Fortíðin er ekki aukaatriði, hún er viðvörun Anna Kristín Jensdóttir skrifar 13. maí 2026 07:02 Það er auðvelt að tala fallega um velferð. Það sem skiptir máli er hvað flokkar gera þegar raunverulegar tillögur um fjárhagsaðstoð, húsnæðisstuðning, þjónustu við fatlað fólk og félagslegt húsnæði eru lagðar á borðið. Þar sýnir vinna Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík skýrt mynstur, þegar verja á tekjulága, fatlað fólk og fólk í húsnæðisvanda er flokkurinn of oft á móti, situr hjá eða setur tekjuskerðingar ofar þjónustu. Í velferðarráði lýstu fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sig beinlínis andvíga því að fjárhæðir og viðmið í velferðarkerfi Reykjavíkurborgar yrðu uppfærð sjálfkrafa, bæði grunnfjárhæðir fjárhagsaðstoðar og tekju- og eignamörk sérstaks húsnæðisstuðnings. Með öðrum orðum, þau vildu ekki festa í sessi að stuðningur við viðkvæma hópa fylgdi verðlagi með fyrirsjáanlegum hætti. Fyrir fólk á grunnframfærslu er þetta ekki tæknilegt atriði, þetta er spurning um hvort matur, leiga og reikningar haldi áfram að ganga upp. Þetta er ekki einstakt dæmi. Í borgarstjórn 3. desember 2024 var lögð fram tillaga um að hækka grunnupphæð fjárhagsaðstoðar og tengja hana lægsta taxta Starfsgreinasambandsins. Sjálfstæðisflokkurinn var meðal þeirra flokka sem felldu tillöguna. Sama dag var tillaga um desemberuppbót til allra sem fá fjárhagsaðstoð var sett til hliðar af téðum flokki Þegar lagt var til að veita 600 milljónum króna meira til félags- og velferðarmála fatlaðs fólks, sat Sjálfstæðisflokkurinn hjá. Þegar lagt var til að fjármagna að fullu uppbyggingaráætlun um sértækt húsnæði fyrir fatlað fólk, sat flokkurinn líka hjá. Hjáseta í svona málum er ekki hlutleysi, hún er pólitísk ákvörðun um að standa ekki með aukinni fjármögnun þegar þörfin er augljós. Árið 2026 má sjá sama mynstur. Í fjárhagsáætlun borgarinnar var lagt til að Reykjavíkurborg greiddi 513 milljónir króna í eiginfjárframlag til Félagsbústaða til að fjölga félagslegum íbúðum. Sjálfstæðisflokkurinn sat hjá við afgreiðslu málsins. Það þýðir að þegar húsnæðiskreppan bitnar hvað harðast á lágtekjufólki, öryrkjum og barnafjölskyldum, þá kýs flokkurinn ekki að styðja skýra fjármögnun í félagslegt húsnæði. Á sama tíma leggur Sjálfstæðisflokkurinn áherslu á að lækka eða frysta tekjur borgarinnar. Flokkurinn lagði til að fasteignaskattar yrðu lækkaðir þannig að tekjur borgarsjóðs af fasteignagjöldum hækkuðu ekki milli áranna 2025 og 2026. Slíkt hljómar vel í slagorði, en án skýrrar verndar fyrir velferðarþjónustu þýðir það minna svigrúm til að fjármagna húsnæðisstuðning, félagslegt húsnæði, þjónustu við fatlað fólk, barnavernd og fjárhagsaðstoð. Flokkurinn lagði einnig til í fjárhagsáætlun 2026 að mannréttindaskrifstofa Reykjavíkurborgar yrði lögð niður. Verkefni sem snúa að þjónustu við innflytjendur, aðgerðum gegn heimilisofbeldi og Bjarkarhlíð áttu að færast undir velferðarsvið, en um leið var gert ráð fyrir 150 milljóna króna hagræðingu sem færi yfir í handbært fé. Það er erfitt að kalla það styrkingu velferðar að færa verkefni til en taka fjármagn út úr kerfinu. Þess vegna ættu Reykvíkingar að spyrja einfaldlega. Hver verður afleiðingin þegar flokkur vill lægri tekjur borgarinnar, er á móti sjálfvirkri uppfærslu velferðarviðmiða, fellir hækkun fjárhagsaðstoðar, situr hjá við aukið fé til fatlaðs fólks og styður ekki skýrt aukið fé í félagslegt húsnæði? Sjálfstæðisflokkurinn getur talað um velferð, en akvarðanir og ákvarðanaleysi sýna að þegar kemur að fjármögnun alvöru velferðar, er flokkurinn ekki traustur varnarmaður þeirra sem mest þurfa á borginni að halda. Velferð Reykjavíkur þarf ekki fleiri slagorð um hagræðingu. Hún þarf fjármögnun, fyrirsjáanleika og stjórnmálafólk sem kýs með fólki, ekki hjá. Höfundur er fötluð kona. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Nei Íslandsbanki ég er ekki 6 ára Kristján Logason Skoðun Mannréttindi í Reykjavík í hættu Eldur Smári Kristinsson Skoðun Hvar mega okkar minnstu bræður borða? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Dregur til tíðinda Hannes Pétursson Skoðun Lífeyririnn okkar má ekki týnast Sandra B. Franks Skoðun Aldrei fleiri Ljón á Íslandi Selma Rut Þorsteinsdóttir Skoðun Valdatafl og viðskiptapólitík í lagareldi Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Matvælaverð, tollar og heimildavinna Erna Bjarnadóttir Skoðun Börnin fyrst, kerfið svo Inga Sæland Skoðun Sálin tekin úr skólunum Ingibjörg Isaksen Skoðun Skoðun Skoðun Mannréttindi í Reykjavík í hættu Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Hvernig líður fjölskyldunni? Auður Axelsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigðisráðherra slær eigið heimsmet Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Borgarlínan og Línuborg Soria Þórður Már Sigfússon skrifar Skoðun Hvaða börn koma fyrst? Lúðvík Júlíusson skrifar Skoðun Lífeyririnn okkar má ekki týnast Sandra B. Franks skrifar Skoðun Aldrei fleiri Ljón á Íslandi Selma Rut Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Mikilvægur áfangi fyrir eldri ökumenn Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Nei Íslandsbanki ég er ekki 6 ára Kristján Logason skrifar Skoðun Er gervigreind örlög eða stefna? Hanna Kristín Skaftadóttir skrifar Skoðun Menningarsjá og hlutverk hennar Anna Hildur Hildibrandsdóttir ,Erna Kaaber skrifar Skoðun Líffræðileg fjölbreytni á undanþágu? Maren Davíðsdóttir skrifar Skoðun Minna fólk – aðrar þarfir Bozena Raczkowska skrifar Skoðun Fullveldi og almannaheill Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Börnin fyrst, kerfið svo Inga Sæland skrifar Skoðun Hvar mega okkar minnstu bræður borða? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Núverandi heilbrigðiskerfi er ekki sjálfbært – aukið einkaframtak er hluti af lausninni Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Valdatafl og viðskiptapólitík í lagareldi Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Sálin tekin úr skólunum Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Matvælaverð, tollar og heimildavinna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Stefna og innleiðing hennar á óvissutímum Jóhanna Gunnþóra Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hinar myrku hliðar deilds fullveldis: Sýndaráhrif og uppgjöf smáríkis Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Stækkar skrifræðið við inngöngu í ESB? Tölurnar segja annað Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Á úfnum sjó eða lygnum Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Fæðingarorlof á ekki að kosta fólk starfið Árni B. Björnsson,Bjarki Ómarsson skrifar Skoðun Ísland fær martröð (örsaga) Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Er 25% lækkun á matvælum raunhæf með evru? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Aðflæðisvandinn Finnur Pálmi Magnússon skrifar Skoðun Milli tveggja kosta - Efnahagslegt staðreyndatékk á framtíð Íslands Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fólkið sem þurrkaði út heilbrigðiseftirlitið Pétur Halldórsson skrifar Sjá meira
Skoðun Núverandi heilbrigðiskerfi er ekki sjálfbært – aukið einkaframtak er hluti af lausninni Sævar Þór Jónsson skrifar
Skoðun Hinar myrku hliðar deilds fullveldis: Sýndaráhrif og uppgjöf smáríkis Eggert Sigurbergsson skrifar
Skoðun Milli tveggja kosta - Efnahagslegt staðreyndatékk á framtíð Íslands Sigurður Sigurðsson skrifar