Hafna því að hantaveiran hafi borist frá hjara veraldar Kjartan Kjartansson skrifar 11. maí 2026 07:38 Loftmynd af Ushuaia, höfuðstað Eldlandsins syðst í Argentínu. Borgin stendur við Beagle-sund og þaðan sigla skip með ferðamenn til Suðurskautsins. AP/Joel Reyero Yfirvöld í ferðamannabænum Ushuaia á syðsta odda Suður-Ameríku þræta fyrir að hópsýking hantaveiru eigi upptök sín í borginni. Argentínskir sérfræðingar telja mögulegt að veiran hafi borist í ferðamenn á vinsælum fuglaskoðunarstað í Ushuaia.
Ushuaia, syðsta borg Argentínu er markaðssett sem „hjari veraldar“. Þangað streyma ferðamenn sem hyggjast sigla til Suðurskautslandsins eða skoða argentínskar náttúruperlur í Eldlandinu og Patagóníu. Líkur hafa verið leiddar að því í fjölmiðlum víða um heim að hópsýking hantaveiru sem blossaði upp á hollenska skemmtiferðaskipinu MV Hondius hafi átt upptök sín í Ushuaia þaðan sem skipið lagði upp 1. apríl. Böndin berast sérstaklega að ruslahaugi á útjaðri borgarinnar sem er vinsæll hjá ferðamönnum sem vilja dást að fuglum sem sækja í hauginn. Hann laðar einnig að sér nagdýr sem geta borið veiruna með sér. Breska ríkisútvarpið segir að þessar tilgátur falli ekki í kramið hjá yfirvöldum og ferðaþjónustufyrirtækjum í Ushuaia sem eiga enda mikið undir því að erlendir ferðamenn haldi áfram að koma og eyða gjaldeyri sínum í borginni. „Við erum ekki með nein skráð tilfelli hantaveiru í sögu okkar í Eldlandi,“ segir Juan Facundo Petrina, forstöðumaður farsótta- og umhverfismála í Eldlandi. Hann bendir á útbreiðslusvæði veirunnar sé 1.500 kílómetrum norðar. Veðurfar í Eldlandi henti veirunni ekki og afar ósennilegt sé að nagdýrin sem eru smitberar veirunnar hefðu flutt hann suður á bóginn þar sem Ushuaia er á eyju sem er ótengd meginlandi Argentínu. Höfðu ferðast norðar í álfunni áður en þau komu um borð Engu að síður ætla argentínsk stjórnvöld að láta hóp sérfræðinga rannsaka hvort hópsýkingin gæti hafa átt upptök sín í Eldlandi. Hollenska skipið liggur nú við festar á spænsku eyjunni Tenerife í Atlantshafi og er unnið að því að koma farþegum og áhöfn til síns heima. Þrír farþeganna létust af völdum veirunnar og nokkrir til viðbótar smituðust af henni. Hollenska parið sem var það fyrsta sem veiktist og lést hafði ferðast um Síle, Argentínu og Úrúgvæ, töluvert norðar í Suður-Ameríku, áður en það kom um borð í Hondius í Ushuaia.
Hantaveirusmit um borð í MV Hondius Argentína Ferðaþjónusta Tengdar fréttir Fallhlífastökkvarar aðstoða með hantasmit á afskekktri eyju Sjúkraliðar úr breska hernum stukku úr flugvél með fallhlífum yfir eyjunni Tristan da Cunha fyrr í dag til að koma breskum manni sem smitaðist af hantaveiru til hjálpar. Eyjan er ein sú afskekktasta og er mitt á milli Argentínu og Suður-Afríku á miðju Atlantshafi. 10. maí 2026 14:15 Fyrstu farþegar hantaveiruskipsins farnir frá borði á Tenerife Skemmtiferðaskipið MV Hondius lagðist við höfn á Tenerife klukkan hálf sex í morgun og hafa fyrstu farþegar farið frá borði. Það hafði verið ágreiningur meðal yfirvalda allt fram á síðustu stundu um hvernig þetta ferli ætti að fara fram en höfnin var valin vegna þess hversu afskekkt hún er þrátt fyrir að vera nálægt flugvelli. Allir um borð skipsins hafa verið skimaðir og reyndust allir einkennalausir. 10. maí 2026 08:58 Farþegi Norrænu greindist með annað afbrigði hantaveiru Dani sem var á leið til Færeyja með Norrænu var fluttur með sjúkraflugi þar sem heilsu hans hrakaði fljótt eftir að hann steig um borð í ferjuna. Á háskólasjúkrahúsinu í Óðinsvéum var staðfest að um hantaveiru væri að ræða. 9. maí 2026 08:52 Mest lesið Framkvæmdastjóri hjá BL handtekinn og settur í leyfi Innlent Dagný Ósk látin Innlent Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Innlent Vaktin: Verkfallsaðgerðum flugvirkja aflýst Innlent Ætluðu að setja lög á verkfall flugvirkja Innlent Flugvirkjar aflýsa verkfalli Innlent Drengurinn er fundinn Innlent Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent Fleiri fréttir Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Svona var ræða Trumps: Spurning um „gereyðingu“ og nýtt nafn á gervigreind Í leyfi á meðan kosningasvik eru til rannsóknar Bein útsending: Ræða Trumps á allsherjarþinginu Bretar ætla að aðstoða Sáda gegn Hútum Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Rétta yfir konu spænska forsætisráðherrans Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Stefna að tveimur nýjum herstöðvum á Grænlandi Sniðganga Hvíta húsið Bað Selenskí um að stöðva árásir á rússneskar olíuvinnslur Höfða mál gegn Trump vegna bannsins Pútín sló öll met Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Maður á níræðisaldri lést í átökum um sólbekk Noregur og Kanada auka samstarf í varnarmálum Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Mótmæli í Texas vegna ICE-liða Kallar kosningarnar „hörmung“ en heitir því að fara ekki fet Senda Trump pillu vegna Ameríkukorts Sjá meira
Fallhlífastökkvarar aðstoða með hantasmit á afskekktri eyju Sjúkraliðar úr breska hernum stukku úr flugvél með fallhlífum yfir eyjunni Tristan da Cunha fyrr í dag til að koma breskum manni sem smitaðist af hantaveiru til hjálpar. Eyjan er ein sú afskekktasta og er mitt á milli Argentínu og Suður-Afríku á miðju Atlantshafi. 10. maí 2026 14:15
Fyrstu farþegar hantaveiruskipsins farnir frá borði á Tenerife Skemmtiferðaskipið MV Hondius lagðist við höfn á Tenerife klukkan hálf sex í morgun og hafa fyrstu farþegar farið frá borði. Það hafði verið ágreiningur meðal yfirvalda allt fram á síðustu stundu um hvernig þetta ferli ætti að fara fram en höfnin var valin vegna þess hversu afskekkt hún er þrátt fyrir að vera nálægt flugvelli. Allir um borð skipsins hafa verið skimaðir og reyndust allir einkennalausir. 10. maí 2026 08:58
Farþegi Norrænu greindist með annað afbrigði hantaveiru Dani sem var á leið til Færeyja með Norrænu var fluttur með sjúkraflugi þar sem heilsu hans hrakaði fljótt eftir að hann steig um borð í ferjuna. Á háskólasjúkrahúsinu í Óðinsvéum var staðfest að um hantaveiru væri að ræða. 9. maí 2026 08:52