frá Berlín haustið 2024 og hef verið að safna fyrir íbúð síðan en það gengur hægt eins og hjá mörgum. Ég hef reynt að lifa bíllausum lífsstíl, aðallega til að spara pening fyrir íbúð en það er ekki fyrir hvern sem er eins og höfuðborgarsvæðið er byggt í dag. Ungt fólk kemst ekki inn á fasteignamarkaðinn og þessu þurfum við virkilega að fara að breyta. Byggjum ódýrari íbúðir í Hafnarfirði, færri lúxusíbúðir og fleiri íbúðir sem venjulegt fólk getur keypt. Við eigum öll rétt á þaki yfir höfuðið. Þétting byggðar sem fór úr böndunum Þétting byggðar eins og hún hefur farið fram hefur oft verið svona: 5-8 hæðir, neðstu hæðir með litlum “ódýrum” (en samt rándýrum) íbúðum og svo fara efstu hæðirnar undir lúxusíbúðir með þakgarði og heitum potti. Allt of stutt er á milli húsa svo engin dagsbirta nær niður á neðstu hæðarnar. Hvað selst svo? Jú það eina sem fólk hefur efni á en það eru litlu myrkrakompurnar en lúxusíbúðirnar sitja tómar. Hefði ekki verið hægara að byggja bara 3-6 hæðir með venjulegum íbúðum á þessum reit og leyfa öllum að sjá þá gulu þegar hún loksins lætur sjá sig? Það er óeðlilegt að birta í íbúð sé lúxus sem þurfi að greiða aukalega fyrir. Já og breikka aðeins bilið á milli húsanna, gera ásýnd bygginganna fallegri og planta nokkrum trjám í göturýmið. Þétting byggðar er í grunninn góð hugmynd til að sporna við endalausri úthverfabyggð, en framkvæmdin fór eitthvað úrskeiðis. Við þurfum að gera þetta öðruvísi. Ef við horfum á löndin í kringum okkur eru fullt af borgum með þéttri, fallegri og manneskjulegri byggð þar sem hægt er að sjá til sólar en samt er bakarí og strætóstopp í göngufjarlægð. Hugmyndin um að víkka út vaxtamörkin er skiljanleg, en það kostar gríðarlegar upphæðir að byggja innviði fyrir splunkuný hverfi. Það er mun betri nýting á skattpeninginum okkar að nýta plássið innanbæjar betur en við þurfum líka að hle ypa þeim sparnaði út í verðlagið. Þó markaðurinn segi að þessi lóð eigi að vera dýr vegna staðsetningar eru innviðirnir að miklu leyti þegar til staðar og bærinn ræður svo lóðaverðinu. Meira sérbýli - Hver bað um það? ;) Það er nú þegar gríðarlegt magn af sérbýlum á höfuðborgarsvæðinu og með öldrun þjóðarinnar mun mikið af því losna þegar eldri borgarar velja eða þurfa að flytja í þjónustuíbúðir eða lífsgæðakjarna. Ég á erfitt með að trúa því að jafn stór hluti minnar kynslóðar muni hafa efni á sérbýlum og fyrri kynslóðir því við komumst varla inn á blessaðan markaðinn yfirleitt. Svo er þetta líka spurning um viljann; mörg okkar vilja meiri miðbæjarstemmningu og val um ferðamáta sem úthverfi bjóða ekki upp á og við viljum kannski gera eitthvað annað við peninginn en að borga af steypu. Við þurfum minni íbúðir fyrir fyrstu kaupendur og eldri borgara sem vilja minnka við sig. Við þurfum fleiri félagslegar íbúðir og sveitarfélög mættu alveg selja lóðir undir markaðsverði með kvöð um að uppbygging hefjist strax. Svo þurfum við að setja þak á leigu. Sterkara samfélag Ég vil búa í 15 mínútna hverfi þar sem stutt er í alla þjónustu og græn svæði. Ég vil búa í fallegri byggingu í litríku hverfi þar sem nóg pláss er fyrir tré og leikvelli og bílastæðin eru neðanjarðar eða í bílastæðahúsum. Ég get ekki beðið eftir Borgarlínunni og vil helst flýta henni eins og hægt er. Ég vil ekki búa í gamaldags úthverfi þar sem ég þarf að reka bíl, en ég vil heldur ekki búa á nýju þéttingarsvæðunum þar sem troðið hefur ver ið of mikið af ljótum byggingum. Finnum milliveginn og gerum byggðina fjölbreytta, litríka og gróðursæla. Það er kannski kaldhæðnislegt að ég skuli ekki vera komin úr barnaherberginu hjá foreldrum mínum en sé samt svona kröfuhörð. Má maður aðeins? Við megum alveg hugsa stórt því núverandi ástand er einfaldlega ekki að virka.Ég vil betri og grænni Hafnarfjörð og þess vegna er ég í framboði fyrir vinstrið í Hafnarfirði. Höfundur er í öðru sæti á lista Vinstrisins í Hafnarfirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Skoðun Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Sjá meira
Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt Skoðun
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt Skoðun